Misha skrifaði:
Who writes these patterns? This is not in English for sure more like in elvish.
02.12.2024 - 11:54
Judith E Jenkins skrifaði:
I still don't understand. Are we talking about single crochets, double crochets, chains, or what?
18.12.2021 - 20:55DROPS Design svaraði:
Der Mrs Jenkins, make sure you are reading the pattern in the appropriate English-language because crochet terminology is different in US-English and in UK-English, maybe these videos will help you to understand how to crochet the stars?
20.12.2021 - 08:36
Judith E Jenkins skrifaði:
What does A.1A then A.3B mean?
18.12.2021 - 18:30DROPS Design svaraði:
Dear Judith A.1A is how the round starts. A3B are repeats of the pattern for the bigger size. Happy crochetting!
18.12.2021 - 20:53
Gingerbread Stars#dropsgingerbreadstars |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Heklaðar piparköku - stjörnur úr DROPS BabyMerino. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1554 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull/tvíbrugðinn stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LITASKIPTI (á við um í lok umferðar við litaskipti): Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan hekluð þannig: Skiptið yfir í nýjan lit, heklið 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PIPARKÖKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju og út, síðan er hekluð lykkja í toppinn á horninu. LÍTIL PIPARKAKA: Byrjið með heklunál 3 og litinn súkkulaði í DROPS Baby Merino. Heklið 4 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið A.1A, síðan er heklað A.1B alls 6 sinnum hringinn í umferð. UMFERÐ 2: Sjá LITASKIPTI, skiptið yfir í litinn hvítur í DROPS Baby Merino. Heklið 2. umferð í mynsturteikningu. UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn súkkulaði. Heklið 3. umferð í mynsturteikningu. Klippið þræðina og festið. Heklið lykkju eins og útskýrt er að neðan. MILLISTÓR PIPARKAKA: Byrjið með heklunál 3 og litinn súkkulaði í DROPS Baby Merino. Heklið 4 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1-3: Heklið A.2A, síðan er heklað A.2B alls 6 sinnum hringinn í umferð. UMFERÐ 4: Sjá LITASKIPTI, skiptið yfir í litinn hvítur í DROPS Baby Merino. Heklið 4. umferð í mynsturteikningu. UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn súkkulaði. Heklið 5. umferð í mynsturteikningu, en í síðasta skipti sem A.2B er endurtekið í umferð, hoppið yfir síðasta tákn og heklið þannig: Heklið 1 fastalykkju um síðustu loftlykkju og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð. Klippið þræðina og festið. Heklið lykkju eins og útskýrt er að neðan. STÓR PIPARKAKA: Byrjið með heklunál 3 og litinn súkkulaði í DROPS Baby Merino. Heklið 4 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið A.3A, síðan er heklað A.3B alls 6 sinnum hringinn í umferð. UMFERÐ 2: Sjá LITASKIPTI, skiptið yfir í litinn hvítur í DROPS Baby Merino. Heklið 2. umferð í mynsturteikningu. UMFERÐ 3-4: Skiptið yfir í litinn súkkulaði. Heklið umferð 3 og 4 í mynsturteikningu. UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn hvítur. Heklið 5. umferð í mynsturteikningu, en í síðasta skipti sem A.3B er endurtekið á hæðina, hoppið yfir síðasta tákn og heklið þannig: Heklið 1 fastalykkju um síðustu loftlykkju, skiptið yfir í litinn súkkulaði og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 6: Heklið síðustu umferð í mynsturteikningu, en í síðasta skipti sem A.3B er endurtekið í umferð, hoppið yfir síðasta tákn og heklið þannig: Heklið 1 fastalykkju um síðustu loftlykkju og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð. Klippið þræðina og festið. Heklið lykkju eins og útskýrt er að neðan. LYKKJA: Notið heklunál 3 og litinn súkkulaði, heklið 1 keðjulykkju mitt í hornið á stjörnu, heklið 24 loftlykkju og festið við 1 keðjulykkju í sömu lykkju í horni á stjörnu, þannig að það myndist lykkja. Klippið þráðinn og festið. STREKKING: Til að piparkökurnar hangi fallega og verði stífar, er hægt að dýfa þeim í sykurvatn eða litlausan gosdrykk og legga flatar til þerris. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsgingerbreadstars eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1554
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.