BROIGNART skrifaði:
Bonjour Je ne sais pas combien de pelotes il faut pour réaliser une taille 42
09.06.2023 - 10:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Broignart, vous trouverez les quantités requises pour chaque taille au poids, en haut de page, autrement dit, il faut par exemple 250 g DROPS Muskat / 50 g la pelote = 5 pelotes en taille S et en taille M; 300 g / 50 g = 6 pelotes en taille L et en taille XL etc... Pour trouver votre taille, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez les mesures à celles du schéma du bas de page. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
09.06.2023 - 13:27
Monica skrifaði:
Atemporelle
20.01.2023 - 09:04
Beach Rendezvous Top#beachrendezvoustop |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Muskat. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-29 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju / stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er byrjað með 3 loftlykkjur (þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls). Þegar heklað er í hring, snúið við í hverri umferð og heklað er fram og til baka í umferð til skiptis 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu. Þetta er gert til að áferðin verði alveg eins þegar heklað er fram og til baka og þegar heklað er í hring. Byrjið umferð með 3 loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. ÚTAUKNING: Þegar auka á út um 1 stuðul, heklið 2 stuðla í 1 stuðul (aukið út innan við 1 stuðul í hvorri hlið). Þegar aukið er út um 2 stuðla eru heklaðir 2 stuðlar í hvorn af næstu 2 stuðlum (aukið út innan við 1 stuðul í hvorri hlið). ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næstu lykkju / um loftlykkju og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 stuðull færri). -------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hvor öxl er fyrst hekluð fram og til baka hvor fyrir sig, ofan frá og niður. Stykkið er sett saman við handveg, síðan er stykkið heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð og heklað er fram og til baka í umferð til að áferðin verði eins allan tímann. FRAMSTYKKI: Hægri öxl: Heklið 20-21-21-22-22-23 loftlykkjur – lesið LOFTLYKKJA, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er heklaður 1 stuðull í hverja og eina af næstu 16-17-17-18-18-19 loftlykkjum = 17-18-18-19-19-20 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 10-10-10-10-12-12 cm (endið eftir umferð frá réttu), klippið þráðinn og geymið stykkið. Vinstri öxl: Heklið 20-21-21-22-22-23 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er heklaður 1 stuðull í hverja af næstu 16-17-17-18-18-19 loftlykkjum = 17-18-18-19-19-20 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar stykkið mælist ca 10-10-10-10-12-12 cm heklið næstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af 17-18-18-19-19-20 stuðlum á vinstri öxl, heklið 28-28-30-30-32-34 loftlykkjur (hálsmál), heklið 1 stuðul í hvern af 17-18-18-19-19-20 stuðlum á hægri öxl. Nú eru 62-64-66-68-70-74 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðli í hverja lykkju, í fyrstu umferð byrjar útaukning í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING. Það er aukið út í hverri umferð þannig: Aukið út um 1 stuðul 3-4-4-4-0-0 sinnum, síðan er aukið út um 2 stuðla 2-3-4-5-9-10 sinnum = 76-84-90-96-106-114 stuðlar. Þegar útaukningu er lokið, mælist stykkið ca 17-19-21-22-23-24 cm, haldið e.t.v. áfram með 1 stuðul í hvern stuðul að réttu máli. Endið eftir umferð frá röngu. Geymið stykkið og heklið bakstykki. BAKSTYKKI. Vinstri öxl: Heklið 20-21-21-22-22-23 heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er heklaður 1 stuðull í hverja af næstu 16-17-17-18-18-19 loftlykkjum = 17-18-18-19-19-20 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum. Þegar stykkið mælist ca 3 cm (endið með umferð frá réttu), klippið þráðinn og geymið stykkið. Hægri öxl: Heklið 20-21-21-22-22-23 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er heklaður 1 stuðull í hverja af næstu 16-17-17-18-18-19 loftlykkjum = 17-18-18-19-19-20 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar stykkið mælist ca 3 cm cm heklið næstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af 17-18-18-19-19-20 stuðlum á hægri öxl, heklið 28-28-30-30-32-34 loftlykkjur (hálsmál), heklið 1 stuðul í hvern af 17-18-18-19-19-20 stuðlum á vinstri öxl. Nú eru 62-64-66-68-70-74 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðli í hverja lykkju. Þegar stykkið mælist 11-11-11-11-13-13 cm frá öxl, byrjar útaukning í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING. Það er aukið út í hverri umferð þannig: Aukið út um 1 stuðul 3-4-4-4-0-0 sinnum, síðan er aukið út um 2 stuðla 2-3-4-5-9-10 sinnum = 76-84-90-96-106-114 stuðlar. Þegar útaukningu er lokið, mælist stykkið ca 17-19-21-22-23-24 cm, haldið e.t.v. áfram með 1 stuðul í hvern stuðul að réttu máli. Endið með umferð frá röngu. Í næstu umferð frá réttu er heklað þannig: Heklið stuðla eins og áður yfir lykkjur á bakstykki, heklið 6-6-8-10-12-14 loftlykkjur, heklið stuðla eins og áður yfir lykkjur á framstykki, heklið 6-6-8-10-12-14 loftlykkjur, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á bakstykki = 164-180-196-212-236-256 lykkjur. Héðan er nú stykkið mælt! Snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja af fyrstu 3-3-4-5-6-7 loftlykkjum, umferðin byrjar nú hér. Stykkið er nú heklað áfram hringinn, heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hverja loftlykkju – lesið HEKLLEIÐBEININGAR. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-10-12-14 nýja stuðla í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki (4 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku á sama hátt þegar stykkið mælist 6 og 8 cm = 152-168-184-200-224-244 stuðlar. Þegar stykkið mælist 10 cm, fækkið um 8-12-12-12-12-12 stuðla jafnt yfir í umferð = 144-156-172-188-212-232 stuðlar. Heklið A.1 yfir alla stuðla. Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 23 cm. Heklið eina umferð þannig: Heklið 1 fastalykkju um fyrstu loftlykkju, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Toppurinn mælist alls ca 40-42-44-45-47-48 cm. Klippið þráðinn og festið. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant þannig að saumurinn verði ekki þykkur. KANTUR: Heklið kant í kringum hálsmál og í kringum handveg með heklunál 4 þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 3. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið fram ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* út umferðina og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun á umferð. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #beachrendezvoustop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.