Faye skrifaði:
Is paris yarn mercerised cotton? I am not sure if I am spelling it right... I mean the really shiny cotton.
26.05.2025 - 23:51DROPS Design svaraði:
Dear Faye, no DROPS Paris isn't - read more about the yarn on its shade card here. Happy knitting!
27.05.2025 - 09:19
Jo skrifaði:
With garter stitch for the shoulder strap - will it stretch a lot ?
26.05.2025 - 16:38
Pam skrifaði:
Please tell me how much wool i need to make this bag
22.05.2025 - 15:04DROPS Design svaraði:
Dear Pam, you will find the requested amount of yarn under the tab "Pattern" at the top of the page, this means you need here 300 g DROPS Paris/50 g a ball = 6 balls DROPS Paris. Happy crocheting!
22.05.2025 - 15:58
Anna-Lena skrifaði:
Hej, I er beskrivning till väskan ovan står det RÄTSTICKNING (när det stickas runt): Alla varv stickas räta. RÄTSTICKNING (när det stickas fram och tillbaka): Sticka *1 varv rätt och 1 varv avigt*, upprepa *-*. Är det inte tvärtom för att åstadkomma rätstickning? Med vänlig hälsning, Anna-Lena
22.05.2025 - 12:18DROPS Design svaraði:
Hej Anna-Lena. Tack för info, detta har nu rättats! Mvh DROPS Design
23.05.2025 - 13:53
Anna-Lena skrifaði:
Hej! Försöker sticka denna väska men har fastnat. Jag stickar på rundsticka och det står att man ska sticka alla varv räta, men då blir det slätstickning. Jag borde väl sticka varannat varv rätt och avigt för att få till rätt utseende på väskan? Med vänlig hälsning, Anna-Lena
22.05.2025 - 00:04
Rita Scherma skrifaði:
Salve, dove posso trovare il modello per eseguire borsa? molto bella
01.04.2025 - 12:45DROPS Design svaraði:
Buonasera Rita, il modello della borsa è riportato proprio nella pagina da cui ha commentato. Buon lavoro!
01.04.2025 - 22:04
Cheryl skrifaði:
I love the style of this bag. I hope to knit it.
09.03.2025 - 06:11
Woodland Satchel#woodlandsatchelbag |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð taska úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í garðaprjóni og gatamynstri.
DROPS 256-3 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Aukið út í umferð sem er prjónuð brugðið þannig: * Prjónið 3 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar snúnar slétt – svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Í lokin er prjónuð axlaról sem er saumuð saman fyrir miðju. TASKA: Fitjið upp 120 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Paris. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 60 lykkjur (= í hvora hlið á tösku) og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið GARÐAPRJÓN prjónað í hring – lesið útskýringu að ofan – jafnframt í umferð 4 er aukið út hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út í 4. Hverri umferð alls 4 sinnum = 136 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til prjónaðar hafa verið alls 20 umferðir í garðaprjóni. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið þar til stykkið mælist 31 cm. Prjónið 3 cm garðaprjón hringinn yfir allar lykkjur. Í næstu umferð er prjónuð axlaról þannig: Prjónið 5 fyrstu lykkjur í umferð í garðaprjóni, fellið af næstu 58 lykkjur, notið prjóna 3,5 og prjónið garðaprjón fram og til baka yfir næstu 10 lykkjur fyrir axlaról (aðrar lykkjur eru látnar hvíla á hringprjóninum), fellið af og klippið þráðinn þegar axlarólin mælist ca 30 cm (= hálf axlaról). Fellið af næstu 58 lykkjur í umferð, notið prjón 3,5 og prjónið garðaprjón fram og til baka yfir síðustu 10 lykkjur fyrir axlaról, fellið af og klippið þráðinn þegar axlarólin mælist ca 30 cm (= hálf axlaról). FRÁGANGUR: Saumið axlarólina saman innan við affellingarkantinn. Leggið töskuna flata með merkiþræðina í hvorri hlið á töskunni og saumið botninn saman innan við uppfitjunarkantinn. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #woodlandsatchelbag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 256-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.