Bettina skrifaði:
Bonjour, pour les bordures I-CORD "placé le fil devant" est-ce vers moi ou systématiquement SUR LE DEVANT du tricot ?? Merci beaucoup.
31.10.2024 - 09:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Bettina, tout à fait, retrouvez cette technique en vidéo ici. Bon tricot!
31.10.2024 - 15:44
Lone skrifaði:
Der står indledningsvist, at man skal bruge rundp 4,0 og 5,0 men i opskriften bruges der også rundp 4,5. Er dette korrekt?
20.10.2024 - 11:38DROPS Design svaraði:
Hei Lone. Pinne 4,0 og 5,0 er riktig. Vi skal få ordnet 4,5 til 5,0 asap. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh DROPS Design
23.10.2024 - 11:30
Sibille skrifaði:
Super Anleitung, sehr leicht zu verstehen.
09.10.2024 - 14:37
Katie skrifaði:
Are the decrease instructions for the v-neck correct? it says to decrease the same way as the armholes, but this doesn't seem right. I'm working on the right front section and according to the instructions I knit 9 stitches then decrease. Based on the photos I think it's meant to be 2 stitches then decrease.
02.10.2024 - 23:09DROPS Design svaraði:
Hi Kid, The instruction means you decrease using the same method (see DecreaseTtip at top of pattern) as used when decreasing for the armholes. You decreases 1 stitch from the right side inside the 7 band stitches every 2nd row x 7. Hope this helps and happy knitting!
03.10.2024 - 06:58
Febe skrifaði:
I ingressen står stickor nr 5 mm. Och 17 m/ 10 cm. Men i mönstret står att man ska byta till stickorna 4,5 mm.
02.10.2024 - 15:55
Osanna Cremonesi skrifaði:
Casual gilet
09.08.2024 - 09:36
Snowfall Vest#snowfallvest |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónað vesti úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, skáhallandi öxl og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 252-31 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 11 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og prjónið út umferðina eins og áður. I-CORD AFFELLING: Í lok umferðer og eftir að síðasta lykkjan hefur verið prjónuð upp: Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjóni frá réttu. Lyftir þessum 3 nýju lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndast lítil snúru kantur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Ekki snúa stykkinu. Endurtakið UMFERÐ 1 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið eitt lítið spor sem bindur saman byrjun og lokin á I-cord kantinn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Framstykkið og bakstykkið er prjónað hvort fyrir sig. Stykkin eru saumuð saman á öxlum og saumaðar eru tölur til skrauts í hvorri hlið. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 96-104-112-120-136-144 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD. Prjónið þar til stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið sléttprjón og fækkið um 5-6-7-7-9-9 lykkjur jafnt yfir næstu 34-38-42-46-54-58 lykkjur, prjónið mynsturteikningu A.1 yfir næstu 14 lykkjur (aukið hefur verið út um 5 lykkjur í A.1), prjónið sléttprjón og fækkið um 5-6-7-7-9-9 lykkjur jafnt yfir næstu 34-38-42-46-54-58 lykkjur og prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður= 91-97-103-111-123-131 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu, kantar að framan eru prjónaðir eins og áður, sléttprjón og A.1 er prjónað yfir miðju 19 lykkjurnar. Prjónið síðan sléttprjón og kanta að framan eins og áður, en nú er prjónað A.2 yfir A.1 yfir miðju 19 lykkjurnar að loka máli. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, prjónið að auki 7-7-8-8-9-9 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið (þ.e.a.s. að kantur að framan er nú prjónaður yfir ystu 14-14-15-15-16-16 lykkjur í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm byrjar úrtaka fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. Fellið af 7-7-8-8-9-9 lykkjur í hvorri hlið = 77-83-87-95-103-113 lykkjur. Síðan er kantur að framan prjónaður eins og áður yfir ystu 7 lykkjur í hvorri hlið og lykkjum er fækkað fyrir handveg – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum í hverri 4-4-4-2-2-2 umferð þannig: 1 lykkja 1-2-3-5-8-11 sinnum í hvorri hlið = 75-79-81-85-89-91 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 49-51-52-54-55-57 cm – stillið af að prjónaðar séu minnst 3 umferðir eftir snúning í kaðli í A.2 og að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Nú er prjónað sléttprjón (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður) og fækkað er um 5 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.2 =70-74-76-80-84-86 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli. Nú er hvor öxl prjónuð til loka fyrir sig. HÆGRI ÖXL: = 27-29-29-31-32-33 lykkjur. Nú er prjónað sléttprjón og 7 kantlykkjur við handveg eins og áður, jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 7 sinnum = 20-22-22-24-25-26 lykkjur. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm (það eru eftir ca 3 cm að loka máli) fellið af fyrir skáhallandi öxl í byrjun hverrar umferðar frá röngu: Fellið af 5-5-5-6-6-6 lykkjur 3 sinnum, fellið síðan af síðustu 5-7-7-6-7-8 lykkjur. Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm. VINSTRI ÖXL: = 27-29-29-31-32-33 lykkjur. Nú er prjónað sléttprjón og 7 kantlykkjur við handveg eins og áður, jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 7 sinnum = 20-22-22-24-25-26 lykkjur. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm (það eru eftir ca 3 cm að loka máli) fellið af fyrir skáhallandi öxl í byrjun hverrar umferðar frá röngu: Fellið af 5-5-5-6-6-6 lykkjur 3 sinnum, fellið síðan af síðustu 5-7-7-6-7-8 lykkjur. Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm. BAKSTYKKI: Fitjið upp 96-104-112-120-136-144 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið þar til stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður JAFNFRAMT er fækkað um 10-12-14-14-18-18 lykkjur jafnt yfir lykkjur í stroffprjóni = 86-92-98-106-118-126 lykkjur. Nú er prjónað áfram í sléttprjóni með kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, prjónið að auki 7-7-8-8-9-9 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið (þ.e.a.s. að kantur að framan er nú prjónaður yfir ystu 14-14-15-15-16-16 lykkjur í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm byrjar úrtaka fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. Fellið af 7-7-8-8-9-9 lykkjur í hvorri hlið = 72-78-82-90-100-108 lykkjur. Síðan er kantur að framan prjónaður eins og áður yfir ystu 7 lykkjur í hvorri hlið og lykkjum er fækkað fyrir handveg – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum í hverri 4-4-4-2-2-2 umferð þannig: 1 lykkja 1-2-3-5-8-11 sinnum í hvorri hlið = 70-74-76-80-84-86 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af miðju 28-28-30-30-32-32 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. SKÁHALLANDI ÖXL: = 21-23-23-25-26-27 lykkjur. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli = 20-22-22-24-25-26 lykkjur. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm byrjar úrtaka fyrir skáhallandi öxl. Fellið af 5-5-5-6-6-6 lykkjur í hverri umferð frá hlið 3 sinnum, fellið síðan af síðustu 5-7-7-6-7-8 lykkjur. Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið 2 tölur til skrauts í hvorri hlið á vestinu, kantur að framan frá framstykki er lagður yfir kant að framan frá bakstykki, síðan eru tölurnar saumaðar niður í gegnum bæði lögin. Staðsetjið efstu töluna ca 1 cm frá handveg og staðsetjið næstu ca 9-10 cm neðan við. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu – byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 84 til 94 lykkjur meðfram kanti í hálsmáli með hringprjón 4. Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af með I-CORD AFFELLING – lesið útskýringu að ofan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowfallvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.