Monika skrifaði:
Cześć Zrobiłam torbę według tego wzoru, wyszła piękna z włóczki Drops Bellle tu polecanej. Jednak w użyciu bardzo się rozciąga nawet gdy włożyłam do niej tylko chleb. Czy można temu jakoś zapobiec? Chcę zrobić drugą w prezencie dla siostry. Pozdrawiam, Monika
07.08.2023 - 21:37DROPS Design svaraði:
Witaj Moniko, można zrobić wypełnienie z bawełnianej tkaniny pod kolor. Ewentualnie zrobić taką samą torbę tylko za pomocą mniejszego szydełka. Pozdrawiamy!
08.08.2023 - 21:17
Elsa skrifaði:
Ich habe es jetzt verstanden. Sie müssen nicht antworten.😊
09.06.2023 - 11:23
Elsa skrifaði:
Ich verstehe nicht, wie im Diagramm A1 nach der ersten Reihe (also nach 84 Maschen) die 2 Luftmaschen unterbringe, denn ich häkle diese und mache dann mit Stäbchen weiter, aber dann habe ich 4 Reihen mehr, also 9 und nicht 5 Reihen? Danke!
09.06.2023 - 08:54DROPS Design svaraði:
Liebe Elsa, häkeln Sie A.1 wie im Diagram gezeigt, A.1 ist insgesamt 5 Reihen, so nach der 1. Runde haben Sie 4 Mal A.1 in der Runde gehäkelt, und jetzt sind es noch 4 weiteren REihen zu häkeln. Die anderen Maschen häkeln Sie im Stäbchen wie bei der 1. Runde - oder misverstehe ich Ihre Frage?
09.06.2023 - 09:36
Ola skrifaði:
Zaczynam od 40 oczek łańcuszka, po przerobieniu 5 rzędów wzoru A1 i zamknięciu 4 slupkow mam na koniec 5. Rzędu 114 oczek a nie 144: 88 po 1., 94 po 2. 102 po 3., 110 po 4., 118-4 po 5.= 114. Jak mam dojść do 144 ?
20.05.2023 - 07:54DROPS Design svaraði:
Witaj Olu, w pierwszym okrążeniu masz (38 słupków x 2) + 4 oczka, od których będziesz wykonywać schemat A.1. Przerabiasz schemat A.1, a w pozostałe słupki przerabiasz słupki (1 słupek w każdy słupek). Każdy schemat A.1 na końcu liczy 18 słupków/słupków podwójnych (38x2)+(18x4)= 76+72=148 (-4 oczka, które równomiernie zamkniesz 5-tym okrążeniu = 144). Mam nadzieję, że pomogłam. Pozdrawiam!
22.05.2023 - 12:56
Marianne Patzer skrifaði:
Jeg er nået til 4 omgang i diagram A3. Jeg kan ikke forstå hvordan jeg skal starte omgangen, når jeg skal starte midt i en luftmaskebue?
29.04.2023 - 16:36DROPS Design svaraði:
Hei Marianne. Ved overgangene på omgangene vil du få en "strek" med luftmasker istedenfor staver og akkurat på 4. omgang må du starte med 3 luftmasker for å komme opp i høyden for så å fortsette mønstret. Så da starter du med 3 luftmasker + 1 luftmaske (1. maske du ser på 4.rad i diagrammet) + 15 staver + 2 luftmasker osv. Når du gjentar A.3 vil du ikke få denne "start -3- luftmaske-streken", det er kun på starten. mvh DROPS Design
02.05.2023 - 11:48
Jenny Peters skrifaði:
Square
19.01.2023 - 21:12
Véronique skrifaði:
Chic! Un sac au TRICOT . Merci .
18.01.2023 - 19:57
Diamond Bag#diamondbag |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Hekluð taska úr DROPS Belle eða DROPS Cotton Light. Stykkið er heklað neðan frá og upp með gatamynstri.
DROPS 238-5 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul, þ.e.a.s. hoppið yfir fyrstu lykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 næstu stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring neðan frá og upp með gatamynstri. Í lokin er hekluð axlaról. TASKA: Heklið 40 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Belle eða DROPS Cotton Light. Síðan er heklað eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og MYNSTUR og heklið í báðum hliðum á loftlykkjuröðinni þannig: Heklið A.1 í fyrstu loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 38 loftlykkjum, A.1 í næstu loftlykkju, snúið stykkinu þannig að nú sé hægt að heklað áfram meðfram hinni hliðinni á loftlykkjuröðinni þannig: Heklið A.1 í sömu loftlykkju og A.1 í hinni hliðinni, 1 stuðull í hverja af næstu 38 loftlykkjum, endið umferð með A.1 í sömu loftlykkju og A.1 í byrjun á loftlykkjuröðinni = 84 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð. UMFERÐ 2-5: Haldið áfram hringinn með A.1 og 1 stuðul í hvern stuðul – JAFNFRAMT í 5. umferð er fækkað um 4 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 144 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið A.2 alls 8 sinnum umferðina hringinn. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka, heklið A.3 alls 8 sinnum umferðina hringinn. A.3 er heklað alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist nú ca 34 cm – mælt frá loftlykkjuröð mitt undir töskunni. Heklið 3 umferðir með stuðlum (í fyrstu umferð er heklaður 1 stuðull í hvern stuðul og 1 stuðull um hverja loftlykkju, síðan er heklaður 1 stuðull í hvern stuðul í næstu 2 umferðum). Klippið þráðinn og festið. Stykkið mælist ca 38 cm – mælt frá loftlykkjuröð mitt undir tösku. Klippið þráðinn og festið. AXLARÓL: Heklið 7 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Belle eða DROPS Cotton Light. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni og 1 stuðul í hverja af þeim 3 loftlykkjum sem eftir eru = 5 stuðlar (fyrsti stuðull í hverri umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur). Heklið síðan stuðla fram og til baka þar til axlarólin mælist ca 60 cm. Nú er heklaður kantur í kringum axlarólina þannig: Heklið 1 fastalykkju um fyrstu stuðlaumferðina á langhlið, * 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu stuðlaumferð *, heklið frá *-* meðfram allri langhliðinni á axlarólinni, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju meðfram skammhlið, heklið frá *-* meðfram allri langhliðinni og endið með 1 fastalykkju í hverja lykkju meðfram hinni skammhliðinni. ATH: Ef kanturinn verður of stífur, er hægt að hekla fleiri loftlykkjur á milli fastalykkja. Klippið þráðinn og festið. Saumið axlarólina í hvora hlið á töskunni. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #diamondbag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 238-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.