Lisa Holand skrifaði:
Kjedelig at det er 5 bilder av fronten og ingen av baksiden.
15.06.2025 - 12:36
Jeanne skrifaði:
Bonjour, Je voulais savoir, quand vous dite de crocheter A3 en aller et retour, cela veut dire : Qu'il faut tricoter 1 maille A3a, 1 maille A3b, 1 maille A3c, 1 maille A3a, 1 maille A3b, ... à la suite ? Ou, qu'il faut tricoter les 2 premières mailles en A3a, puis le reste en A3b et les 2 dernières mailles en A3c ? Merci d'avance, Jeanne
07.06.2025 - 20:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Jeanne, crochetez A.3 en allers et retours comme indiqué aux rangs 1 et 2 autrement dit, sur l'endroit, commencez par A.3A, répétez A.3B et terminez par A.3C; sur l'envers: commencez par A.3C, répétez A.3B en lisant le diagramme de gauche à droite et terminez par A.3A. Bon crochet!
09.06.2025 - 09:50
Anne skrifaði:
Bonjour, a quel point correspond le petit trait vertical dans les schémas parce qu'il n'est pas dans la légende. Merci
24.05.2025 - 15:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Anne, il correspond au 1er symbole (couché dans la légende), autrement dit, il s'agit d'1 maille en l'air. Bon tricot!
26.05.2025 - 09:11
Anna skrifaði:
Buongiorno, sullo schema A.1A il simbolo “0” cosa indica? Perché non si trova tra le spiegazioni del diagramma
12.05.2025 - 17:30DROPS Design svaraði:
Buonasera Anna, è il quarto simbolo dall'alto. Buon lavoro!
13.05.2025 - 23:06
Martine Tranchard skrifaði:
La fente du dos nest expliquée nulle part Le tour 1 se crochete en A1B et on nous dit qu'on obtient des mailles serrées...bizarre Pourquoi ne voit on pas de photo du dos??? Les schemas ne sont pas clairs... A quoi correspondent ils??? Merci de me donner plus d'explications
11.05.2025 - 11:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Tranchard, il n'y a pas de photos du dos car il n'y en a pas l'intérêt vu qu'il est comme le devant; il n'y a pas de fente au milieu dos; vous crochetez en rond, mais alternativement sur l'endroit et sur l'envers. Retrouvez ici comment lire un diagramme crochet. Bon crochet!
12.05.2025 - 08:03
Martine Tranchard skrifaði:
Si on tricote en rond sous la poitrine...oû est la fente???
09.05.2025 - 19:12
Martine Tranchard skrifaði:
Si on tricote en rond sous la poitrine...oû est la fente???
09.05.2025 - 19:11DROPS Design svaraði:
Il n'y a pas de fente: on crochète d'abord le haut du top, de bas en haut, en mailles serrées sur l'endroit, en brides sur l'envers en fermant les tours à chaque fois par 1 maille coulée; puis quand on a terminé la partie du haut, on coupe le fil, et on crochète le point ajouré de bas en haut, dans la chaînette de montage. Bon crochet!
12.05.2025 - 07:20
Martine Tranchard skrifaði:
Je nai pas trouve les explications pour la fente dans le dos et on ne voit pas de photo Au rang 1 on doit faire le point 1B et on obtient des mailles serrees alors qie 1B ce sont des brides Je ne comprends pas Les schemas meriteraient des complements dexplications
09.05.2025 - 19:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Tranchard, on tricote ici en rond, il n'y a pas de fente dans le dos, on joint les rangs par 1 mc au début du tour (cf4ème et 6ème symbole). Au 1er rang de la partie du haut, vous crochetez directement les diagrammes dans les mailles en l'air, 1er rang = sur l'endroit, crochetez A.1a puis répétez A.1b - mailles serrées sur l'endroit, et sur l'envers, crochetez A.1a et répétez A.1B - brides sur l'envers. Bon crochet!
12.05.2025 - 07:18
Martine Tranchard skrifaði:
Pourquoi crochete t on en doroit puis envers en aller retour alord qur cest en rond???? Les schémas ne sonr pas clairs
09.05.2025 - 14:38DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Tranchard, on conserve ainsi le début des tours bien aligné tout du long. Lisez les diagrammes de droite à gauche sur l'endroit et de gauche à droite sur l'envers - dans l'ordre indiqué par les explications. Chaque symbole représente 1 maille / 1 groupe de mailles dont vous retrouverez la description dans la légende. Retrouvez d'autres infos sur les diagrammes ici. Bon crochet!
09.05.2025 - 16:04
Sandstone Charm#sandstonecharm |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Muskat. Stykkið er heklað neðan frá og upp með stuðlum og fastalykkjum með kanti neðst í gatamynstri og klauf fyrir miðju að aftan. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-19 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju / stuðull / tvíbrugðinn stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Frá röngu er mynsturteikning lesin frá vinstri til hægri. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 129 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 21,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla A.2 til skiptis í ca 21. og 22. hverja lykkju í umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Toppurinn er fyrst heklaður í hring, neðan frá og upp – nákvæmlega frá neðan við brjóst og upp. Síðan er heklaður kantur með gatamynstri fram og til baka, frá uppfitjunarkanti á toppi og niður. Í lokin eru hekluð 2 laus bönd / hlýrar sem saumað er niður í hvora hlið að framan og að aftan. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. TOPPUR: Heklið 129-143-157-175-197-219 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan, með heklunál 4 með DROPS Muskat og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Byrjun umferðar = miðja að aftan. Heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1A í fyrstu lykkju, heklið A.1B umferðina hringinn = 128-142-156-174-196-218 fastalykkjur + 1 loftlykkja í byrjun umferðar, snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.1A, heklið A.1B umferðina hringinn og aukið jafnframt út 6 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, snúið stykkinu = 134-148-162-180-202-224 stuðlar + 3 loftlykkjur í byrjun umferðar. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu! UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið A.1A, heklið A.1B umferðina hringinn, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Heklið A.1A, heklið A.1B umferðina hringinn, snúið stykkinu. UMFERÐ 5 (= rétta): Heklið A.1A, heklið A.1B umferðina hringinn, snúið stykkinu. UMFERÐ 6 (= ranga): Heklið A.1A, heklið A.1B umferðina hringinn og aukið JAFNFRAMT út 6 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, snúið stykkinu = 140-154-168-186-208-230 stuðlar + 2 loftlykkjur í byrjun umferðar. UMFERÐ 7 (= rétta): Heklið A.1A, heklið A.1B umferðina hringinn, snúið stykkinu. UMFERÐ 8 (= ranga): Heklið A.1A, heklið A.1B umferðina hringinn, snúið stykkinu. UMFERÐ 9 (= rétta): Heklið A.1A, heklið A.1B umferðina hringinn, snúið stykkinu. UMFERÐ 10 (= ranga): Heklið A.1A, heklið A.1B umferðina hringinn og aukið JAFNFRAMT út 4 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, snúið stykkinu = 144-158-172-190-212-234 stuðlar + 3 loftlykkjur í byrjun umferðar. UMFERÐ 11 (= rétta): Heklið A.1A, heklið A.1B umferðina hringinn, snúið stykkinu. Eftir UMFERÐ 11: Heklið UMFERÐ 8 og 9 þar til stykkið mælist 15-16-17-17-18-19 cm frá uppfitjunarkanti. Klippið og festið þráðinn. Nú á að hekla kant með gatamynstri frá uppfitjunarkanti og niður á við. KANTUR Í GATAMYNSTRI: Setjið 1 merki í uppfitjunarkantinn á toppnum. Nú á að hekla niður á við og stykkið er nú mælt frá þessu merki. Byrjið með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í umferð (= miðja að aftan) og heklið síðan í hverja loftlykkju frá uppfitjunarkanti þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.3A yfir fyrstu 3 lykkjur, heklið A.3B þar til 2 lykkjur eru eftir, heklið A.3C í síðustu 2 lykkjur í umferð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.3C yfir fyrstu 2 lykkjur, heklið A.3B þar til 3 lykkjur eru eftir, heklið A.3A í síðustu 3 lykkjur. Eftir UMFERÐ 2: Heklið A.3 fram og til baka svona þar til A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina. Kanturinn hefur verið heklaður til loka í stærð S, M og L og hann mælist ca 13 cm frá merki. Í stærð XL, XXL og XXXL eru 2 síðustu umferðir í A.3 heklaðar einu sinni til viðbótar, kanturinn mælist nú ca 14 cm. Klippið og festið þráðinn. HÆGRA AXLABAND (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið 7 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Muskat og heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið með A.4A (= hoppið yfir fyrstu loftlykkju frá heklunálinni), heklið A.4B (= byrjið í 2. loftlykkju frá heklunálinni) og heklið A.4B þar til 2 lykkjur eru eftir, heklið A.4C í síðustu 2 lykkjur í umferð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.4C yfir fyrstu 2 lykkjur, heklið A.4B þar til 1 lykkja er eftir, heklið A.4A í síðustu lykkju (= í loftlykkju sem hoppað var yfir). Eftir UMFERÐ 2: Heklið A.4 fram og til baka svona, þ.e.a.s. síðustu 2 umferðir í A.4 eru endurteknar á hæðina) þar til axlabandið mælist 6-7-8-6-7-8 cm. Nú eru lykkjur auknar út fyrir handveg þannig: Haldið áfram með A.4 fram og til baka eins og áður, en í lok hverrar umferðar frá réttu (hver umferð með fastalykkjum), heklið A.5 í næst síðustu lykkju (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út alls 4-4-4-6-6-6 sinnum = 11-11-11-13-13-13 lykkjur. Heklið A.4 síðan eins og áður. Setjið 1 merki þegar axlabandið mælist 12-13-14-15-16-17 cm (= miðja ofan á öxl). Haldið áfram með A.4 eins og áður, en nú er lykkjum fækkað við handveg þannig: Heklið A.4 eins og áður, en í lok hverrar umferðar frá réttu (hver umferð með fastalykkjum), heklið A.6 í 2 næst síðustu lykkjur (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona alls 4-4-4-6-6-6 sinnum = 7 lykkjur eftir. Haldið síðan áfram þar til axlabandið mælist 12-13-14-15-16-17 cm frá merki (allt axlabandið mælist ca 24-26-28-30-32-34 cm). Klippið þráðinn nægilega langan til að sauma með. VINSTRA AXLABAND (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið 7 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Muskat og heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið með A.4A (= hoppið yfir fyrstu loftlykkju frá heklunálinni), heklið A.4B (= byrjið í 2. loftlykkju frá heklunálinni) og heklið A.4B þar til 2 lykkjur eru eftir, heklið A.4C í síðustu 2 lykkjur í umferð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.4C yfir fyrstu 2 lykkjur, heklið A.4B þar til 1 lykkja er eftir, heklið A.4A í síðustu lykkju. Eftir UMFERÐ 2: Heklið A.4 fram og til baka svona, þ.e.a.s. síðustu 2 umferðir í A.4 eru endurteknar á hæðina) þar til axlabandið mælist 6-7-8-6-7-8 cm. Nú eru lykkjur auknar út fyrir handveg þannig: Haldið áfram með A.4 fram og til baka eins og áður, en í byrjun hverrar umferðar frá réttu (hver umferð með fastalykkjum), heklið A.5 í 2. lykkju frá umferðinni (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út alls 4-4-4-6-6-6 sinnum = 11-11-11-13-13-13 lykkjur. Heklið A.4 síðan eins og áður. Setjið 1 merki þegar axlabandið mælist 12-13-14-15-16-17 cm (= miðja ofan á öxl). Haldið áfram með A.4 eins og áður, en nú er lykkjum fækkað við handveg þannig: Heklið A.4 eins og áður, en í byrjun hverrar umferðar frá réttu (hver umferð með fastalykkjum), heklið A.6 í 3. lykkju frá umferð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona alls 4-4-4-6-6-6 sinnum = 7 lykkjur eftir. Haldið síðan áfram þar til axlabandið mælist 12-13-14-15-16-17 cm frá merki (allt axlabandið mælist ca 24-26-28-30-32-34 cm). Klippið þráðinn nægilega langan til að sauma með. FRÁGANGUR: Saumið axlabandið niður í hvora hlið á framstykki og bakstykki – það eiga að vera ca 18-19-20-20-22-24 cm á milli axlabanda við miðju að framan og miðju að aftan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sandstonecharm eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.