Hansi Koekkoek skrifaði:
Ik begrijp À.3A À.3B A.3C niet. Kunt u dit wat duidelijker uitleggen? Overigens een mooi patroon.
11.11.2022 - 22:36
Renate skrifaði:
Hallo nettes Drops Team. . Nun Meine Frage.Warum werden 18 maschen aufegnommen und dann wieder abgenommen: Wenn ich das Tuch verlängeren möchte bleibt es dann bei den 18 Maschen? Vielen lieben Dank
10.11.2022 - 20:24DROPS Design svaraði:
Liebe Renate, man braucht mehr Maschen für die Zöpfen in A.5 als für Glattrechts, deshalb werden 18 Maschen x 2 (36 Maschen insgesamt) zugenommen dann wieder abgenommen - ja nach die gewünschte Länge sollen Sie dann vielleicht mehr als 18 M x 2 abnehmen. Viel Spaß beim stricken!
11.11.2022 - 09:07
Teresa Andreani skrifaði:
Ci deve essere un errore sul FERRO 1 di fatto sono 2 gli aumenti e non 4 mentre sul FERRO 2 gli aumenti sono 4 e non 2 e quindi gli aumenti di 4 maglie risultano sul rovescio e non sul diritto
10.11.2022 - 12:27DROPS Design svaraði:
Buonasera Teresa, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto il testo del ferro 1: gli aumenti sono 4 per il ferro 1 e 2 per il ferro 2. Buon lavoro!
10.11.2022 - 21:58
Danielle Berthiaume skrifaði:
Très joli châle, j'adore ce design, la couleur il semble tellement doux et chaud. Merci de nous l'offrir
06.08.2022 - 07:11
Purlyplatypus skrifaði:
Guernsey spring
05.08.2022 - 07:36
Helene skrifaði:
Beautiful textures!
05.08.2022 - 01:59
Bente skrifaði:
Lige til de lange vinter aftner
04.08.2022 - 18:19
Winter Lines#winterlinesshawl |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri.
DROPS 234-46 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við í hvorri hlið á sjali): Aukið er út bæði frá réttu og frá röngu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við ystu lykkju í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt/brugðið eftir mynstri (það eiga að myndast göt). ÚTAUKNING-2 (mitt í sjali): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki. Uppslátturinn er prjónaður þannig – frá röngu: Á UNDAN LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstra prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni inn aftan í lykkjuna þegar hún er sett til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Vegna lykkjufjöldans getur verið gott að skipta lykkjunum á fleiri hringprjóna í sama grófleika jafnóðum og aukið er út. SJAL: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Daisy. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð – þetta er miðjulykkjan og miðjulykkjan er prjónuð í sléttprjóni að loka máli. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (rétta): 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, aukið út um 1 lykkju – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju – sjá ÚTAUKNING-2, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, aukið út um 1 lykkju – sjá ÚTAUKNING-1, endið með 1 lykkju í garðaprjóni (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju – munið eftir ÚTAUKNING-1, prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju (uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í ÚTAUKNING-2), prjónið miðjulykkju brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, aukið út um 1 lykkju – munið eftir ÚTAUKNING-1, endið með 1 lykkju í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 5 cm í prjónstefnu = ca 67 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú er mynstrið prjónað eftir mynsturteikningu eins og útskýrt er að neðan – lestu kaflann MYNSTUR að neðan, áður en þú prjónar áfram. JAFNFRAMT heldur útaukningin áfram alveg eins og áður, þ.e.a.s. aukið er út um 4 lykkjur frá réttu og 2 lykkjur frá röngu í gegnum allt stykkið. MYNSTUR: Byrjið hverja mynsturteikningu frá réttu, á eftir útaukningu í byrjun á umferð. Prjónið mynsturteikningu eins lengi og mögulegt er fram að miðjulykkju, þær lykkjur sem e.t.v. ganga ekki jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni / garðaprjóni fram að miðjulykkju. Aukið út hvoru megin við miðjulykkju eins og áður, prjónið jafnmargar lykkjur sléttprjón / garðaprjón á eftir miðjulykkju, byrjið mynsturteikningu þannig að mynstrið verði samhverft hvoru megin við miðjulykkju (A.3A og A.3C kemur ekki til með að verða alveg samhverft hvoru megin við miðjulykkju), prjónið mynsturteikningu fram að útaukningu í lok umferðar. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni, ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni og miðjulykkjan er prjónuð í sléttprjóni. Fylgið röðinni í mynsturteikningu eins og útskýrt er að neðan. Prjónið A.1 eins og útskýrt er að ofan þar til stykkið mælist 15 cm í prjónstefnu og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Nú eru ca 151 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 eins og útskýrt er að ofan. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru ca 181 lykkjur í umferð og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Prjónið A.3 eins og útskýrt er að ofan (þ.e.a.s. prjónið A.3A, A.3B er prjónað alls 10 sinnum, A.3C og e.t.v. þær lykkjur sem eftir eru á undan miðjulykkju í sléttprjóni – á eftir miðjulykkju eru prjónaðar jafnmargar lykkjur sléttprjón og á undan miðjulykkju, síðan er mynstrið prjónað alveg eins, þ.e.a.s. A.3A, A.3B alls 10 sinnum, A.3C). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, eru ca 235 lykkjur í umferð og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Prjónið A.4 eins og útskýrt er að ofan – jafnframt í næst síðustu umferð er aukið út um 36 lykkjur jafnt yfir (18 lykkjur hvoru megin við miðjulykkju). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, eru ca 325 lykkjur í umferð og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Prjónið A.5 eins og útskýrt er að ofan. A.5 er prjónað alls 2 sinnum á hæðina. Eftir A.5 eru ca 373 lykkjur í umferð og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með útaukningu eins og áður og 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður – jafnframt í fyrstu umferð (rétta) er fækkað um 36 lykkjur jafnt yfir (18 lykkjur hvoru megin við miðjulykkju) = ca 343 lykkjur í umferð og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Síðan eru prjónaðar 14 umferðir garðaprjón fram og til baka (miðjulykkjan er prjónuð í sléttprjóni) og aukið er út alveg eins og áður. Eftir síðustu umferð frá röngu eru ca 385 lykkjur í umferð. Sjalið mælist ca 38 cm í prjónstefnu. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum frá réttu. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterlinesshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 234-46
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.