Isabell skrifaði:
Hej jeg vil spørge om er det en sommerbluse eller en vinterbluse
10.04.2022 - 09:59DROPS Design svaraði:
Hei Isabell. Denne genseren er med i vår/sommerkolleksjonen, men den kan fint brukes hele året. mvh DROPS Design
19.04.2022 - 09:21
Clemmie skrifaði:
Floating
18.01.2022 - 18:11
Mette skrifaði:
Puddel
18.01.2022 - 17:34
Willemien skrifaði:
Bolero (met accent op e)
18.01.2022 - 13:59
Alessandra skrifaði:
White Butterfly
17.01.2022 - 22:29
Heini skrifaði:
Cloudmellow
17.01.2022 - 21:33
Daphne skrifaði:
Chamallow
17.01.2022 - 14:20
Mette skrifaði:
Nordic Dream
15.01.2022 - 20:54
AD Knits skrifaði:
Garden Walk
14.01.2022 - 20:03
Linda skrifaði:
Wedding in May
14.01.2022 - 14:55
Big Sur Sweater#bigsursweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með hringlaga berustykki, gatamynstri og kraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-17 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 prjónamerkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Fram- og bakstykkið og ermar er sett saman fyrir berustykki og lykkjum er fækkað fyrir kant í hálsmáli. Kraginn er prjónaður saman með lykkjum frá kanti í hálsmáli í lokin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 168-176-194-212-238-258 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið kant fyrir uppábrot þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá kanti fyrir uppábrot, skiptið yfir á hringprjón 5,5 og stykkið heldur áfram í sléttprjóni. Í fyrstu umferð er fækkað um 28-28-30-32-38-42 lykkjur jafnt yfir = 140-148-164-180-200-216 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 27-27-28-28-28-28 cm frá kanti fyrir uppábrot, fellið af lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið 31-33-37-41-46-50 lykkjur sléttprjón, fellið af næstu 8 lykkjur, 62-66-74-82-92-100 lykkjur sléttprjón, fellið af næstu 8 lykkjur og 31-33-37-41-46-50 lykkjur sléttprjón. Geymið stykkið og prjónið ermar þannig: ERMI: Fitjið upp 48-50-52-52-56-58 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið kant fyrir uppábrot þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur. Prjónið síðan stykkið í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá kanti fyrir uppábrot, skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Í fyrstu umferð er fækkað um 8-8-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir = 40-42-44-44-46-48 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, það á síðar að auka út hvoru megin við þetta prjónamerki. Þegar ermin mælist 12-12-10-10-8-10 cm frá kanti fyrir uppábrot, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3-2-2-1½ cm millibili alls 7-8-10-13-14-14 sinnum = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Þegar ermin mælist 41-39-39-37-36-34 cm frá kanti fyrir uppábrot, fellið af 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (8 lykkjur felldar af undir ermi) = 46-50-56-62-66-68 lykkjur. Klippið þráðinn. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón 5,5 og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 216-232-260-288-316-336 lykkjur. Stykkið er núna mælt héðan! Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-2-0-18-26-26 lykkjur jafnt yfir = 210-230-260-270-290-310 lykkjur. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 168-184-208-216-232-248 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 9-11-11-12-13-14 cm, prjónið A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 126-138-156-162-174-186 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 16-18-19-20-22-24 cm, prjónið A.3 yfir allar lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 84-92-104-108-116-124 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm, prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 0-6-14-16-20-24 lykkjur jafnt yfir = 84-86-90-92-96-100 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-21-22-24-26-28 cm. Geymið stykkið og prjónið kraga þannig: KRAGI: Kraginn er prjónaður í hring á hringprjóna. Fitjið upp 252-264-300-324-360-384 lykkjur á hringprjóna 5,5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið A.4 yfir allar lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.5 yfir allar lykkjur. Prjónið A.5 alls 2-2-2-2-3-3 sinnum á hæðina. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka í síðasta skipti, prjónið 1 lykkju slétt til að færa umferðina til um 1 lykkju (með þessu þá verður A.6 fyrir miðju / samhverft yfir A.5). Prjónið A.6 yfir allar lykkjur. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 84-88-100-108-120-128 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 0-2-10-16-24-28 lykkjur jafnt yfir = 84-86-90-92-96-100 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til kraginn mælist 27-27-30-30-37-37 cm. Prjónið núna kragann saman með lykkjum í hálsmáli þannig: Prjónið fyrstu lykkjuna frá kraga slétt saman með fyrstu lykkju frá berustykki, * prjónið næstu lykkju frá kraga slétt saman með næstu lykkju frá berustykki *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjurnar hafa verið prjónaðar saman. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Þræðið mjóa teygju undir kragann í síðustu umferð á berustykki, áður en kraginn og berustykkið er prjónað saman. Þetta er gert til að hálsmálið haldi forminu og teygist ekki þegar flíkin er notuð. Brjótið inn uppábrotin neðst á ermum og fram- og bakstykki að röngu og saumið niður, passið uppá að saumurinn dragi ekki stykkið saman. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bigsursweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.