Roslyn skrifaði:
Hi, I was wondering about the instructions for the heels, it says "Knit the first 13-14-15 stitches and keep them on the needle for the heel, place the next 28-30-32 stitches on 1 thread, keep the last 13-14-15 stitches on the needle for the heel = 26-28-30 heel-stitches." But wouldn't that make the left side have 1 extra row of stitches than the right side? Or I’m misunderstanding. Thank you!
17.12.2024 - 12:02DROPS Design svaraði:
Dear Roslyn, correct but this is not visible as 1 row will be only approx. 0,29 cm in height. Happy knitting!
20.12.2024 - 08:18
Anja Toledo skrifaði:
Ik kan de instructie bij de magische cirkel niet begrijpen. Deze wordt gebruikt als je een sok breit en bij de teen begint. De magic loop snap ik wel.\r\nWie helpt?
28.11.2024 - 23:29DROPS Design svaraði:
Dag Anja,
Helaas begrijp ik je vraag niet bij dit patroon. Je eindigt de sokken bij de teen en in het patroon wordt volgens mij niet over de magische cirkel gesproken. Deze magische cirkel techniek wordt overigens vaak bij het starten van haken gebruikt om een gaatje in het midden van de cirkel dicht te krijgen.
01.12.2024 - 13:18
Kikki skrifaði:
Mycket roligt mönster att sticka! Gick fort även för en som inte har stickat så länge, stickade på rundstickor.
18.08.2024 - 21:12
TERESA skrifaði:
¿Puedo hacer este patrón con agujas circulares? ¿Habria algún cambio en las instrucciones? Gracias.
02.03.2024 - 17:28DROPS Design svaraði:
Hola Teresa, podrías usar una aguja circular con la técnica círculo mágico: https://www.garnstudio.com/video.php?id=120&lang=es, pero puede ser más incómodo, porque son muy pocos puntos. No hay ningún cambio en las instrucciones.
03.03.2024 - 19:57
Mushroom Season Socks#mushroomseasonsocks |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í marglitu mynstri með sveppum og berjum. Stærð 35- 43. Þema: Jól.
DROPS 242-66 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg að sokkarnir missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í einu númeri grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-16-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi/legg niður að tá. STROFF - LEGGUR: Fitjið upp 64-72-76 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum ljós beige í DROPS Nord. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (mitt að aftan). Prjónið stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-8-12 lykkjur jafnt yfir = 56-64-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 alls 7-8-8 sinnum hringinn á stroffi / legg. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, haldið áfram með litnum ljós beige og sléttprjón þar til stykkið mælist 16-17-18 cm frá uppfitjunarkanti – jafnframt í umferð 2 með litnum ljós beige á eftir síðasta mynsturbekk, fækkið um 2-6-2 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62 lykkjur. Nú er prjónaður hæll og fótur með litnum ljós beige eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 13-14-15 lykkjur og haldið eftir lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 28-30-32 lykkjur á þráð og haldið eftir síðustu 13-14-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 26-28-30 hællykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 6-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA – lesið útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 14-16-16 hællykkjur, prjónið upp 16-16-17 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjón eins og áður yfir 28-30-32 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 16-16-17 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl = 74-78-82 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við miðju 28-30-32 lykkjur ofan á fæti. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur og fækkið lykkjum í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti snúið slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 4 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 10 sinnum = 46-50-54 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 18-19-20 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Nú eru eftir 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 23-25-27 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA (4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum, síðan í hverri umferð alls 6-3-2 sinnum = 6-10-10 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið að þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-26 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mushroomseasonsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 242-66
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.