Lena skrifaði:
Wenn ich in Größe M stricke, habe ich nach dem Bündchen 118 Maschen auf der Nadel. Nach Anleitung soll ich dann aber je 1 Randmasche kraus rechts und 11x 10 Maschen A1 stricken - also 112 Maschen insgesamt. Ist hier ein Fehler in der Anleitung oder habe ich etwas falsch verstanden?
09.06.2025 - 18:26DROPS Design svaraði:
Liebe Lena, nach A.1 stricken Sie noch A.2 dazu damit das Muster symmetrisch wird, dh: 1 Masche kraus rechts, A.1 insgesamt 11x, A.2 1 und 1 Masche kraus rechts = 1+(11x10)+6+1=118. Viel Spaß beim Stricken!
10.06.2025 - 09:04
Marie-Françoise Alriq skrifaði:
Erratum... En XXL, après les côtes 1/1 et l'augmentation de 1m de chaque côté, faire une maille mousse, puis 4m jersey (et non 3), 14 fois A1, 4m jersey, 1m mousse....
02.01.2025 - 13:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Alriq, en taille XXL, on tricote les 154 mailles ainsi: 1 m lis au point mousse, 3 m jersey, 14 fois les 10 m de A.1, les 6 md e A.2, 3 m jersey et 1 m lis au point mousse soit: 1+3+140+6+3+1=154. Bon tricot!
03.01.2025 - 16:28
Hilda skrifaði:
Hej! Jag försöker sticka denna i storlek S. På bakstycket: efter man har bytt till sticka 3 och har stickat 1 varv avigt från avigsidan ska man ha 108 maskor, enligt mönstret. Sen, på nästa rad, ska man sticka 1 maska rätstickning, 0 maskor slätstickning, 10 st A1, 0 st A2, 0 maskor slätstickning och 1 maska rätstickning. A1 har 10 maskor så i mitt huvud blir denna rad = 102 maskor. Så var tar de övriga 6 maskorna vägen?
06.11.2024 - 17:48DROPS Design svaraði:
Hej Hilda, A.2 har 6 masker, og du afslutter med A.2 inden kantmasken :)
07.11.2024 - 08:59
Ragne skrifaði:
Hei, håndleddene mine er ikke så glad i å strikke vrang. Går denne an å strikke rundt? Kanskje til armhulene?
31.10.2024 - 15:48DROPS Design svaraði:
Hej Ragne, ja det kan du gøre, men du må jo dog strikke frem og tilbage på bærestykket :)
01.11.2024 - 11:43
Birgitte Palm skrifaði:
Hej Drops. Nu har jeg strikket efter jeres opskrifter i mere end 25 år og aldrig fundet en fejl før. Det er lykkedes nu. På denne opskrift mangler armegabet på forstykket simpelthen. Det må være en trykfejl. Jeg skulle bruge opskriften til en veninde der ikke er øvet strikker så jeg har selv skrevet det der mangler, men det kan være der er andre der skal bruge det. Venlig hilsen Birgitte
20.04.2023 - 07:53
Sara Stadling skrifaði:
Hej, när jag ska maska av för ärmhål står det att jag ska göra det varannat varv. Hur blir det då? Jag börjar att maska av 3 m i början av det räta varvet. Så stickar jag varvet ut. Så maskar jag av i början av det aviga varvet och stickar varvet ut. Nu har jag maska av på båda sidor. Nästa varv, ska jag maska av igen då eller ska jag sticka ett varv jämna och ett varv aviga utan att maska av?
06.02.2023 - 10:56DROPS Design svaraði:
Hei Sara. Det felles på begynnelsen av hver på hver pinne fra retten og det felles på begynnelsen av hver pinne fra vrangen, det blir da annenhver pinne mvh DROPS Design
06.02.2023 - 13:16
Betina Lythe skrifaði:
I'm trying to download your patterns but some of the pages are blank .
21.06.2022 - 08:57DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lythe, we could succesfully print this pattern; remember to check your printer's settings, try to clean cache - check updates etc. Should this still not work, please let us know which browser you are using. Thank you. Happy knitting!
21.06.2022 - 10:34
Laura skrifaði:
Chocolatecaffe' bonton
14.01.2022 - 15:11
Forests Edge#forestsedgeslipover |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónað vesti úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með litnum köðlum / mynstri og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 231-47 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman á öxlum og í hliðum. Að lokum er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum hálsmál og í kringum báða handvegi. BAKSTYKKI: Fitjið upp 117-127-139-149-163-183 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 21-21-23-25-27-31 lykkjur jafnt yfir = 96-106-116-124-136-152 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en prjónið 1 lykkju slétt framan og aftan í fyrstu og síðustu lykkju í umferð = 98-108-118-126-138-154 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 0-0-0-4-0-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 alls 9-10-11-11-13-14 sinnum, A.2, prjónið 0-0-0-4-0-3 lykkjur sléttprjón og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-3 sinnum og 2 lykkjur 2-2-3-4-4-4 sinnum og 1 lykkju 2-4-4-4-4-6 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af í 4. hverri umferð þannig: Fellið af 1 lykkju 4-8-7-8-7-8 sinnum í hvorri hlið = 80-86-92-96-102-108 lykkjur. Fellið síðan af í 4. hverri umferð þannig: Fellið af 1 lykkju 3-4-4-4-4-5 sinnum í hvorri hlið = 74-78-84-88-94-98 lykkjur. ATH: Ef ekki er pláss fyrir heilan kaðal við handveg þegar fellt er af / eftir alla úrtöku, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur í stað þess að gera kaðal. Prjónið þar til stykkið mælist ca 49-51-53-55-57-59 cm – stillið af að prjónaðar hafa verið minnst 2 umferðir sléttprjón eftir umferð með köðlum. Í næstu umferð frá réttu, fellið af miðju 36-38-40-40-42-44 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 15-16-18-20-22-23 lykkjur eftir á öxl. ATH: Ef ekki er pláss fyrir heilan kaðal við hálsmál þegar fellt er af, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur í stað þess að gera kaðal. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist ca 42-44-45-47-48-50 cm – stillið af að prjónaðar hafa verið minnst 2 umferðir sléttprjón á eftir umferð með köðlum. Í næstu umferð frá réttu, setjið miðju 20-22-24-24-26-28 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 15-16-18-20-22-23 lykkjur eftir á öxl. ATH: Ef ekki er pláss fyrir heilan kaðal við hálsmál þegar fellt er af, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur í stað þess að gera kaðal. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju – byrjið sauminn efst við handveg og saumið þar til 6 cm eru eftir neðst á framstykki / bakstykki (klauf). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við aðra öxlina, prjónið upp innan við 1 kantlykkju ca 112-118-124-124-132-136 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) á stuttan hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til ca 134-142-148-148-158-164 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu í hlið neðst á handvegi og prjónið upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, ca 120-124-130-134-140-144 lykkjur í kringum handveg á stuttan hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til ca 144-148-156-160-168-172 lykkjur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestsedgeslipover eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-47
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.