Monique skrifaði:
Kunt u het muts patroon in geschreven vorm uitleggen? Ik heb alles geprobeerd en ben een ervaren haakster maar dit telpatroon is wel verwarrend door die schuine strepen tussen de toeren….en heel moeilijk te begrijpen! dank u voor hulp.
21.06.2022 - 11:23DROPS Design svaraði:
Dag Monique,
We hebben helaas alleen het telpatroon en geen uitgeschreven versie. Bij het patroon staan een aantal video's die je wellicht verder kunnen helpen. De schuine strepen met de bolletjes/vierkantjes eraan geven aan in welke steek van een vorige toer je de driedubbele stokjes moet haken.
26.06.2022 - 10:13
Gosia skrifaði:
Dzień dobry, czy mogę prosić o podpowiedź, jak tę czapkę zrobić dla obwodu głowy 57-59 cm?
28.02.2022 - 19:41DROPS Design svaraði:
Witaj Gosiu, należy albo odpowiednio zwiększyć obwód, albo użyć grubszego szydełka. Pozdrawiamy!
01.03.2022 - 14:21
Iliana skrifaði:
È sicuramente un problema mio ma ho provato a capirci qualcosa e sono riuscita a fare soltanto il primo giro malgrado gli sforzi. Gli schemi dovrebbero aiutare e invece mi hanno confuso ancora di più.
08.02.2022 - 20:08DROPS Design svaraði:
Buonasera Iliana, se ci spiega quale passo del modello non le è chiaro, possiamo aiutarla in modo più preciso. Buon lavoro!
08.02.2022 - 23:26
Sylvie skrifaði:
Bonjour J'ai une précision à demander lorsque l'on commence A2, A3 et A4 : pour A2, on fait une bride en relief incomplète et on a donc 2 mailles sur le crochet. Ensuite, on fait 3 brides normales et donc on a toujours 2 mailles sur le crochet. Sur la maille suivante, on fait une triple bride en "éliminant la maille restée sur le crochet" lors du dernier jeté. Et sur cette même maille, on fait une bride incomplète....s Est ce cela? Merci de votre aide
28.12.2021 - 20:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Sylvie, quand on fait A.2, on ne crochète que la triple bride en relief car il n'y a qu'une seule maille - cf NOTE à la fin de la légende; ensuite, dans A.3/A.4, vous crochetez le 6ème symbole (= 1 triple-bride relief) sans la terminer (= 2 boucles sur le crochet) et vous enchaînez avec le 7ème symbole (1 triple-bride en relief en écoulant à la fin les 2 premières boucles sur le crochet). Bon crochet!
03.01.2022 - 09:29
Sina skrifaði:
Hallo, \r\nich verstehe leider nicht, ob die erste Reihe mit A3 und A4 nur Stäbchen sind oder schon Reliefstäbchen. Wo beginnen die Reliefstäbchen, in der 3.Reihe?\r\nVielen Dank
20.12.2021 - 20:19DROPS Design svaraði:
Liebe Sina, die 1. Reihe in A.3 und A.4 ist mit Stäbchen gehäkelt (siehe Pfeil + 2. Symbol), die Reliefstäbchen beginnen bei der 3. Reihe. Viel Spaß beim häkeln!
21.12.2021 - 10:22
Sabrina skrifaði:
Buongiorno, non riesco a capire il modello...ad esempio nel primo punto di A2 indicato dalla freccia va lavorata una maglia alta nella maglia sotto o una maglia alta in rilievo? E poi come si continua?
07.12.2021 - 05:35DROPS Design svaraði:
Buonasera Sabrina, deve lavorare una maglia alta nella maglia sotto, Buon lavoro!
07.12.2021 - 21:48
Crissi skrifaði:
Hallo, ich verstehe leider dieses Muster nicht. Wie beginne ich dieses Überkreuz-Muster mit den Dreifach-Reliefstäbchen? Ich habe schon viel probiert, aber leider klappt es nicht. Könnt ihr mir helfen? Liebe Grüße Crissi
22.11.2021 - 21:13DROPS Design svaraði:
Liebe Crissi, die Runden beginnen mit A.2, dann wiederholen Sie A.3 und enden Sie - in Runden - mit den 3 ersten Maschen A.4 (die 4. Masche A.4 häkeln Sie nicht in Runden, diese Masche ist die Masche von A.2, dh bei der 3. und 5. Runde häkeln Sie das Reliefstäbchen in A.4 um die erste Masche der Runde = A.2. Viel Spaß beim häkeln!
23.11.2021 - 08:22
Laurent skrifaði:
Dans les explications du diagramme, pour le 5ieme symbole (losange vide), vous écrivez "1 bride en relief autour d'1 bride du rang/tour précédent", c'est plutôt une triple bride non ?
12.10.2021 - 14:25DROPS Design svaraði:
Bonjour Laurent, sauf erreur de ma part, le 5ème symbole n'est présent qu'une seule fois dans le diagramme: lorsque que l'on commence A.2-A.3-A.4, au premier rang de triple-brides en relief que l'on va crocheter autour des brides du tour/rang précédent, par la suite, vous crochetez effectivement autour des triple-brides du rang/tour précédent (7ème et 8ème symbole). Bon crochet!
13.10.2021 - 07:36
Di skrifaði:
Waffel-Time
15.08.2021 - 23:11
Jutta skrifaði:
Kann ich mir auch gut zweifarbig vorstellen.
06.08.2021 - 12:17
Pinecone Set#pineconeset |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Hekluð húfa og hálsskjól úr DROPS Air. Stykkið er heklað með stuðlakróksmynstri.
DROPS 225-20 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar heklað er í hring (og snúið er við í hverri umferð): Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur. Loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru heklaðar sem viðbót. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, heklið 1 loftlykkju. Loftlykkjan kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur er hekluð sem viðbót. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð. Þegar heklað er fram og til baka (á við um hálsskjól): Í byrjun á umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur. Loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur er hekluð sem viðbót. Í byrjun á umferð með fastalykkjum, heklið 1 loftlykkju. Loftlykkjan kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur er hekluð sem viðbót. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ÚRTAKA-1: Heklið 2 fastalykkjur saman í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkju og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur um heklunálina), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2: Heklið 2 stuðla saman í 1 stuðul þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað neðan frá og upp. Heklað er í hring, en snúið er við í hverri umferð þannig að önnur hver umferð er hekluð frá réttu og röngu. HÚFA: Heklið 81 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA með heklunál 4,5 með DROPS Air og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið 3 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 80 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa með. Snúið og heklið frá umferð með ör í A.1 (fyrsta umferð er hekluð frá réttu) – stykkinu er snúið í hverri umferð, svo að í hverri umferð með fastalykkjum er heklað frá röngu og í hverri umferð með stuðlum og stuðlakróksmynstri er heklað frá réttu. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina mælist stykkið ca 4 cm. Heklið nú mynstur frá umferð með ör í A.2 þannig: Heklið A.2 yfir fyrstu lykkju, A.3 yfir næstu 76 lykkjur (= 19 mynstureiningar með 4 lykkjum), heklið fyrstu 3 lykkjur í A.4 – síðasta lykkjan í A.4 jafngildir lykkju í A.2 (í byrjun á umferð) og er með til að sýna hvar stuðlakróks-lykkjurnar eru heklaðar, endurtakið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu. Haldið svona áfram fram og til baka með 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu og endurtakið A.x. á hæðina. Í 3. og 7. umferð er síðasta stuðlakróks-lykkjan í umferð hekluð um stuðul/stuðlakróks-lykkju í byrjun á umferð (þetta er gert til að mynstrið haldi áfram alla leiðina hringinn). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 16 cm – stillið af að endað sé eftir fyrstu umferð í A.x, þ.e.a.s. í umferð með fastalykkjum frá röngu, endið umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð, síðan er hekluð 1 keðjulykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum í umferð. Núna er þetta byrjun á umferð. Heklið nú frá umferð með ör í A.5 = 10 mynstureiningar (fyrsta umferð í mynsturteikningu er einungis til að sýna hvar stuðlakróks-lykkjan er hekluð). Þegar A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 20 lykkjur í umferð. Heklið 1 umferð með fastalykkjum þar sem 2 og 2 fastalykkjur eru heklaðar saman í 1 fastalykkju – sjá ÚRTAKA-1 = 10 lykkjur. Heklið 1 umferð með stuðlum þar sem 2 og 2 stuðlar eru heklaðir saman í 1 stuðul – sjá ÚRTAKA-2 = 5 stuðlar. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum síðustu lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 25 cm ofan frá og niður. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst heklað fram og til baka í 2 hlutum þar til klaufin hefur verið hekluð til loka. Síðan er heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð, þannig að áferðin verði alveg eins og heklað sé fram og til baka. HÁLSSKJÓL: Heklið 46-50 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) – sjá LOFTLYKKJA með heklunál 5 með DROPS Air. Snúið og heklið fyrstu umferð frá röngu þannig: 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 1 stuðull + 3 loftlykkjur til að snúa við með) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af þeim 42-46 lykkjum sem eftir eru á heklunálinni = 43-47 stuðlar + 3 loftlykkjur. Heklið nú mynstur þannig: Byrjið umferð við ör í A.1 og heklið A.1 þar til 1 stuðull er eftir, heklið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar eins. Haldið svona áfram fram og til baka. Í síðustu umferð í A.1 er fækkað um 1-1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman þar í 1 fastalykkju – sjá ÚRTAKA-1 = 42-46 fastalykkjur + 1 loftlykkja. Stykkið mælist ca 4 cm. Heklið nú áfram fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.2 yfir fyrstu lykkju, A.3 yfir næstu 36-40 lykkjur (= 9-10 mynstureiningar með 4 lykkjur), A.4 yfir næstu 4 lykkjur, 1 stuðull í síðustu lykkju. UMFERÐ 2 (ranga): Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, mynstur eins og áður yfir næstu 41-45 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til 2 umferðir eru eftir í A.2 til A.4. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í næstu umferð með fastalykkjum er fækkað um 1 fastalykkju í byrjun og í lok umferðar (= 2 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA-1 = 40-44 fastalykkjur + 1 loftlykkja. Geymið stykkið og heklið annað stykki á sama hátt. Nú eru bæði stykkin hekluð saman með því að hekla mynstur frá síðustu umferð í A.2 til A.4 frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu lykkju, heklið 9-10 mynstureiningar með A.3, heklið fyrstu 3 lykkjur í A.3 yfir síðustu 3 lykkjur á fyrra stykki (síðasta stuðlakróks-lykkjan er hekluð um fyrstu stuðlakróks-lykkju á seinna stykkinu), heklið síðustu lykkju í A.2 yfir fyrstu lykkju á seinna stykkinu, heklið mynstur einingu A.3 á seinna stykkinu (fyrsta stuðlakróks-lykkjan er hekluð í síðustu stuðlakróks-lykkju frá fyrri umferð með stuðlakróks-lykkjum í lok á fyrra stykkinu), heklið 8-9 mynstureiningar til viðbótar með A.3, heklið fyrstu 3 lykkjur í A.4 (síðasta stuðlakróks-lykkjan er hekluð um fyrstu lykkju í byrjun á fyrra stykki) og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Nú eru 80-88 lykkjur í umferð og 20-22 ferningar með stuðlakróks-lykkjum. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu. Haldið svona áfram fram og til baka með 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu og endurtakið A.x á hæðina. Í 7. umferð er síðasta stuðlakróks-lykkjan í umferð hekluð um stuðul/stuðlakróks-lykkju í byrjun á umferð (þetta er gert til að mynstrið haldi áfram alla leið hringinn). Þegar stykkið mælist ca 12-12 cm frá klauf – stillið af að endað sé eftir umferð með fastalykkjum, heklið kant þannig: Byrjið á umferð með ör í A.1 og heklið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina mælist hálsskjólið ca 16-16 cm frá klauf og ca 26-26 cm frá uppfitjunarkanti. Klippið þráðinn og festið. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pineconeset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 225-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.