Beach Dream Skirt#beachdreamskirt |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað pils úr DROPS Muskat. Stykkið er heklað neðan frá og upp með stuðlum og fastalykkjum með litlum hekluðum ferningum / ömmuferningum. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-35 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju / hálfur stuðull / stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð með fastalykkjum byrjar með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur í stað fyrstu fastalykkju. Í lok umferðar er heklað með 1 keðjulykkju í þessa loftlykkju. Hver umferð með hálfum stuðlum byrjar með 2 loftlykkjur, þessar 2 loftlykkjur koma í stað fyrsta hálfa stuðul. Í lok umferðar er hekluð 1 keðjulykkja í 2. loftlykkju frá byrjun umferðar. Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjur, þessar 3 loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul. Í lok umferðar er hekluð 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið heildarfjölda lykkja í umferð (t.d. 185 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 30,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að hekla ca 30. og 31. hverja lykkju saman þannig: Fækkið um 1 lykkju með því að hekla 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum fyrstu / næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru ferningarnir heklaðir og saumaðir saman í lengju / hring. Síðan er heklað í hring meðfram annarri hlið á hringnum, upp á við fyrir pils, en til að ná fram réttu áferðinni er heklað í hring til skiptist frá réttu og frá röngu. Í lokin er heklað í hring meðfram hinni hliðinni á hringnum, niður á við að kanti. FERNINGAR: Notið heklunál 4 og DROPS Muskat. Heklið hringinn eftir mynsturteikningu A.1. Klippið og festið þráðinn. Heklið alls 15-17-18-20-22-24 ferninga. FRÁGANGUR FERNINGAR: Passið uppá að allir ferningarnir liggi með réttuna út. Saumið ferningana saman einn og einn þannig að þeir myndi langa lengju – saumið 1 spor í hverja lykkju. Lengdin á lengjunni á að jafngilda máli á pilsi að neðan = ca 90-102-108-120-132-144 cm. Í lokin er fyrsti og síðasti ferningurinn í lengjunni saumaður saman, þannig að ferningarnir mynda hring. Nú á að hekla pilsið áfram í hring meðfram efri hlið á hringnum með ferningunum og upp að mitti. PILS: Byrjið frá réttu með 1 keðjulykkju í sauminn á milli 2 ferninga (þessi byrjun skilgreinir upphaf hringsins = vinstri hlið á pilsi þegar það er mátað), lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 163-185-195-217-239-261 fastalykkjur meðfram kanti á hring – lykkjurnar skiptast þannig: Heklið 1 fastalykkju í sauminn á milli hverra ferninga og 10 fastalykkjur meðfram hverjum ferningi (þ.e.a.s. meðfram 1 ferningi eru heklaðar 2 fastalykkjur um hornbogann, 3 fastalykkjur um hvorn af næstu 2 loftlykkjubogum og 2 fastalykkjur um hornbogann), en til að lykkjufjöldinn gangi jafnt upp verður að hekla 1 fastalykkju færri yfir 2-2-3-3-3-3 ferninga jafnt yfir. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Síðan er heklað mynstur, fækkið lykkjum jafnt yfir upp að mitti, það á að myndast klauf fyrir kant fyrir tölur og það er heklaður teygjanlegur þráður í mitti. Lestu því alla 4 kaflana að neðan áður en heklað er áfram. MYNSTUR: Nú er heklað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og heklið þannig: Heklið A.2A í fyrstu lykkju, heklið A.2B umferðina hringinn. Haldið svona áfram með mynstur og athugið vel að eftir 2. umferð er stykkinu snúið þannig að síðasta umferð í A.2 er hekluð frá röngu. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið þannig: Heklið A.3A í fyrstu lykkju, heklið A.3B umferðina hringinn. Haldið svona áfram með mynstur, til skiptis 1 umferð fastalykkjur frá réttu og 1 umferð stuðlar frá röngu. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Þegar stykkið mælist ca 7-8-10-12-14-16 cm (ásamt kanti með hekluðum ferningum) og næsta umferð er umferð með stuðlum, fækkið lykkjum jafnt yfir. Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2-4-6-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 161-181-189-213-235-257 lykkjur, heklið 5 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð með stuðlum er fækkað um 5-6-5-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 156-175-184-207-229-251 lykkjur, heklið 5 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð með stuðlum er fækkað um 5-6-5-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 151-169-179-201-223-245 lykkjur, heklið 3 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð með stuðlum er fækkað um 5-6-5-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 146-163-174-195-217-239 lykkjur, heklið 3 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð með stuðlum er fækkað um 5-6-5-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 141-157-169-189-211-233 lykkjur, heklið 3 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð með stuðlum er fækkað um 5-6-5-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 136-151-164-183-205-227 lykkjur, heklið 3 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð með stuðlum er fækkað um 5-6-5-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 131-145-159-177-199-221 lykkjur. KLAUF KANTUR FYRIR TÖLUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm (ásamt kanti með hekluðum ferningum), er gerð 12 cm löng klauf fyrir kant fyrir tölur. Þ.e.a.s. heklað er fram og til baka eins og áður, en án þess að festa umferðina. Með þessu þá myndast klauf í vinstri hlið á pilsi (þegar flíkin er mátuð). Síðar á að hekla kant fyrir tölur meðfram þessari klauf. TEYGJANLEGUR KANTUR MITTI: Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 31-32-34-36-38-40 cm (ásamt kanti með hekluðum ferningum). Ef stykkið mælist minna en þetta, heklið þá A.3 fram og til baka eins og áður að réttu máli. Bætið við þunnum teygjanlegum þræði (saman með 1 þræði DROPS Muskat) og heklið síðan fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist 35-37-39-41-43-45 cm (ásamt kanti með hekluðum ferningum), endið með eina umferð með fastalykkjum frá réttu. Klippið og festið þráðinn. KANTUR NEÐST: Nú er heklaður kantur neðst meðfram annarri hlið á hringnum með ferningum (finnið sömu 2 ferningana þar sem byrjað var á milli þegar efstu stykkin voru hekluð). Byrjið frá réttu með 1 keðjulykkju í saumnum á milli 2 ferninga, munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 163-185-195-217-239-261 fastalykkjur meðfram kanti á hring – lykkjurnar skiptast á sama hátt eins og meðfram ofan á hringnum. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.4A í fyrstu lykkju, heklið A.4B umferðina hringinn. Haldið svona áfram með mynstur (hver umferð er hekluð frá réttu) þar til A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina, ekki klippa þráðinn. Nú er heklaður blúndukantur eins og útskýrt er að neðan. BLÚNDUKANTUR NEÐST: Heklið A.5A í fyrstu lykkju, heklið A.5B umferðina hringinn, stillið af það loftlykkjubogarnir verði á sléttri tölu í umferð. Heklið A.5 til loka á hæðina. Klippið og festið þráðinn. HNESLUR / LYKKJUR: Meðfram annarri hlið á klauf sem situr á framstykki eru heklaðar hneslur / lykkjur – byrjið frá réttu með 1 keðjulykkju neðst í klauf, heklið 3 loftlykkjur, hoppið fram 1 cm, * heklið 2 fastalykkjur í stuðlahóps-röðina og 1 fastalykkju í fastalykkju-röðina *, heklið frá *-* í ca 4½ cm, 3 loftlykkjur, hoppið fram 1 cm, heklið frá *-* í ca 4½ cm, heklið 3 loftlykkjur, hoppið fram 1 cm, 1 keðjulykkja í síðustu umferð. Klippið og festið þráðinn. KANTUR FYRIR TÖLUR: Meðfram hinni hliðinni á klauf eru heklaðar 4 umferðir með fastalykkjum, þ.e.a.s. byrjið frá réttu með 1 keðjulykkju efst í mitt og heklið 2 fastalykkjur í hverja stuðlahópa-röð og 1 fastalykkju í fastalykkju-röð, síðan eru heklaðar fastalykkjur fram og til baka með 1 fastalykkju í hverja lykkju (byrjið hverja umferð með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur sem viðbót við fyrstu fastalykkju í umferð). Saumið tölur í kantinn þannig að þær passi við hneslurnar / lykkjurnar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #beachdreamskirt eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.