Nathalie skrifaði:
Hi, Please can you add what stitches are used in diagram A5? Thank you
21.03.2025 - 21:04DROPS Design svaraði:
Dear Nathalie, you work over the grey shaded section, that is, a treble crochet round. Now start the round with 1 chain stitch (white oval symbol), which replaces the first double stitch and work 1 double crochet (small t symbol) over each treble crochet of the previous round. Happy crochetting!
23.03.2025 - 19:42
Frosted Parcel#frostedparcelbag |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð taska úr DROPS Belle. Stykkið er heklað með ömmuferningum og sexhyrningum sem settir eru saman.
DROPS 256-11 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum, þessar 3 loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðul, heldur koma sem viðbót. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring í stykkjum sem saumuð eru saman í tösku. Stykkin samanstanda af 2 ömmuferningum og 3 sexhyrningum. Axlarólin samanstendur af 12 litlum ömmuferningum sem saumaðir eru saman í lengju og síðan er saumuð niður í hvora hlið á töskunni. Í lokin er heklaður kantur með fastalykkjum í gegnum báðar hliðar á axlarólinni og í kringum opið á töskunni. ÖMMUFERNINGUR: Notið heklunál 3,5 og DROPS Belle og heklið A.1 hringinn. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu! Þegar mynsturteikning A.1 hefur verið hekluð til loka, eru 5 stuðlahópar á milli loftlykkjuboga í hverju horni = 16 stuðlar og 3 loftlykkjur meðfram hverri hlið = 19 lykkjur (1 loftlykkja frá fyrsta horni, 16 stuðlar og 2 loftlykkjur frá síðasta horni). Ferningurinn mælist ca 9½ cm meðfram hverri hlið. Heklið alls 2 ömmuferninga. SEXHYRNINGUR: Notið heklunál 3,5 og DROPS Belle. Heklið A.2 (= loftlykkjuhringur), heklið síðan þannig: Heklið A.3 (1 mynstureining = 2 stuðlar og 1 loftlykkja), heklið síðan mynsturteikningu A.4 alls 5 sinnum umferðina hringinn (5 mynstureiningar = 10 stuðlar og 5 loftlykkjur) = 12 stuðlar í umferð með 1 loftlykkju á eftir öðrum hverjum stuðli. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar mynsturteikning A.3 og A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina, eru 17 stuðlar og 2 loftlykkjur meðfram hvorri hlið = 19 lykkjur. Sexhyrningurinn mælist ca 9½ cm meðfram hverri hlið. Heklið alls 3 sexhyrninga. FRÁGANGUR: Brjótið hvern sexhyrning saman (= b) eins og útskýrt er í teikningu (strikuð lína = uppábrot) og staðsetjið sexhyrningana eins og útskýrt er í teikningu. Uppábrotið á sexhyrningunum er í hliðinni á töskunni og í botni á töskunni. Staðsetjið ömmuferningana (= a) fyrir miðju. Saumið stykkin saman með smáu spori, þ.e.a.s. saumið lykkju fyrir lykkju. Heklið kant í kringum opið á töskunni þannig: Byrjið með 1 keðjulykkju í skiptinguna á milli ömmuferningum og sexhyrningi, heklið A.5A í fyrstu lykkju, heklið síðan A.5B í hverja lykkju í kringum alla töskuna. Haldið áfram með A.5 hringinn þar til kanturinn mælist ca 2 cm. Klippið og festið þráðinn. AXLARÓL: Notið heklunál 3,5 og DROPS Belle og heklið A.6 hringinn. Þegar mynsturteikning A.6 hefur verið hekluð til loka, eru 2 stuðlahópar á milli loftlykkjuboga í hverju horni (= 6 stuðlar meðfram hverri hlið) og ferningurinn mælist ca 5 cm meðfram hverri hlið. Heklið alls 12 ömmuferninga. Saumið ferningana saman í eina lengju með smáu spori. Saumið axlarólina í hvora hlið á töskunni – sjá svarta stjörnu í teikningu. KANTUR: Heklið kant meðfram annarri hlið á opið á töskunni og meðfram annarri hlið á axlarólinni eins og útskýrt er að neðan. Heklið síðan alveg eins kant meðfram hinni hliðinni á opi á töskunni og síðan meðfram hinni hliðinni á axlarólinni. Byrjið með 1 keðjulykkju í skiptinguna á milli axlarólar og opi á tösku, heklið A.5A í fyrstu lykkju, heklið síðan A.5B í hverja lykkju meðfram opi á tösku fram að næstu axlaról, síðan er heklað meðfram axlaról þannig: Heklið 1 fastalykku í hvern stuðul og 2 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga í hvert horn, haldið svona áfram meðfram axlaról. Klippið og festið þráðinn. Heklið á sama hátt meðfram hinni hliðinni á opi á tösku og meðfram hinni hliðinni á axlarólinni. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostedparcelbag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 256-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.