Brik skrifaði:
Magnifique
03.12.2024 - 07:04
JUNGHWA CHO skrifaði:
I can't find an explanation for decrease tip 2.
13.05.2024 - 15:25DROPS Design svaraði:
Thanks for your feedback, it has now been fixed, the decrease tip 2 was wrongly called "increase tip 2" instead. Happy knitting!
13.05.2024 - 15:58
Fauchet skrifaði:
Bonjour , dans les explications il y’a écrit Augmentations-2 mais il s’agit bien de diminutions-2, non? Merci et bonne journée
25.12.2023 - 16:46
Michelle Forbes skrifaði:
Hello , Do you work the purl stitches 1 row below every other row too ? Purl stitches are very difficult to keep tidy because of the difference in tension caused by knit stitch being worked 1 row below.Any tips for maintaining tension would be appreciated. Mant Thanks Thank you
28.12.2022 - 11:01DROPS Design svaraði:
Hello Michelle Forbes! You only knit Fisherman’s rib stitch in the stitch below, purled stitches are knitted normally. Finishing your work properly, by washing it lightly after finishing, will even out the stitches. Happy knitting!
30.12.2022 - 12:49
Myrna Laupland skrifaði:
Love this pattern, made the hat and then the mittens. Very cozy in Drops Air, this will be a Christmas gift. Thanks for the pattern, I have made lots of Drops patterns and like everyone.
08.09.2022 - 06:30
Maxine skrifaði:
Thanks for the reply🙏🏻. I’ve now successfully finished the hat! Wonderful pattern to work with 👍🏻
24.03.2022 - 14:38
Maxine skrifaði:
For the hat, what does A1 ‘knit 1 in stitch below this stitch mean?
27.02.2022 - 16:46DROPS Design svaraði:
Dear Maxine, you can check the following video to see how to work it: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1389&lang=en Happy knitting!
27.02.2022 - 17:31
Rolling Snow Set#rollingsnowset |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð húfa og vettlingar úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með köðlum og klukkuprjónslykkjum.
DROPS 226-53 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.3 og A.4. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 42 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 10,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna til skiptis 9. og 10. hverja lykkju og 10. og 11. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um efst á vettlingum): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkjum með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið klukkuprjónslykkjuna með prjónamerki í eins og áður, prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (á við um op fyrir þumal á vettlingum): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 84 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. Prjónið A.1 hringinn (= 6 mynstureiningar með 14 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið A.1 á hæðina þar til stykkið mælist ca 20 cm – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. húfuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú byrjar úrtaka efst á húfu. Prjónið A.2 hringinn (= 6 mynstureiningar með 14 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 24 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 12 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 25 cm ofan frá og niður. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 42 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 38 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.3 (= 19 lykkjur = á hönd), prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir í umferð (= 6 mynstureiningar með 3 lykkjum) og endið með fyrstu lykkju í A.1, þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9 cm, setjið eitt prjónamerki í 20. lykkju í umferð (í fyrstu klukkuprjónslykkju eftir A.3). Í næstu umferð er aukið út fyrir op fyrir þumal með því að auka út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5 sinnum á hæðina = 48 lykkjur. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 14 cm. Nú á að setja þumallykkjurnar á þráð eins og útskýrt er að neðan. Mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjur eru settar á þráð. Í næstu umferð eru 11 þumallykkjur settar á þráð, prjónið hringinn eins og áður og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju yfir lykkjur á þræði = 38 lykkjur í umferð. Prjónið áfram eins og áður þar til vettlingurinn mælist ca 22 cm – endið A.3 eftir 1. eða 5. umferð í mynstri. Prjónið eins og áður, en í fyrstu umferð er fækkað um 2 lykkjur yfir 9 lykkjur í sjálfum kaðlinum, þ.e.a.s. prjónið 2 fyrstu af þessum 9 lykkjum snúnar slétt saman og 2 síðustu lykkjurnar slétt saman = 36 lykkjur í umferð (þær 7 lykkjur yfir kaðli eru prjónaðar í sléttprjóni að loka máli, aðrar lykkjur eru prjónaðar áfram eins og áður). Í næstu umferð byrjar úrtaka efst á vettlingi eins og útskýrt er að neðan. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd áður en úrtakan byrjar. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á vettlingi, þ.e.a.s. í síðustu klukkuprjónslykkjuna á undan A.3 og fyrstu klukkuprjónslykkjuna á eftir A.3. Nú eru 17 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í – sjá ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið á vettlingi í annarri hverri umferð alls 5 sinnum = 16 lykkjur eftir. Prjónið 2 umferðir þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum = 4 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 26 cm ofan frá og niður. ÞUMALL: Setjið til baka 11 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna 4 – prjónið að auki upp 2 lykkjur aftan við þumal = 13 lykkjur. Prjónið brugðnar lykkjur hringinn, en önnur klukkuprjónslykkjan frá opi fyrir þumal heldur áfram upp úr eins og áður. Prjónið þar til sjálfur þumallinn mælist ca 5 cm. Nú eru eftir ca ½ cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið þumalinn að óskaðri lengd. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman þar til 1 lykkja er eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, en þegar útaukning byrjar fyrir opi fyrir þumal er prjónað þannig: Aukið út fyrir þumal með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við síðustu lykkju í umferð (þ.e.a.s. hvoru megin við síðustu klukkuprjónslykkju í umferð). Afgangur á vettlingi og þumallinn er prjónaður á sama hátt og hægri vettlingur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rollingsnowset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-53
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.