Sandy skrifaði:
I’m looking to knit this vest . I see from the pattern size picture that the XL is 57 cm + 114 around. My measurements are 109cm . I like this loose but not too sack looking . The L size is 53 = 106 . Can you please advise. I’m thinking the size XL as this is the finished size. Thanks
13.06.2025 - 01:05DROPS Design svaraði:
Dear Sandy, measure a similar garment you have and like the shape to compare with the measurements in the chart; then you can choose if you rather get a tighter or a looser piece. Read more here. Happy knitting!
13.06.2025 - 08:00
Edvige skrifaði:
Il davanti e il dietro mi piacerebbe lavorarli assieme .
19.01.2025 - 19:16DROPS Design svaraði:
Buonasera Edvige, può apportare le modifiche che preferisce al modello. Buon lavoro!
21.01.2025 - 23:06
Liliana skrifaði:
Salve sto' lavorando il davanti destro nella taglia XXL 71 maglie, non mi torna il conto dopo le 19 diminuzioni mi restano 44 maglie e non 52... dov'è l'errore? Grazie mille
25.11.2024 - 17:55DROPS Design svaraði:
Buonasera Liliana, 71-19 = 52 maglie. Buon lavoro!
27.11.2024 - 00:14
Jantine skrifaði:
Ik begrijp dat bij het patroon December Skies, Spencer 228/32 twee soorten garen worden gebruikt. In het patroon kan ik niet vinden waar de Alpaca Bouclé en waar de Drops Kid Silk worden gebruikt. Is het laatste soms voor de boorden? En hoeveel heb ik nodig als ik alles van bouclé brei? Ik hoop op een spoedig antwoord, hartelijk dank alvast. Gr. Jantine
25.02.2024 - 12:33DROPS Design svaraði:
Dag Jantine,
Het hele werkstuk wordt met 2 draden gebreid, 1 draad Kid-Silk en 1 draad Alpaca bouclé. (Van Kid-Silk heb je veel minder nodig omdat het een laag gewicht heeft en een lange looplengte.)
28.02.2024 - 20:30
CATH N skrifaði:
I do not understand A.1. What does it mean "twisted" as in "KNIT TWISTED FROM RIGHT SIDE , PURL TWISTED FROM WRONG SIDE"?? And how does the little A1 diagram relate to the instruction/big diagram: the PATTERN says "shows all rows in the pattern from the right side". It doesn't show all rows in the pattern I printed , only an outline of the garment with stitches for different sizes. Please help.
10.02.2024 - 11:36DROPS Design svaraði:
Dear Cath, twisted = work in the back loop, you can see an example of knitting twisted in the following video:https://www.garnstudio.com/video.php?id=32&lang=en. A.1 is the 2-stitch pattern that is worked the whole round, as explained in the written instructions. You can see how to read this chart here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19. When it says that the PATTERN shows all rows in the pattern from the right side it means that all rows in chart A.1 are shown as seen from the right side; you will find more information in the lesson above. The outline is the size chart, explained here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=24&cid=19. Happy knitting!
11.02.2024 - 23:01
Noemi Mizrahi skrifaði:
Do I DECREASE stitches after the rib? usually one adds stitches after the rib ( in other patterns )
08.11.2023 - 04:06DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Mizrahi, for same width you need more stitches to work rib with smaller needles than to knit stocking stitch with larger needles, reason why you decrease after rib. Happy knitting!
08.11.2023 - 08:35
Jette skrifaði:
Jeg kan ikke se om ribkanten skal strikkes med 1ret og vrang eller om det er 2 ret og vrang. med venlig hilsen jette.
19.12.2022 - 13:54
Vittoria skrifaði:
Vorrei sapere per cortesia che taglia indossa la modella Grazie
27.02.2022 - 19:42DROPS Design svaraði:
Buonasera Vittoria, solitamente le modelle indossano la taglia M. Buon lavoro!
27.02.2022 - 21:14
Gitte skrifaði:
Hvad er Drops parpinde? Er det almindelige strikkepinde?
30.09.2021 - 21:10DROPS Design svaraði:
Hej Gitte. Ja det är det. Mvh DROPS Design
01.10.2021 - 09:56
Taina skrifaði:
Is the diagram with the measurements going to be added to the pattern later?
30.09.2021 - 14:36DROPS Design svaraði:
Dear Taina, you can see the diagram with the measurements just below the pattern instructions. Happy Stitching!
30.09.2021 - 15:59
December Skies#decemberskiesvest |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónað vesti úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með klauf í hliðum, v-hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð XS - XXL.
DROPS 228-32 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 87 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 3,5. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis aðra hverja og 3. hverja og 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = byrjið frá réttu og prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 10, 18 og 26 cm S: 9, 18 og 27 cm M: 10, 19 og 28 cm L: 9, 19 og 29 cm XL: 10, 20 og 30 cm XXL: 9, 20 og 31 cm AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Frágangur á stykki er eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur í kringum handveg og kantar eru prjónaðir í stroffprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 87-95-103-111-121-131 lykkjur á prjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að stroffið byrji og endið alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 10 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 24-26-29-31-34-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 63-69-74-80-87-95 lykkjur. Fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja fyrir saum). Snúið stykkinu og skiptið yfir á prjón 6. Prjónið brugðnar lykkjur frá röngu og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja fyrir saum) = 65-71-76-82-89-97 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 59-63-68-72-77-83 lykkjur. Fellið síðan af 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 3-4-5-6-7-8 sinnum í hvorri hlið = 53-55-58-60-63-67 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 21-21-22-22-23-23 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 15-16-17-18-19-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 49-55-59-63-67-71 lykkjur á prjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að stroffið byrji og endið alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 10 cm – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 6 lykkjur (= 7 lykkjur fyrir kant að framan), prjónið sléttprjón yfir næstu 41-47-51-55-59-63 lykkjur og fækkið jafnframt um 13-16-17-18-19-19 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 36-39-42-45-48-52 lykkjur. Fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja fyrir saum). Skiptið yfir á prjón 6. Prjónið brugðnar lykkjur frá röngu þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, haldið áfram með stroff eins og áður yfir næstu 6 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 37-40-43-46-49-53 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 7 kantlykkjur að framan eins og áður við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá röngu = 34-36-39-41-43-46 lykkjur. Fellið síðan af 1 lykkju í byrjun á umferð frá röngu í 4. hverri umferð alls 3-4-5-6-7-8 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, byrjið úrtöku fyrir V-hálsmáli. Fækkið lykkjum svona í næstu umferð frá réttu: Prjónið fyrstu 7 lykkjur í mynstri eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Fækkið lykkjum svona með 2½ cm millibili alls 9-9-10-10-10-10 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir handveg og v-hálsmáli eru 22-23-24-25-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Í næstu umferð frá röngu, fellið af fyrstu 15-16-17-18-19-21 lykkjur fyrir öxl – munið eftir AFFELLING = 7 lykkjur eftir á prjóni fyrir kant í hálsmáli. Haldið áfram með stroff yfir þessar 7 lykkjur þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 8-8-9-9-10-10 cm frá öxl (athugið mál við hálsmál aftan í hnakka – kantur í hálsi á að strekkjast aðeins þegar saumað er frá axlasaumi mitt aftan í hnakka). Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 49-55-59-63-67-71 lykkjur á prjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að stroffið byrji og endið alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 10 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 41-47-51-55-59-63 lykkjur og fækkið jafnframt um 13-16-17-18-19-19 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 6 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 7 lykkjur fyrir kant að framan) = 36-39-42-45-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 6. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, haldið áfram með stroff eins og áður yfir næstu 6 lykkjur, prjónið brugðnar lykkjur út umferðina og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja fyrir saum) = 37-40-43-46-49-53 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 7 kantlykkjur að framan eins og áður við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá réttu = 34-36-39-41-43-46 lykkjur. Fellið síðan af 1 lykkju í byrjun á umferð frá réttu í 4. hverri umferð alls 3-4-5-6-7-8 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, byrjið úrtöku fyrir V-hálsmáli. Fækkið lykkjum svona í næstu umferð frá réttu: Prjónið eins og áður þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkju slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 6 lykkjur stroff eins og áður og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Fækkið lykkjum svona með 2½ cm millibili alls 9-9-10-10-10-10 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir handveg og v-hálsmáli eru 22-23-24-25-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Í næstu umferð frá röngu, fellið af fyrstu 15-16-17-18-19-21 lykkjur fyrir öxl – munið eftir AFFELLING = 7 lykkjur eftir á prjóni fyrir kant í hálsmáli. Haldið áfram með stroff yfir þessar 7 lykkjur þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 8-8-9-9-10-10 cm frá öxl – stillið mál eftir kanti í hálsmáli á hægra framstykki. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – byrjið yst á öxl og saumið í lykkjur eina og eina inn að hálsi. Saumið kant í hálsi saman mitt að aftan og saumið kant í hálsmáli við hálsmál aftan í hnakka. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður að stroffi innan við 1 kantlykkju (= 10 cm klauf í hvorri hlið). Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Á ERMI: Byrjið frá réttu neðst í öðrum handveginum og prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni ca 92 til 110 lykkjur í kringum handveg á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 og kanturinn má ekki vera of stífur. Prjónið A.1 hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #decemberskiesvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.