DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sea Bird Top

Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, með perluprjóni og röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-27
DROPS Design: Mynstur w-872
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-250-300-350-400-450 g litur 17, natur
150-150-150-200-200-200 g litur 30, gallabuxnablár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: Lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með perluprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

RENDUR:
Það eru prjónaðar rendur með litnum gallabuxnablár og með litnum natur þannig: prjónið 8-8½-9½-9½-10-10½ cm með litnum natur, prjónið 2½ cm með litnum gallabuxnablár. Prjónið þar til prjónaðar hafa verið 4 rendur með litnum gallabuxnablár.
Afgangur af stykki er prjónað í litnum natur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp í stykkjum og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 73-83-89-95-107-117 lykkjur á hringprjón 5 með litnum natur í DROPS Paris.
Prjónið þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Nú eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm frá uppfitjunarkanti. Nú eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4-5-6-7-10-12 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 3-6-7-8-10-12 sinnum = 59-61-63-65-67-69 lykkjur.
Haldið áfram með A.1 og rendur eins og áður.
Prjónið þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm frá uppfitjunarkanti.
Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli þannig:
Prjónið yfir fyrstu 17-17-17-18-18-19 lykkjur eins og áður og setjið þær síðan á þráð, fellið af næstu 25-27-29-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið yfir síðustu 17-17-17-18-18-19 lykkjur eins og áður. Prjónið síðan axlir til loka hvora fyrir sig.

VINSTRI ÖXL:
= 17-17-17-18-18-19 lykkjur. Byrjið frá röngu og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 lykkju 3 sinnum = 14-14-14-15-15-16 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum.

HÆGRI ÖXL:
Setjið til baka 17-17-17-18-18-19 lykkjur af þræði á prjóninn. Byrjið frá röngu og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 1 lykkju 3 sinnum = 14-14-14-15-15-16 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp jafnmargar lykkjur og prjónið á sama hátt og bakstykki.

FRÁGANGUR:
Allur frágangur er gerður með litnum natur. Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana og skiljið eftir 5 cm klauf neðst.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Sandra wrote:

Ich habe die Seiten wie krausrechts gestr. (nach dem Video) zusammen gestrickt. Von der Innenseite (auf links gedreht, die Stelle der Naht liegt, wenn ich es wieder auf rechts drehe so eingesackt und Seiten beulen nach außen. Hätte ich es mit einer anderen Technik zusammennähen sollen?

30.03.2023 - 14:27

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, Sie können das Top anfeuchten, die Nähte in Form ziehen, flachdrücken und liegend trocknen lassen, damit sollte sich die Ausbeulung beheben lassen. Viel Spaß mit Ihrem Top!

05.04.2023 - 10:40

country flag Sandra wrote:

Hallo, wird die Schulter am Hals im Muster gestrickt oder Krausrechts? Steht nicht in der Anleitung Danke und Grüße

30.03.2023 - 10:56

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, Sie stricken die Schultern wie zuvor weiter, d.h. im Muster. Gutes Gelingen weiterhin!

05.04.2023 - 10:42

country flag Nicola ELLICOTT wrote:

Where is diagram A1, it isn’t showing on the website page!

27.03.2023 - 18:35

DROPS Design answered:

Dear Nicola, diagram A.1 is right beside the schematic drawing, on its left side. I is only two stitch wide and two stitch high. Happy Crafting!

28.03.2023 - 07:30

country flag Sandra wrote:

Re Schulter Rückenteil: Kette ich 1 Masche in der Hin oder Rückreihe ab? Bei der Li Schulter Rückenteil habe ich die Rückrunde gestrickt und in der Hinrunde am Hals abgekettet oder muss ich das jetzt andersrum machen - in der Rückrunde am Hals abketten

25.03.2023 - 08:54

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, für die Rechte Schulter Rückenteil wird man für den Hals am Anfang einer Rück-Reihe (am Anfang der Reihe von Hals bis Schulter) abketten - beim Linken Schulter Rückenteil soll man für den Hals am Anfang einer Hin-Reihe abketten (am Anfang der Reihe vom Hals bis Schulter). Aber beim Vorderteil ketten Sie für den Hals am Anfang einer Hin-Reihe (rechte Schulter) / Rückreihe (linke Schulter). Viel Spaß beim stricken!

27.03.2023 - 09:05

country flag Sandra wrote:

Guten Morgen, ist der Maschenanschlag schon die Hinreihe oder Zählt der Anschlag nicht mit? Bin Anfänger und weiß nicht ob der Maschenanschlag schon mitzählt

20.03.2023 - 07:29

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, Anschlagskante zählt nicht als Reihe, wenn die Maschen angeschlagen sind, dann stricken Sie die erste Hinreihe. Viel Spaß beim stricken!

20.03.2023 - 09:31

country flag Sandra wrote:

Stricke ich das Musterstück zum abmessen in dem Muster re/li? oder einfach nur hin re und rück li?

20.03.2023 - 07:10

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, ich verstehe Ihre Frage leider nicht, könnten Sie bitte mehr beschreiben, was Sie hier meinen? Danke im voraus für Ihr Verständnis.

20.03.2023 - 09:31

country flag Sandra wrote:

Schulter beginnen: es wird die li Schulter zuerst angezeit, wenn ich die Arbeit aufteile, ist es egal welche Schulter ich zuerst beginne? Da ich ja den Faden dann an der re Schulter habe wenn ich in einer Hinrunde beginne. In der Anleitung steht zuerst die li Schulter.

14.03.2023 - 08:31

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, beim Rückenteil werden Sie zuerst den linke Schulter stricken: bei einer Hinreihe stricken Sie die Maschen vom rechten Schulter, und legen Sie sie still, dann ketten Sie die Maschen für den Halsausschnitt ab, und stricken Sie die Maschen vom linken Schulter weiter. Beim Vorderteil stricken Sie zuerst die Maschen vom rechten Schulter und legen Sie sie still, ketten Sie die Maschen für den Hals ab und stricken Sie die Maschen vom rechten Schulter weiter. Viel Spaß beim stricken!

14.03.2023 - 10:09

country flag Sandra wrote:

Hallo, wenn ich in der Hinreihe am Anfang 4 Ma abgekettet habe und dann auf der linken Seite auch, habe ich eine Masche noch auf der Nadel schneide ich den Faden dann ab? Oder Kette ich die 4 MA auf der RR ab? Randmasche immer noch Kraus re oder re auf der rechten seite und li auf der linken Seite

13.03.2023 - 11:05

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, für die Armauschnitte soll man nur am Anfang der Reihen abketten, dh am Anfang der nächsten 2 Reihen (= Hin- + Rückreihe) die ersten 4 Maschen abketten , dann am Anfang der nächsten 6 Reihen 1 Masche abketten (1 Masche 3 Mal auf beiden Seite). Viel Spaß beim stricken!

13.03.2023 - 11:22

country flag Sandra wrote:

Stricken, bis die Arbeit eine Länge von 31-32-33-34-35-36 cm ab dem Anschlagrand hat. gesamtlänge = 50 cm Anschlag bis unter Arm = 31 cm Im Bild 50 dann 18 cm ist aber 32 cm?

09.03.2023 - 10:17

country flag Sandra wrote:

Wie folgt stricken: 1 Rand-Masche KRAUS RECHTS – siehe oben, A.1 bis noch 2 Maschen übrig sind, die erste Masche von A.1 und 1 Rand-Masche kraus rechts. Stricke ich die erste re und die letzte? was bedeutet , bis 2 Maschen übrig sind. Warum steht oben Krausippe wenn Perlmuster? Werden die 4 Ma in der Hinreihe hintereinander abgekettet. dann eine Rückreihe und 3 MA wieder hintereinander?

09.03.2023 - 09:38

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, damit das (gerade Maschenanzahl) Muster über die (ungerade) Maschenanzahl passt soll man die vorletzte der Reihe wie die 1. Masche vom Diagram (bei den Hinreihen) stricken, dh so: 1 Randmasche, die 2 Maschen in A.1 wierdholen bis 2 Maschen übrig auf der linken Nadel sind, die nächste Masche wie die 1. Masche in A.1 stricken und die letzte Masche als Randmasche stricken. Bei den Rückreihen stricken Sie zuerst die 1. Masche A.1 (= 1 M rechts bei der Hinreihe) dann wiederholen Sie A.1 (links nach rechts lesen) zwischen den Randmaschen. Viel Spaß beim stricken!

09.03.2023 - 12:05