DROPS Super Sale - 30 % AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni í allan júlí!
Product image DROPS Air yarn
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8844.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Hazy Dew Vest

Heklað vesti úr DROPS Air. Stykkið er heklað neðan frá og upp með V-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 236-39

#hazydewvest

DROPS Design: Mynstur ai-401
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-350-400-450-450 g litur 10, þoka

DROPS TALA NR 623: 4 stykki í allar stærðir.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8844.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum, þessar 3 loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul, þ.e.a.s. hoppið yfir fyrsta stuðul frá fyrri umferð. Síðasti stuðullinn í umferð er heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð.
Í kanti í kringum handveg (2. umferð) er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (kantar að framan).

ÚRTAKA-1 (á við um handveg):
Í byrjun á umferð: Skiptið út þeim lykkjum sem fækka á um með 1 keðjulykkju.
Í lok umferðar: Ekki er heklað yfir þann fjölda lykkja sem á að fækka um.

ÚRTAKA-2 (á við um V-hálsmál):
Fækkið lykkjum innan við ystu 6 lykkjur við hálsmál. Þ.e.a.s. lykkjum er fækkað í lok umferðar, heklið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, fækkið um 1 stuðul eins og útskýrt er að neðan, heklið síðustu 6 lykkjur eins og áður.
Þegar fækka á lykkjum í byrjun á umferð, heklið fyrstu 6 lykkjur eins og áður, síðan er fækkað um 1 stuðul eins og útskýrt er að neðan.
HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN Í 1 STUÐUL ÞANNIG (1 stuðull færri):
Heklið 1 stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næstu lykkju, dragið síðan uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

HNAPPAGAT:
Fækkið lykkjum fyrir hnappagati í hægri kanti að framan frá miðju að framan þannig: Heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, heklið næstu 2 stuðla saman (sjá ÚRTAKA-2), 1 loftlykkja, heklið síðan áfram eins og áður.
Fækkið lykkjum fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
S: 17, 23, 29 og 35 cm
M: 18, 24, 30 og 36 cm
L: 16, 23, 30 og 37 cm
XL: 17, 24, 31 og 38 cm
XXL: 18, 25, 32 og 39 cm
XXXL: 16, 24, 32 og 40 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkin eru hekluð fram og til baka hvert fyrir sig, neðan frá og upp.
Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er heklaður kantur í kringum báða handvegi.

BAKSTYKKI:
Sjá LOFTLYKKJA og HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 68-74-80-88-96-104 loftlykkjur með heklunál 5 með DROPS Air.
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju = 66-72-78-86-94-102 stuðlar (meðtaldar 3 loftlykkjur í byrjun á umferð).
Heklið síðan stuðla fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, byrjar úrtaka fyrir handvegi. Klippið þráðinn og festið.
Nú er hekluð 1 umferð með stuðlum yfir miðju 60-66-70-78-84-92 stuðla (3-3-4-4-5-5 lykkjur færri í hvorri hlið fyrir handveg).
Fækkið síðan um 1 lykkju fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð 0-0-0-3-3-6 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 2-3-4-4-5-5 sinnum – sjá ÚRTAKA-1 = 56-60-62-64-68-70 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm. Hvor öxl er hekluð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð):
Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 15-16-17-17-19-19 lykkjur, heklið A.1, snúið stykkinu. Heklið svona fram og til baka yfir þessar 20-21-22-22-24-24 lykkjur þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Klippið þráðinn og festið.

VINSTRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð):
Byrjið frá sömu hlið sem byrjun á hægri öxl, hoppið yfir fyrstu 16-18-18-20-20-22 lykkjur á eftir hægri öxl, heklið A.2 yfir fyrstu 5 lykkjurnar, heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul af síðustu 15-16-17-17-19-19 lykkjum. Heklið svona fram og til baka yfir þessar 20-21-22-22-24-24 lykkjur þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Klippið þráðinn og festið.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Heklið 40-43-46-50-54-58 loftlykkjur með heklunál 5 með DROPS Air.
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju = 38-41-44-48-52-56 stuðlar (meðtaldar 3 loftlykkjur í byrjun á umferð). Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig (miðja að framan): A.2 (kantur að framan), 1 stuðull í hverja af næstu 33-36-39-43-47-51 lykkjum. Haldið svona áfram fram og til baka – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg alveg eins og á bakstykki, þ.e.a.s. fækkið um 3-3-4-4-5-5 lykkjur 1 sinni, fækkið síðan um 1 lykkju í hverri umferð 0-0-0-3-3-6 sinnum, að lokum 1 lykkja í annarri hverri umferð 2-3-4-4-5-5 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli.
Fækkið lykkjum innan við A.2 + 1 lykkja – sjá ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 stuðul í hverri umferð 10-11-11-11-11-11 sinnum, fækkið síðan um 1 stuðul í annarri hverri umferð 3-3-3-4-4-5 sinnum.

Eftir alla úrtöku fyrir handveg og V-hálsmáli eru 20-21-22-22-24-24 lykkjur eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Klippið þráðinn og festið.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):

Heklið 40-43-46-50-54-58 loftlykkjur með heklunál 5 með DROPS Air.
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju = 38-41-44-48-52-56 stuðlar (meðtaldar 3 loftlykkjur í byrjun á umferð). Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig (hlið): 1 stuðull í hverja af fyrstu 33-36-39-43-47-51 lykkjum, A.1 (kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg alveg eins og á hægra framstykki.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli.
Fækkið lykkjum innan við A.1 + 1 lykkja – sjá ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 stuðul í hverri umferð 10-11-11-11-11-11 sinnum, fækkið síðan um 1 stuðul í annarri hverri umferð 3-3-3-4-4-5 sinnum.

Eftir alla úrtöku fyrir handveg og V-hálsmáli eru 20-21-22-22-24-24 lykkjur eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Klippið þráðinn og festið.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma kant í kant. Saumið hliðarsauma kant í kant, en skiljið eftir ca 18 cm fyrir klauf neðst í hvorri hlið.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

KANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Heklið kant í kringum báða handvegi. Byrjið neðst í botni á handvegi og heklið með heklunál 4 þannig:
UMFERÐ 1: * Heklið 1 fastalykkju mitt í fyrstu/næstu stuðlaumferð, 3 loftlykkjur, hoppið yfir eina stuðlaumferð / ca 2 cm * heklið frá *-* í kringum allan handveginn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.
UMFERÐ 2: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjuboga, heklið síðan 3 stuðla um hvern af fyrstu 4 loftlykkjubogum, heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga fram að miðju 8 loftlykkjubogum yfir öxl, heklið 3 stuðla um hvern af 8 loftlykkjubogum, heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga þar til 4 loftlykkjubogar eru eftir neðst við handveg, heklið 3 stuðla um hvern af síðustu 3 loftlykkjubogum.
Heklið á sama hátt í kringum hinn handveginn.

Mynstur

1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan
1 stuðlakrókur-tvíbrugðinn stuðull (heklað frá réttu). Þ.e.a.s. heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um 1 stuðul frá fyrri umferð með stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, helur utan um sjálfan stuðulinn að framan) þannig: bregðið þræðinum 2 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um lykkjuna, sækið þráðinn, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 3 sinnum = 1 lykkja = 1 stuðlakrókur-tvíbrugðinn stuðull (heklað frá réttu). Þ.e.a.s. heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um 1 stuðul frá fyrri umferð með stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, helur utan um sjálfan stuðulinn að framan) þannig: bregðið þræðinum 2 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um lykkjuna, sækið þráðinn, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 3 sinnum = 1 lykkja
3 loftlykkjur (jafngildir 1 stuðli) = 3 loftlykkjur (jafngildir 1 stuðli)
byrjið í þessari umferð – fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð = byrjið í þessari umferð – fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð
Diagram for DROPS 236-39
Diagram for DROPS 236-39
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hazydewvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Hania skrifaði:

Chciałabym się dowiedzieć co oznacza to zdanie: Teraz zacząć podkroje rękawów, przerabiając rząd słupków tylko ponad 60-66-70-78-84-92 słupkami środkowymi (zamkniętych 3-3-4-4-5-5 oczek z każdej strony). Gdzie znajduje się 92 słupek środkowy? i co ogólnie oznacza wklejone powyżej zdanie.

16.03.2025 - 18:41

DROPS Design svaraði:

Witaj Haniu, teraz zaczynasz od nowej nitki (poprzednio odcięłaś nitkę), zaczynasz przerabiać od 6-tego oczka i przerabiasz słupki (dokładnie 92 słupki) jak wcześniej, kończysz ten rząd gdy zostaje 5 oczek do końca rzędu. W ten sposób otrzymasz wcięcia na podkroje rękawów. Dalej przerabiaj wg wzoru. Pozdrawiamy!

18.03.2025 - 08:22

country flag Lou skrifaði:

Bonjour, Début des emmanchures : j’ai réalisé les 70 brides centrales (taille L). Je ne comprends pas les instructions pour diminuer. Dois-je enlever 0 maille (donc rien) de chaque côté tous les rangs puis 4 mailles de chaque côté tous les 2 rangs (soit 8 mailles) ? Sauf que j’ai l’impression que le travail diminue trop vite, je n’atteins pas les 63 cm. Merci pour votre aide

23.02.2025 - 19:17

DROPS Design svaraði:

Bonjour Lou, quand vous voyez un "0" pour votre taille, passez simplement cette information pour aller à la suivante, autrement dit, en taille L, vous diminuez pour les emmanchures 4 fois 1 maille tous les 2 rangs, soit 70-(2x4)=62 mailles. Bon crochet!

24.02.2025 - 09:19

country flag Frieda skrifaði:

Rubriek tip minderen-2 voor de V-hals: kan je hierna verduidelijken “ minder ad binnenkant vd buitenste 6 steken richting hals; dus als u mindert ah einde vd toer, haakt u tot er 8 steken over zijn, …

19.01.2025 - 20:53

DROPS Design svaraði:

Dag Frieda,

Je mindert zeg maar naast de 6 steken van de hals en door de 2 steken vlak daarvoor samen te haken.

20.01.2025 - 20:19

country flag Monica Berta skrifaði:

Buenas tardes, me gustaría convertir este chaleco en una chaqueta: me pueden orientar acerca de cómo hacer eso posible? Si me puedo referir a algún otro modelo para hacer las mangas o si bastaría simplemente con hacer unas mangas rectas y adaptar el escote de las mangas. Gracias por sus comentarios.

01.01.2025 - 19:18

DROPS Design svaraði:

Hola Monica, nosotros no hacemos patrones personalizados, pero puedes ver el modelo Silver Moon Cardigan /252-19: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=11956&cid=23. Se trata de una chaqueta a ganchillo hecha con DROPS Air, así que deberías poder extraer las instrucciones de las mangas y el cuello y aplicarlas a este chaleco.

05.01.2025 - 18:41

country flag Mowy skrifaði:

Bonjour Madame, Je me suis mal exprimée. J' ai fait l'assemblage épaules, côtés et suis arrivée à "Bordure des emmanchures". C'est à partir de là que je suis perdue 1) Il est indiqué : "en commençant en bas de l'emmanchure" = est-ce là au niveau de ces 4 mailles que débute le travail ou c'est sur les brides juste au-dessus ? 2) Par : "/ du rang de brides suivant, crocheter 3 mailles en l’air, "= Je pique où pour former les 3 m en l'air? Bonne journée

20.06.2024 - 13:25

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Mowy, commencez la bordure de l'emmanchure en bas de l'emmanchure, au niveau de la couture entre le dos et le devant, autrement dit, vous commencerez effectivement par les 4 premières brides sautées pour le dos (emmanchure droite) / devant gauche (emmanchure gauche), vous remontez le long du dos/devant gauche jusqu'à l'épaule, vous redescendez ensuite le long du devant droit/dos pour terminer en bas de l'emmanchure. Le long des emmanchures, vous crochetez votre maille serrée autour de la bride, 2 cm après la maille serrée précédente. Bon crochet!

20.06.2024 - 15:12

country flag Mowy skrifaði:

Bonjour, j'ai crocheté le modèle Hazy Dew Vest en suivant vos explications mais je suis bloquée aux emmanchures. Je ne sais pas par où commencer. En bas de l'emmanchure, au début, il y a 1 diminution de 4 m. Que fait-on d'elles? J’ai cherché si, sur votre site, il y avait une vidéo explicative mais je n’ai rien trouvé. Pourriez- vous m’aider à terminer ce gilet ? Merci d’avance de vos explications, de votre aide Mowy

18.06.2024 - 22:44

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Mowy, les 4 mailles à diminuer de chaque côté pour les emmanchures se font comme indiqué sous DIMINUTIONS-1 et comme indiqué dans cette vidéo (notez que l'on ne diminue que 3 mailles dans la vidéo). Bon crochet!

19.06.2024 - 08:05

country flag Emma skrifaði:

Nu ik 34 cm van mijn achterpand heb gehaakt moet ik beginnen aan de armsgaten. Er staat dat ik in een toer moet haken. Moet ik dan echt in het rond haken? Zo ja, hoe moet dat dan precies

17.01.2024 - 14:05

DROPS Design svaraði:

Dag Emma,

Nee, je blijft nog steeds heen en weer haken hoor. Je haakt eerst een aantal stokjes over de middelste steken en dan keer je het werk en blijf je heen en weer haken waarbij je steken mindert aan elke kant zoals aangegeven in het patroon.

17.01.2024 - 17:55

country flag Antoinette Sluijter skrifaði:

Ik begrijp niet waarom bij het achterpand, bij de schouders ineens A.1 en A.2 met het reliefstokje gehaakt moet worden.

16.01.2024 - 12:46

DROPS Design svaraði:

Dag Antoinette,

Op het voorpand haak je ook A.1 en A.2 en dit is om de bies te accentueren.

17.01.2024 - 18:04

country flag Aga skrifaði:

ZAMYKANIE OCZEK-2: zamykać 10-11-11-11-11-11 razy 1 słupek w każdym rzędzie - nie rozumiem, co należy teraz wykonać. Robię rozmiar S i obecnie mam 34 oczka. Czy teraz mam przerobić 10 oczek slupkami zamkniętymi + reszta normalnie = 29 oczek ? Następnie w kolejnym rzedzie 6 oczek zamkniętych słupków + reszta normalnie = 26 oczek ? czy słupki zamknięte maja być obok siebie czy jest pomiędzy nimi przerwa z normalnych słupków ?

23.09.2023 - 18:15

DROPS Design svaraði:

Witaj Agnieszko, w każdym rzędzie zamykasz tylko 1 słupek na formowanie dekoltu. Aby zamknąć 1 słupek należy przerobić 2 słupki razem następująco: przerobić 1 słupek w następne oczko, ale nie wykonywać ostatniego narzutu, przerobić 1 słupek w następne oczko, a po ostatnim narzucie przeciągnąć nitkę przez 3 pętelki na szydełku. Zobacz ZAMYKANIE OCZEK-2, w którym miejscu zamykać o. na początku i na końcu rzędu. Jak zamknąć 1 słupek znajdziesz na filmie TUTAJ. Pozdrawiamy!

25.09.2023 - 08:09

country flag Janny Spies skrifaði:

Bij patroon recht schouder staat: de eerste 17 steken stokjes haken. Haak zo heen en weer gehaakt over deze 22 steken tot???????? Ik heb dit meerdere malen gelezen maar snap niet hoe je van 17 steken naar 22 gaat zonder dat er staat meerderen. Mis ik misschien een regel? Alvast bedankt Jannyh

26.03.2023 - 22:37

DROPS Design svaraði:

Dag Janny,

Je haakt eerst over de eerste 17 steken en dan haak je A.1. A.1 is 5 steken, dus in totaal 22 steken.

27.03.2023 - 20:32