Dina skrifaði:
Buongiorno, è possibile realizzare il cestino con il cotone anziché la lana, per esempio usando 2 capi di Paris? Temo che il motivo a punto canestro non venga bene usando un filato più rigido. Grazie!
15.06.2022 - 13:47DROPS Design svaraði:
Buonasera Dina, per realizzare il cestino può utilizzare 2 capi di Paris. Buon lavoro!
15.06.2022 - 19:45
Jenny Martinsson skrifaði:
Hej, Stor korg, VARV 6-12:, hur ska man virka ? Är det : varv 6 : 1 fastmaska i var och en av de första/nästa 4 fastmaskorna varv 7 : 1 fastmaska i var och en av de första/nästa 5 fastmaskorna osv ? eller bara fortsätta med "1 fastmaska i var och en av de första/nästa 3 fastmaskorna" MVH Jenny
22.12.2021 - 09:39DROPS Design svaraði:
Hej Jenny. Ja det är som du skriver först dvs varv 6 : 1 fastmaska i var och en av de första/nästa 4 fastmaskorna varv 7 : 1 fastmaska i var och en av de första/nästa 5 fastmaskorna osv. Mvh DROPS Design
23.12.2021 - 10:04
Cornelia skrifaði:
Hallo,werden die Runden 2-7 dann ohne Kettmasche und wie eine Schnecke gehäkelt oder mit Kettmasche aber die erste Masche wird durch eine LM/3LM ersetzt?Danke schön und Dankeschön für den tollen Adventskalender!🥰
05.12.2021 - 08:11DROPS Design svaraði:
Liebe Cornelia, die Runden 2-7 werden mit 1 Kettmasche in die 1./3. Luftmasche des Rundenbeginns beendet. Die Runden 2-7 beim Rand werden mit 1 Kettmasche in die Luftmasche des Rundebeginns beenden. Viel Spaß beim häkeln!
06.12.2021 - 09:15
Christmas Harvest#christmasharvestbasket |
|
![]() |
![]() |
Heklaðar körfur úr DROPS Snow. Stykkið er heklað í körfumynstri. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1547 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR (á ekki við umferð 2-7 í köfumynstri): Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja – þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur kemur sem viðbót. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur – þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðul, heldur koma sem viðbót. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KÖRFUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Körfurnar eru heklaðar í hring frá miðju undir körfu og út/upp. LÍTIL KARFA: Byrjið með heklunál 5 og litinn toffee í DROPS Snow. Heklið 2 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA. UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 6 fastalykkjur í 2. loftlykkju frá heklunálinni. LÍTIL KARFA: Byrjið með heklunál 5 og litnum toffee úr DROPS Snow. Heklið 2 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA. UMFERÐ 1: Sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 6 fastalykkjur í 2. loftlykkju frá heklunálinni. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fastalykkju í fyrstu/næstu fastalykkju, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 4: Heklið * 1 fastalykkju í hvora af fyrstu/næstu 2 fastalykkjum, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið * 1 fastalykkju í hverja af fyrstu/næstu 3 fastalykkjum, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 6-9: Haldið áfram að auka út 6 fastalykkjur í hverri umferð með því að hekla 1 fastalykkju fleiri í hverri útaukningu = 54 fastalykkjur í umferð. Nú er kanturinn heklaður í körfumynstri þannig: UMFERÐ 1: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju – aukið jafnframt út um 2 stuðla jafnt yfir í umferð (aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju) = 56 stuðlar. UMFERÐ 2-4: 1 loftlykkja, * 1 stuðull framan frá í kringum hvorn af næstu 2 stuðlum, 1 stuðull aftan frá í kringum hvorn af næstu 2 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 5-7: 1 loftlykkja, heklið * 1 stuðul aftan frá í kringum hvorn af næstu 2 stuðlum, 1 stuðull framan frá í kringum hvorn af næstu 2 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Körfumynstrið er nú tilbúið. Heklið nú kant í lokin þannig: UMFERÐ 1: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul umferðina hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 10 fastalykkjum, heklið 9 loftlykkjur (handfang), hoppið yfir næstu 8 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 20 fastalykkjum, heklið 9 loftlykkjur (handfang), hoppið yfir næstu 8 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 10 fastalykkjum. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en yfir loftlykkjur eru heklað um loftlykkjur í stað í lykkjur. Klipið þráðinn og festið. STÓR KARFA: LÍTIL KARFA: Byrjið með heklunál 5 og litnum leir úr DROPS Snow. Heklið 2 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA. UMFERÐ 1: Sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 6 fastalykkjur í 2. loftlykkju frá heklunálinni. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fastalykkju í fyrstu/næstu fastalykkju, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 4: Heklið * 1 fastalykkju í hvora af fyrstu/næstu 2 fastalykkjum, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið * 1 fastalykkju í hverja af fyrstu/næstu 3 fastalykkjum, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 6-12: Haldið áfram að auka út 6 fastalykkjur í hverri umferð með því að hekla 1 fastalykkju fleiri í hverri útaukningu = 72 fastalykkjur í umferð. Nú er kanturinn heklaður í körfumynstri þannig: UMFERÐ 1: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju = 72 stuðlar. UMFERÐ 2-4: 1 loftlykkja, * 1 stuðull framan frá í kringum hvorn af næstu 2 stuðlum, 1 stuðull aftan frá í kringum hvorn af næstu 2 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 5-7: 1 loftlykkja, heklið * 1 stuðul aftan frá í kringum hvorn af næstu 2 stuðlum, 1 stuðull framan frá í kringum hvorn af næstu 2 stuðlum *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Endurtakið umferð 2-4 einu sinni til viðbótar. Körfumynstrið er nú tilbúið. Heklið nú kant í lokin þannig: UMFERÐ 1: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul umferðina hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 13 fastalykkjum, heklið 11 loftlykkjur (handfang), hoppið yfir næstu 10 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 26 fastalykkjum, heklið 11 loftlykkjur (handfang), hoppið yfir næstu 10 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 13 fastalykkjum. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en yfir loftlykkjur eru heklað um loftlykkjur í stað í lykkjur. Klipið þráðinn og festið. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #christmasharvestbasket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1547
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.