Eveline Piehler skrifaði:
Habe von jeder Farbe außer der Farbe snow 2 Knäuel übrig. Die Decke entspricht den angebenen Maßen. Kann ich die restliche Wolle zurück geben?
13.05.2025 - 13:13
Pia skrifaði:
Hallo. Bei Rand um die Decke steht: 1. Runde .... Frage: Gibt es dann auch eine zweite Runde? Evtl in festen Maschen?
10.03.2025 - 21:01DROPS Design svaraði:
Liebe Pia, der Rand besteht aus nur 1 Runde Stäbchen, aber sicher können Sie auch eine extra Runde mit feste Maschen häkeln (dafür beachten, daß Sie genügend Garne dafür haben). Viel Spaß beim Häkeln!
12.03.2025 - 08:16
Gretha Brander skrifaði:
Wat kost het paket van block party intotaal
09.02.2025 - 10:31DROPS Design svaraði:
Het bestellen van garens en vragen daarover gaat via een van de verkooppunten die onze artikelen verkopen; wij verkopen geen garens via de site. Via deze link vind je een lijst met verkooppunten.
11.02.2025 - 21:18
Block Party Blanket#blockpartyblanket |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Heklað teppi með ferningum úr DROPS Snow.
DROPS 256-2 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.x sýnir hvernig umferðin byrjar og endar – A.x er heklað í stað fyrstu lykkju í fyrstu einingu í A.1. Mynsturteikning A.2 sýnir staðsetningu á ferningum. LITASKIPTI: Til að fá falleg litaskipti þegar skipt er um lit, heklið keðjulykkju í lok umferðar með nýja litnum sem skipta á yfir í. LITIR: Ferningarnir eru heklaðir með einni umferð fastalykkjum yst í litnum natur. Þ.e.a.s. umferð 1 til 4 er hekluð í einum af litunum að neðan, síðan er 5. umferðin hekluð í litnum natur. Heklaðir eru 5 ferningar í hverjum lit. FERNINGUR 1: litur 102, marshmallow FERNINGUR 2: litur 31, pastelblár FERNINGUR 3: litur 106, límonaði FERNINGUR 4: litur 107, ferskjubleikur FERNINGUR 5: litur 51, púðurbleikur FERNINGUR 6: litur 108, pistasíuís FERNINGUR 7: litur 110, ljós ferkja ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Heklaðir eru 5 ferningar í hverjum af litunum, en síðasta umferðin á hverjum ferningi er hekluð í litnum natur. Síðan eru ferningarnir heklaðir saman og heklaður er kantur í kringum allt teppið í litnum natur. TEPPI: Notið heklunál 8 og DROPS Snow. Lesið LITIR í útskýringu að ofan og heklið ferninga eftir mynsturteikningu A.1 þannig: Heklið 7 loftlykkjur og tengið saman í loftlykkjuhring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið A.1 alls 4 sinnum í umferð. Heklið svona þar til heklaðar hafa verið alls 4 umferðir. Lesið LITASKIPTI og heklið síðustu umferð í mynsturteikningu í litnum natur. Heklið 5 ferninga í hverjum lit. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar allir ferningarnir hafa verið heklaðir til loka, hafa verið heklaðir 35 ferningar. FRÁGANGUR: Leggið ferningana út eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2, passið uppá að allir liggi með réttuna upp. Númerin í mynsturteikningu vísa til númera sem útskýrt er í LITIR. Ferningarnir eru fyrst heklaðir á breiddina og síðan á lengdina. Notið heklunál 8 og litinn natur til að hekla ferningana saman þannig: Leggið 2 ferninga kant í kant svo hægt sé að hekla þá saman. Byrjið í horni og heklið í hverja lykkju þannig: * Stingið heklunálinni frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann á öðrum ferningnum, síðan er heklunálinni stungið frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann á hinum ferningnum, sækið þráðinn og þræðið í gegnum báðar lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* þar til þessir 2 ferningar hafa verið heklaðir saman meðfram hlið á ferningi, heklið 1 loftlykkju og heklið síðan frá *-* meðfram næstu 2 ferningum á sama hátt. Heklið með þessum hætti þar til allir ferningarnir í þessari röð hafa verið heklaðir saman. Heklið saman allar raðirnar á breiddina. Þegar allar raðirnar með ferningum hafa verið heklaðar saman á breiddina, heklið allar raðirnar saman á lengdina á sama hátt. KANTUR Í HRINGUM TEPPIÐ: Notið heklunál 8 og litinn natur. UMFERÐ 1: Heklið á sama hátt og í A.1 og byrjið umferð ca fyrir miðju á einum af ferningunum. Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, í hverja samskeytum á milli 2 ferninga eru heklaðir 3 stuðlar (= 1 stuðull um loftlykkjuboga í horni í lokin á ferningi, 1 stuðull í samskeytum þar sem heklað var saman á milli þessa og næsta fernings og 1 stuðul í horni í byrjun á næsta ferningi). Í hornið á teppi eru heklaðir 3 stuðlar, 3 loftlykkjur og 3 stuðlar. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blockpartyblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 256-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.