Mona skrifaði:
Ursäkta en nybörjare men varför är provlappen i mosstickning och när tröjan ska stickas med rätstickning?
18.03.2022 - 18:52DROPS Design svaraði:
Hei Mona. Hele genseren strikkes i perlestrikk (moss-stickning), derfor strikker man en prøvelapp i perlestrikk. Siden genseren strikkes i deler (forstykke, bakstykke og ermer) og sys sammen tilslutt, strikkes det 1 stk kantmaske i sidene. Denne kantmasken strikkes rett , både fra retten og fra vrangen (rätstickning ). mvh DROPS Design
21.03.2022 - 13:36
Flu skrifaði:
Hello, a more general question but can we assume that the models are always wearing an S model? Sorry if it is specified somewhere I tried to look for it to understand which size to choose
17.03.2022 - 19:52DROPS Design svaraði:
Hi Flu, You can find a measurement chart at the bottom of the pattern, with measurements for all the sizes. Happy knitting!
18.03.2022 - 07:05
Daniela skrifaði:
Wie kann ich für die Ärmel abnehmen ohne nach jeder Rückreihe den Faden abschneiden zu müssen? Geht das? Muss ich dazu etwas umrechnen?
13.03.2022 - 22:28DROPS Design svaraði:
Liebe Daniela, es wird nicht abgenommen sondern abgekettet, dh am Anfang jeder Reihe (Hin- sowie Rückreihe), sollen Sie die selben Maschenanzahl abketten. Viel Spaß beim stricken!
14.03.2022 - 12:37
Odette skrifaði:
Je ne comprends pas comment rabattre les emmenchures du dos . J’ai calculé, 5x2 mailles de chaque côté= 20 diminutions et 6x 1 maille = 12 diminutions pour un médium, alors je n’arrive pas à 61 mailles, mais à 51, éclairez- moi. Merci
13.03.2022 - 22:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Odette et oops, c'était une erreur, il faut en fait rabattre en M: 1 x 5 m de chaque côté et 6 x 1 m soit 83-(10+12)=61 mailles. Merci pour votre retour. Bonne continuation!
14.03.2022 - 12:35
Deloffre Emmanuelle skrifaði:
Bonjour je ne vois pas le diagramme A1...?
28.02.2022 - 06:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Deloffre, c'est un tout petit diagramme de 2 m x 2 rangs que vous trouverez à droite du schéma des mesures, sous la manche. Bon tricot!
28.02.2022 - 10:43
Karen Ayres skrifaði:
Where is the chart, it says follow chart A but I can’t find it
26.02.2022 - 10:09DROPS Design svaraði:
Dear Karen, you can find chart A.1 as a small square, below the sleeves in the measurements chart. Happy knitting!
27.02.2022 - 17:08
Sophia skrifaði:
Hello! When will this be available? its beautiful
17.02.2022 - 12:22DROPS Design svaraði:
Dear Sophia, we are now in the process of preparing and translating the new collection, so it should be available soon.
19.02.2022 - 18:21
Éva Ladán skrifaði:
Erre szavazok.
04.02.2022 - 17:05
Victoria Den Ouden skrifaði:
Setting Sail By the Bay Low Tide
01.02.2022 - 15:20
Mette skrifaði:
Marina
19.01.2022 - 22:22
Sea Bird Sweater#seabirdsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð einföld /basic peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, í perluprjóni og með röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-2 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. RENDUR BAKSTYKKI / FRAMSTYKKI: Prjónaðar eru rendur með litnum gallabuxnablár og litnum natur þannig: Prjónið 8-8½-9½-9½-10-10½ cm með litnum natur, prjónið 3 cm með litnum gallabuxnablár. Þegar prjónaðar hafa verið 4 rendur með gallabuxnablár, er afgangurinn af stykkinu prjónaður í litnum natur. RENDUR ERMI: Prjónaðar eru rendur með litnum gallabuxnablár og litnum natur eftir stroff þannig: Prjónið 8 cm með litnum natur og 3 cm með litnum gallabuxnablár. Þegar prjónaðar hafa verið 3 rendur með litnum gallabuxnablár, er afgangurinn af ermi prjónaður með litnum natur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp í stykkjum og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 73-83-89-95-107-117 lykkjur á hringprjón 5 með litnum natur í DROPS Paris. Prjónið þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið nú af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4-5-6-7-10-12 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3-6-7-8-10-12 sinnum = 59-61-63-65-67-69 lykkjur. Haldið áfram með A.1 og rendur eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 47-49-51-53-56-58 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið yfir fyrstu 17-17-17-18-18-19 lykkjur eins og áður og setjið þær síðan á þráð, fellið af næstu 25-27-29-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið yfir síðustu 17-17-17-18-18-19 lykkjur eins og áður. Prjónið síðan hvora öxl fyrir sig. VINSTRI ÖXL: = 17-17-17-18-18-19 lykkjur. Byrjið frá röngu og fellið af fyrir öxl í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 1 lykkju 3 sinnum = 14-14-14-15-15-16 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum. HÆGRI ÖXL: Setjið til baka 17-17-17-18-18-19 lykkjur af þræði á prjóninn. Byrjið frá röngu og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 1 lykkju 3 sinnum = 14-14-14-15-15-16 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og prjónið á sama hátt og bakstykki. ERMI: Fitjið upp 40-42-44-46-48-50 lykkjur á hringprjón 4 með litnum natur í DROPS Paris. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið áfram þar til stroffið mælist 7 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið síðan eftir mynstri A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið nú RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 12 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Aukið svona út með ca 4-3½-3-2½-2-1½ cm millibili alls 8-10-11-13-16-17 sinnum = 56-62-66-72-80-84 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 47-46-47-46-45-44 cm. Nú byrjar úrtaka fyrir ermakúpu, fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, fellið af 2 lykkjur 3-3-3-3-4-4 sinnum og 1 lykkju 1-2-2-4-4-6 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 55-55-56-56-57-58 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru í perluprjóni í næstu umferð. Ermin mælist ca 56-56-57-57-58-59 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið saum undir ermi og haldið áfram með sauminn niður meðfram hlið á fram- og bakstykki, en skiljið eftir 5 cm klauf neðst. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seabirdsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.