Robin Whiteley Greaves skrifaði:
Thanks for the help getting started! I am up to the row past the "row of holes" and I'm unsure what I'm supposed to do. is it 2 dc in each ch 1 space? Are there any dc's into the tc's below? I looked at the photo, and it looks like 2 dc in each ch 1 space but I'm not sure. Then the increases have me a bit puzzled as well. Any assistance would be appreciated. I'm used to working with US diagrams and instructions but I'm always ready to learn!
19.05.2025 - 17:27DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Whitely Greaves, correct on 2nd row as well s on 6th row in A.7 you will crochet 2 sc around each chain, ie in the 1-chain-space from previous round. The increases should be worked evenly - use the calculator (see below Pattern at the beginning of the written pattern to let calculate how to increase. Happy crocheting!
20.05.2025 - 09:07
Robin Whiteley Greaves skrifaði:
I don't understand the first round. Chain 4 then how many double crochets into the ring to start?
17.04.2025 - 19:29DROPS Design svaraði:
Dear Robin, A.1 is only the chain 4 ring, with 1 slip stitch to join them together. Then you work as follows: 1 chain stitch (A.2), 6 double crochets (A.3 6 times), 1 slip stitch in the 1st chain stitch (A.2 again). The round starts and ends with chain 1, 1 slip stitch in 1st chain stitch, while you will work over each of the double crochets in the round as indicated in the chart. Happy crochetting!
20.04.2025 - 22:44
Holiday Road#holidayroadhat |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður hattur úr DROPS Bomull-Lin. Stykkið er heklað ofan frá og niður með fastalykkjum og gatamynstri, með barði og kanti í sólfjaðramynstri.
DROPS 256-8 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 til A.3). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 90 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 5,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 fastalykkjur til skiptis í ca 5. og 6. hverja fastalykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá toppi og niður. Það eru heklaðar fastalykkjur, 2 gataumferðir og í lokin er heklaður kantur með sólfjaðramynstri. HATTUR: Notið heklunál 4 og DROPS Bomull-Lin og heklið A.1 (= loftlykkjuhringur). Síðan er heklað þannig: Heklið A.2 (= byrjun og lok umferðar), heklið A.3 alls 6 sinnum í kringum loftlykkjuhringinn. Haldið svona áfram með mynstur. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. Þegar A.2 og A.3 hefur verið heklað til loka eru 90-96 lykkjur í umferð + 1 loftlykkja í byrjun umferðar. Heklið síðan þannig: Heklið A.4 (= byrjun og lok umferðar), heklið A.5 yfir þær lykkjur sem eftir eru, þ.e.a.s. það er hekluð 1 fastalykkja í hverja lykkju umferðina hringinn + 1 loftlykkja í byrjun umferðar. Heklið svona þar til hatturinn mælist ca 16-18 cm frá byrjun á stykki. Nú á að hekla gataumferðir þannig: Hekli A.6 (= byrjun og lok umferðar), heklið A.7 alls 45-48 sinnum. Haldið svona áfram með mynstur – jafnframt í hverri umferð merktri með ör í A.7 eru lykkjur auknar út jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Ör-1: Aukið út 16-16 lykkjur jafnt yfir = 106-112 fastalykkjur. Ör-2: Aukið út 6-6 lykkjur jafnt yfir = 112-118 fastalykkjur. Ör-3: Aukið út 6-6 lykkjur jafnt yfir = 118-124 fastalykkjur. Ör-4: Aukið út 6-8 lykkjur jafnt yfir = 124-132 fastalykkjur. Nú er heklaður kantur í sólfjaðramynstri eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í SÓLFJAÐRAMYNSTRI: Heklið A.8 (= byrjun og lok umferðar), heklið A.9 alls 31-33 sinnum. Klippið og festið þráðinn. Hatturinn mælist ca 23-25 cm frá byrjun umferðar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #holidayroadhat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 256-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.