Ocean Whisper#oceanwhispersweater |
|
![]() |
![]() |
Hekluð peysa úr DROPS Fiesta og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og krabbahekli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-31 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR (stuðlar í spíral): Þegar heklað er í hring í spíral án þess að enda umferðina, setjið 1 merkiþráð eða merki í byrjun á umferð til að auðveldara sé að sjá hvar umferðin byrjar. Umferðin endar ekki á venjulegan máta, heldur er 1. stuðull í byrjun á næstu umferð heklaður í 1. stuðul frá fyrri umferð. Í síðustu umferð er heklað til að koma í veg fyrir hak í skiptingunni þannig: Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir, heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, heklið 1 fastalykkju í síðustu lykkju og endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. stuðul í byrjun á umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 82 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 3,72. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla til skiptis í 3. og 4. hverja lykkju. KRABBAHEKL (fastalykkjur): Heklið fastalykkjur, en lykkjurnar eru heklaðar aftur á bak í umferð þ.e.a.s. heklað er frá vinstri til hægri. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um ermar): Þegar heklað er í hring þá kemur umferðin til með að færast til. Setjið merkiþráð fyrir miðju undir ermi, á milli 2 lykkja og látið þennan merkiþráð fylgja áfram með lóðrétt fyrir miðju undir ermi – það á að færa merkiþráðinn til þannig að hann verði allan tímann lóðréttur neðan / undir ermi. Leggið stykkið flatt og athugið að merkiþráðurinn sé fyrir miðju undir ermi þegar lykkjum er fækkað. Lykkjum er fækkað hvoru megin við 2 stuðla við merkiþráðinn þannig: Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir á undan merkiþræði, heklið 2 stuðla saman – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2, heklið 2 stuðla, heklið 2 stuðla saman (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 lykkjur saman í 1 lykkju þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað í hring frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar síðan eru stykkin hekluð í hring hvert fyrir sig. Í lokin er heklaður kantur í kringum hálsmál. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BERUSTYKKI: Heklið 76-80-84-88-92-96-100 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan, með heklunál 5 með 1 þræði DROPS Fiesta og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir) og tengið lykkjurnar í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 2 loftlykkjur, heklið 1 hálfan stuðul í hverja af 76-80-84-88-92-96-100 loftlykkjum í loftlykkjuhring, heklið í lokin 2 hálfa stuðla um 2 loftlykkjur frá byrjun umferðar = 78-82-86-90-94-98-102 hálfir stuðlar. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 26-27-29-30-31-33-34 hálfa stuðla í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið síðan í hring með stuðlum í spíral. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern hálfan stuðul og aukið út 22-22-22-24-24-26-26 stuðlar jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 100-104-108-114-118-124-128 stuðlar. Heklið hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. Þegar stykkið mælist 3-4-5-5-5-5-5 cm frá merki, aukið út 26-26-30-32-36-40-44 stuðla jafnt yfir í umferð = 126-130-138-146-154-164-172 stuðlar. Þegar stykkið mælist 6-7-9-9-9-9-10 cm frá merki, aukið út 32-34-38-42-48-54-58 stuðla jafnt yfir í umferð = 158-164-176-188-202-218-230 stuðlar. Þegar stykkið mælist 10-11-13-13-13-13-15 cm frá merki, aukið út 28-30-34-38-40-44-48 stuðla jafnt yfir í umferð = 186-194-210-226-242-262-278 stuðlar. Þegar stykkið mælist 13-15-17-17-17-18-20 cm frá merki, aukið út 14-16-18-20-22-24-24 stuðla jafnt yfir í umferð = 200-210-228-246-264-286-302 stuðlar. Þegar stykkið mælist 17-19-21-21-21-23-25 cm frá merki, aukið út 12-14-16-18-20-22-22 stuðla jafnt yfir í umferð = 212-224-244-264-284-308-324 stuðlar. Heklið síðan í hring með stuðla í spíral. Þegar berustykkið mælist 20-21-23-23-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er hekluð, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Gerið 8-10-10-12-14-14-16 nýjar loftlykkjur (= í hlið fyrir miðju undir ermi), hoppið yfir fyrstu 40-42-46-52-56-58-58 stuðla í umferð (= fyrir ermi), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 66-70-76-80-86-96-104 stuðlum, gerið 8-10-10-12-14-14-16 nýjar loftlykkjur (= í hlið fyrir miðju undir ermi), hoppið yfir næstu 40-42-46-52-56-58-58 stuðla (= fyrir ermi) og heklið 1 stuðul í hvern af síðustu 66-70-76-80-86-96-104 stuðlum (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú heklað hvert fyrir sig og byrjun á umferð er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið síðan í hring í spíral með 1 stuðul í hvern stuðul, í umferð 1 er einnig heklaður 1 stuðull í hverja af 8-10-10-12-14-14-16 nýjar loftlykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi = 148-160-172-184-200-220-240 stuðlar. Heklið stuðla í hring þar til stykkið mælist 48-49-51-53-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR þegar enda á síðustu umferð. Heklið 1 umferð með KRABBAHEKLA – lesið leiðbeiningar að ofan. Klippið og festið þráðinn. Peysan mælist 49-50-52-54-55-57-59 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Nú er heklað í 40-42-46-52-56-58-58 lykkjurnar sem hoppað var yfir fyrir ermi í annarri hliðinni á stykkinu þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju í 5-6-6-7-8-8-9 loftlykkjur af 8-10-10-12-14-14-16 loftlykkjum sem heklaðar voru fyrir miðju undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 2-3-3-4-5-5-6 loftlykkjum, heklið síðan 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í síðust loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar á sama hátt um stuðul í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (þetta er gert til að það verði eins lítið op og mögulegt er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi), heklið 1 stuðul í hvern af 42-46-52-56-58-58 stuðlum frá berustykki fram að loftlykkjum í annarri hliðinni á erminni, heklið 2 stuðla saman á sama hátt í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi, í lokin er heklaður 1 stuðull í hverja af síðustu 3-4-4-5-6-6-7 loftlykkjum undir ermi = 48-52-56-64-70-72-74 lykkjur. Það á að hekla stuðla hringinn í spíral án þess að enda umferðina á sama hátt og á fram- og bakstykki, byrjið næstu umferð með að hekla 1. stuðul í 1. fastalykkju frá fyrri umferð. Heklið hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 stuðla í hverjum 0-0-0-5-4-3-4 cm alls 0-0-0-2-3-4-3 sinnum = 48-52-56-60-64-64-68 stuðlar. Heklið síðan þar til ermin mælist 43-43-41-42-42-40-38 cm frá skiptingunni. Heklið 1 umferð þannig: * 1 stuðull í fyrsta / næsta stuðul, heklið 2 stuðla saman – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 * alls 15-16-17-19-20-20-21 sinnum þar til eftir eru 3-4-5-3-4-4-5 stuðlar í umferð, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 1-2-3-1-2-2-3 stuðla, heklið 1 hálfan stuðul í næsta stuðul, heklið 1 fastalykkju í síðasta stuðulinn = 33-36-39-41-44-44-47 lykkjur og endið umferðina á að hekla 1 keðjulykkju í 1. stuðul í byrjun umferðar. Heklið 1 umferð KRABBAHEKL. Klippið og festið þráðinn. Ermin mælist ca 44-44-42-43-43-41-39 cm frá skiptingunni. HÁLSMÁL: Heklið 7-7-7-7-8-8-8 umferðir með 1 stuðul í hverja lykkju, notið heklunál 5 með 1 þráð DROPS Fiesta og 1 þráð DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Endið með eina umferð KRABBAHEKL – lesið leiðbeiningar að ofan. Klippið og festið þráðinn. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #oceanwhispersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.