Karolyn Clark skrifaði:
LOVE these socks!
08.12.2024 - 19:08
Linda Ratushenko skrifaði:
Please help . I keep looking for the option to save or print the pattern as you stated below the knitting gauge bu I'm not finding it thanks in advance
05.12.2024 - 19:39DROPS Design svaraði:
Hi Linda, at the top, to the right of the pattern title you will find the printer icon. Click here, you will see 'Print pattern'. Click here and then change the printer name for 'Save as PDF' in the drop-down menu. Happy knitting!
06.12.2024 - 09:30
Susanne Ommanney skrifaði:
Strikker i Karisma, følger mønsteret, men strømperne bliver ALT for store. Har forsøgt at strikke strammere, men så får jeg ufleksibel/hård strømpe. Øv
26.09.2023 - 12:24
Tonya skrifaði:
Loved these socks! My first time doing any color work as I'm new to knitting and I found the pattern easy enough to follow and keep on track. Thank you so much!
16.07.2023 - 15:22
Lorinda skrifaði:
In the past the Drops patterns had the option to print or to download as a pdf. Is this pdf option no longer available? Thank you
17.12.2022 - 17:56DROPS Design svaraði:
Dear Lorinda, there is a button for printing the pattern, just below the knitting tension. You can use the same button to download the pattern; just select "Save as PDF" instead of your printer when the prompt appears. Happy knitting!
18.12.2022 - 17:04
Melody Cook skrifaði:
Where are the diagrams?
30.11.2022 - 19:49DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Cook, you'll find the diagrams at the very bottom of the written pattern. Read more about diagrams here. Happy knitting!
01.12.2022 - 11:12
Santa Time Socks#santatimesocks |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í marglitu mynstri með jólasveinum og hjörtum. Stærð 35-43. Þema: Jól.
DROPS 234-65 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg að sokkarnir missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 12-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir tá): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi niður að tá. Lengdin á sokknum jafngildir lengd á fæti. Ef þú vilt að sokkurinn teygist aðeins þegar hann er mátaður, þá er hægt að prjóna aðeins styttri lengd áður en úrtakan byrjar fyrir tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 60-60-68 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum vínrauður í DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) jafnframt því sem prjónaðar eru rendur þannig: Prjónið 2 umferðir með litnum vínrauður, 2 umferðir með litnum ljós grár, 4 umferðir með litnum vínrauður. Stroffið mælist nú ca 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós grár þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 56-56-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 alls 7-7-8 sinnum hringinn á leggnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 alls 7-7-8 sinnum hringinn á leggnum. JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 8-0-8 lykkjur jafnt yfir = 48-56-56 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 alls 6-7-7 sinnum hringinn á leggnum. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 0-4-0 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56 lykkjur. Þegar stroffið og leggurinn mælist 15-16-16 cm, prjónið hæl og fót eins og útskýrt er að neðan með litnum ljós grár. HÆLL OG FÓTUR: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 12-13-14 lykkjur og haldið eftir þessum lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24-26-28 lykkjur á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 24-26-28 hællykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 6-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð. Stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 12-14-16 hællykkjur, prjónið upp 13-13-14 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjóni yfir 24-26-28 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 13-13-14 lykkjur meðfram hinni hlið á hælnum = 62-66-72 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 24-26-28 lykkjur ofan á fæti. Prjónið sléttprjón og fækkið lykkjum í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 4 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 6-6-7 sinnum = 42-46-50 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Nú eru eftir ca 4-5-5 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 21-23-25 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-7-6 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3-2-4 sinnum = 10 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-26 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #santatimesocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 234-65
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.