Eimante skrifaði:
Hello, I chained 84 stitches and joined them in a ring, and since it is supposed to be a neck, how can it be enough? My head doesn't fit. How loose the foundation chain is supposed to be?
18.11.2023 - 18:43DROPS Design svaraði:
Dear Eimante, make sure you get the correct tension; then make sure the foundation chain will not be too tight, use a larger crochet if needed making sure this is loose enough, if you increase the number of stitches, the neck edge will be then too large around your own neck. Happy crocheting!
20.11.2023 - 10:12
Esperanz skrifaði:
El jersey queda perfecto hasta la última vuelta de A.3. Después he hecho 14 vueltas para acabar el canesú pero, al no haber más aumentos, los hombros quedan encajados, no hay movilidad para los brazos. Debería ir aumentando puntos en esas 14 vueltas??
12.10.2023 - 13:50DROPS Design svaraði:
Hola Esperanza, comprueba que la tensión del tejido esté correcta. Si se mantiene la tensión del tejido indicada arriba, después de A.3, deberían quedarte alrededor de 3 vueltas para que el canesú llegue a la medida final, antes de dividir. Ten en cuenta que la tensión es : 8 filas = 10cm, así que si trabajaras 14 vueltas significa que estás trabajando aprox. 20cm más, cuando el canesú debe medir entre 21 y 29cm (dependiendo de la talla) en total.
15.10.2023 - 23:49
Nienke skrifaði:
Moet ik aan het begin van de trui doorgaan met 1 stokje per steek tot een hoogte van 12 cm? En dan aan de pas beginnen?
13.09.2023 - 17:01DROPS Design svaraði:
Dag Nienke,
Ja klopt, je haakt 12 cm in de hoogte voor de hals en dan begin je aan de pas.
13.09.2023 - 20:09
Mònica skrifaði:
Trabajando la vuelta 4 del esquema A3 como descrito, resultan muchísimos puntos más que los que deberían resultar según las instrucciones. En el esquema A3, tras la vuelta de ptos. bajos, (vuelta 2 de A3)¿cuántos puntos hay que saltar entre cada grupo de puntos altos (2 p.a.- cadeneta- 2 p.a.)? Gracias!
03.02.2023 - 00:29DROPS Design svaraði:
Hola Mónica, la vuelta 1 es la vuelta de puntos bajos. La vuelta 2 trabajas: 2 puntos altos, 1 cadeneta, 2 puntos altos en el mismo punto bajo. Comienzas a trabajar en el 3º punto bajo de la vuelta y repites en cada 5º punto bajo (saltas 4 puntos bajos). En la vuelta 3, trabajas el otro grupo de puntos altos en cada arco de 1 punto de cadeneta de cada grupo de puntos altos de la vuelta anterior.
07.02.2023 - 12:02
Cristina skrifaði:
Bij A1 staat er ' 1 stokje om de steek hieronder (haak niet in de lussen maar om het stokje zelf) als volgt: 1 omslag, voeg de haaknaald om de volgende steek vanaf de achterkant, dus de bovenste lus van de vorige toer ligt op de goede kant, en haak het stokje' Ik begrijp dit niet, kan je me meer uitleg geven?
19.12.2022 - 20:51DROPS Design svaraði:
Dag Cristina,
In deze video zie je vanaf ongeveer 32 seconden hoe om een stokje van de vorige toer wordt gehaakt. Alleen in de video wordt er vanaf de voorkant van het werk ingestoken. In het patroon moet je vanaf de achterkant van het werk insteken.
22.12.2022 - 08:17
Annick skrifaði:
Beste, voor het lijf staat er dat je A4 moet haken. Maar op de foto staat er toch een andere steek???? Ik zie daar toch dat er de bobbel steek is gehaakt, of ben ik mis? Grtjes
08.12.2022 - 08:08
Teresa skrifaði:
Hi everyone Thanks for sharing such beautiful patterns. Is there diagrams with this pattern? A1, A2, A3 etc??? I would like to make this jumper
18.10.2022 - 20:59DROPS Design svaraði:
Hi Teresa, You will find the diagrams at the bottom of the pattern. Happy knitting!
19.10.2022 - 07:02
Maria Bækkelund skrifaði:
Mangler måleskitsen
29.09.2022 - 21:07DROPS Design svaraði:
Hej Maria, måleskitsen ligger nederst i opskriften, lige under diagrammerne :)
30.09.2022 - 08:44
Timea skrifaði:
Whisper in the air
05.08.2022 - 16:00
Sabine skrifaði:
Name suggestion_: winter dots
05.08.2022 - 10:30
Silver Wreath#silverwreathsweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, tvöföldum kanti í hálsmáli, áferðamynstri, gatamynstri og kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-34 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (þær koma ekki í stað fyrsta stuðul) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju (þær koma ekki í stað fyrstu fastalykkju) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. ÚRTAKA (á við um ermar): Byrjið strax á eftir prjónamerki, heklið 1 stuðul, heklið 2 næstu stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni (1 lykkja færri), heklið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, heklið 2 næstu stuðla saman og endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er heklað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað í hring hvert fyrir sig. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 84-86-90-92-96-100 loftlykkjur með heklunál 4,5 með DROPS Sky og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR og LOFTLYKKJA! Heklið 1 stuðul í hverja lykkju þar til stykkið mælist 12 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Heklið mynstur A.1 yfir allar lykkjur. Í 2. umferð í A.1 er aukið út um 32-38-38-40-40-44 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 116-124-128-132-136-144 lykkjur. Heklið A.2 yfir allar lykkjur. Í 3. umferð í A.2 er aukið út um 28-36-36-36-36-40 stuðla jafnt yfir = 144-160-164-168-172-184 lykkjur. Í 4. umferð í A.2 er aukið út um 26-25-31-32-38-41 stuðla jafnt yfir = 170-185-195-200-210-225 lykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið A.3 yfir allar lykkjur. Í 4. umferð í A.3 er aukið út um 25-25-35-35-40-40 stuðla jafnt yfir = 195-210-230-235-250-265 lykkjur. Í 9. umferð í A.3 er aukið út um 16-17-16-29-31-34 stuðla jafnt yfir = 211-227-246-264-281-299 lykkjur. Í síðustu umferð í A.3 er aukið út um 13-17-14-28-27-33 stuðla jafnt yfir = 224-244-260-292-308-332 lykkjur. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 21-23-24-26-27-29 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 34-38-40-44-48-52 lykkjum (hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 44-46-50-58-58-62 lykkjur fyrir ermi og heklið 8-8-10-10-12-12 loftlykkjur undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 68-76-80-88-96-104 lykkjum (framstykki), hoppið yfir næstu 44-46-50-58-58-62 lykkjur fyrir ermi og heklið 8-8-10-10-12-12 loftlykkjur undir ermi og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 34-38-40-44-48-52 lykkjur (hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-168-180-196-216-232 lykkjur. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Í fyrstu umferð er heklaður 1 stuðull í hverja loftlykkju undir ermi. Þegar stykkið mælist 20-20-21-21-22-22 cm frá skiptingu, heklið A.4 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 5 cm frá fyrstu umferð í A.4. Klippið þráðinn og festið. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Nú er heklað áfram yfir lykkjur sem hoppað var yfir í annarri hlið á stykki þannig: Heklið 1 keðjulykkju í 4.-4.-5.-5.-6.-6. loftlykkju undir ermi, 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af 3-3-4-4-5-5 loftlykkjum, 1 stuðull í hverja af 44-46-50-58-58-62 lykkjum sem hoppað var yfir, 1 stuðull í hverja af síðustu 4-4-5-5-6-6 loftlykkjum sem heklað var undir ermi = 52-54-60-68-70-74 stuðlar. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 8-8-10-10-12-12 loftlykkjur undir ermi. Umferðin byrjar hér. Heklið áfram með 1 stuðul í hverja lykkju. Þegar ermin mælist 3 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 5-4-3½-2-2-2 cm millibili alls 6-6-8-12-12-13 sinnum = 40-42-44-44-46-48 lykkjur. Þegar ermin mælist 35-33-33-31-31-29 cm frá skiptingu, heklið A.4 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 5 cm frá fyrstu umferð í A.4. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið hálsmálið niður að röngu á peysu þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli og saumið e.t.v. nokkur spor í hvorri hlið til að það haldist niðri. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #silverwreathsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.