Beach Rendezvous#beachrendezvousdress |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður kjóll úr DROPS Muskat. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-35 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er byrjað með 3 loftlykkjum (þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðul). Í hverri umferð með fastalykkjum er byrjað með 1 loftlykkju (þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju). Þegar heklað er í hring, snúið við í hverri umferð og heklið fram og til baka í umferð til skiptis með 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu. Þetta er gert til að áferðin verði alveg eins þegar heklað er fram og til baka og þegar heklað er í hring. Byrjið umferð með 3 loftlykkjum og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. ÚTAUKNING: Þegar auka á út um 1 stuðul, heklið 2 stuðla í 1 stuðul (aukið út innan við 1 stuðul í hvorri hlið). Þegar aukið er út um 2 stuðla eru heklaðir 2 stuðlar í hvorn af næstu 2 stuðlum (aukið út innan við 1 stuðul í hvorri hlið). ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næstu lykkju / um loftlykkju og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 stuðull færri). -------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hvor öxl er fyrst hekluð fram og til baka hvor fyrir sig, ofan frá og niður. Stykkið er sett saman við handveg, síðan er stykkið heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð og heklað er fram og til baka í umferð til að áferðin verði eins alla leið. FRAMSTYKKI: Hægri öxl: Heklið 20-21-21-22-22-23 loftlykkjur – lesið LOFTLYKKJA, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er heklaður 1 stuðul í hverja af næstu 16-17-17-18-18-19 loftlykkjum = 17-18-18-19-19-20 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 10-10-10-10-12-12 cm (endið eftir umferð frá réttu), klippið þráðinn og geymið stykkið. Vinstri öxl: Heklið 20-21-21-22-22-23 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er heklaður 1 stuðul í hverja af næstu 16-17-17-18-18-19 loftlykkjum = 17-18-18-19-19-20 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar stykkið mælist ca 10-10-10-10-12-12 cm heklið næstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af 17-18-18-19-19-20 stuðlum í vinstri öxl, heklið 28-28-30-30-32-34 loftlykkjur (hálsmál), heklið 1 stuðul í hvern af 17-18-18-19-19-20 stuðlum á hægri öxl. Nú eru 62-64-66-68-70-74 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum, í fyrstu umferð byrjar útaukning í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING. Aukið út um 1 stuðul 3-4-4-4-0-0 sinnum, síðan er aukið út um 2 stuðla 2-3-4-5-9-10 sinnum = 76-84-90-96-106-114 stuðlar. Þegar útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 17-19-21-22-23-24 cm, haldið e.t.v. áfram með 1 stuðul í hvern stuðul að réttu máli. Endið eftir umferð frá röngu. Geymið stykkið og heklið bakstykki. BAKSTYKKI: Vinstri öxl: Heklið 20-21-21-22-22-23 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er heklaður 1 stuðul í hverja af næstu 16-17-17-18-18-19 loftlykkjum = 17-18-18-19-19-20 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum. Þegar stykkið mælist ca 3 cm (endið eftir umferð frá réttu), klippið þráðinn og geymið stykkið. Hægri öxl: Heklið 20-21-21-22-22-23 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er heklaður 1 stuðul í hverja af næstu 16-17-17-18-18-19 loftlykkjum = 17-18-18-19-19-20 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar stykkið mælist ca 3 cm, heklið næstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af 17-18-18-19-19-20 stuðlum í hægri öxl, heklið 28-28-30-30-32-34 loftlykkjur (hálsmál), heklið 1 stuðul í hvern af 17-18-18-19-19-20 stuðlum á vinstri öxl. Nú eru 62-64-66-68-70-74 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum. Þegar stykkið mælist 11-11-11-11-13-13 cm frá öxl, byrjar útaukning í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING. Aukið út um 1 stuðul 3-4-4-4-0-0 sinnum, síðan er aukið út um 2 stuðla 2-3-4-5-9-10 sinnum = 76-84-90-96-106-114 stuðlar. Þegar útaukningar hafa verið gerðar til loka, mælist stykkið ca 17-19-21-22-23-24 cm, haldið e.t.v. áfram með 1 stuðul í hvern stuðul að réttu máli. Endið eftir umferð frá röngu. Í næstu umferð frá réttu er heklað þannig: Heklið stuðla eins og áður yfir lykkjur á bakstykki, heklið 6-6-8-10-12-14 loftlykkjur, heklið stuðla eins og áður yfir lykkjur á framstykki, heklið 6-6-8-10-12-14 loftlykkjur, setjið stykkið saman með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á bakstykki = 164-180-196-212-236-256 lykkjur. Stykkið er nú mælt héðan! Snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja af fyrstu 3-3-4-5-6-7 loftlykkjum, umferðin byrjar hér. Stykkið er nú heklað í hring, heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-10-12-14 nýja stuðla í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki (4 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku alveg eins þegar stykkið mælist 6 og 8 cm = 152-168-184-200-224-244 stuðlar. Þegar stykkið mælist 10 cm, fækkið um 8-12-12-12-12-12 stuðla jafnt yfir í umferð = 144-156-172-188-212-232 stuðlar. Heklið A.1 yfir allar stuðla. Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 23 cm. Haldið áfram með stuðla. Þegar stykkið mælist 25 cm, aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir í umferð, aukið út með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 8 sinnum. ATH! Passið uppá að útaukningar komi ekki á sama stað = 208-220-236-252-276-296 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-52-53-55-57-58 cm, heklið A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, heklið 1 umferð með stuðlum þar sem aukið er út um 8-5-7-9-3-1 stuðla jafnt yfir = 216-225-243-261-279-297 stuðlar. Heklið A.3 hringinn yfir allar lykkjur. Klippið þráðinn og festið þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Stykkið mælist ca 68-69-70-72-74-75 cm frá þar sem framstykkið og bakstykkið var sett saman og 85-88-91-94-97-99 cm alls frá öxl. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant svo saumurinn verði ekki þykkur. KANTUR: Heklið kant í kringum hálsmál og í kringum handveg með heklunál 4 þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 3. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið fram ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* út umferðina og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun á umferð. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #beachrendezvousdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.