Sleeping Beauty skrifaði:
Those sleeves are straight out of a fairytale, so pretty.
15.01.2021 - 03:22
Corinne D skrifaði:
I'd name this one "fluidity"
13.01.2021 - 15:19
Linda skrifaði:
Flutterby Beauty
10.01.2021 - 05:35
Corinne skrifaði:
Thank you for adding to your crochet summer top offerings. I love crochet, and prefer a set-in sleeve style, rather than circular yokes and raglans.
09.01.2021 - 09:54
Sara skrifaði:
Butterfly sleeve
08.01.2021 - 23:44
JK skrifaði:
Super fin model.👍🏼☀️😎 Hvornår tænker i at der kommer en opskrift på den? Og hvilken garn type skal man købe ind? Det er jo rart at have garnet klar når opskriften kommer. 🙈
08.01.2021 - 16:58
Martha skrifaði:
Durch die Form der Ärmelchen sieht das Modell wunderbar leicht aus - sommerlich.
08.01.2021 - 08:51
Pink Petunias#pinkpetuniastop |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Muskat. Stykkið er heklað ofan frá og niður með klauf mitt aftan í hnakka og stuttum puffermum. Stærð XS - XXL.
DROPS 223-35 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ÚTAUKNING (á við um handveg): Aukið út um 1 lykkju þannig: Heklið 1 loftlykkju í lok umferðar (= 1 ný lykkja). Aukið út um 3 lykkjur þannig: Heklið 3 loftlykkjur í lok umferðar (= 3 nýjar lykkjur). Í næstu umferð á eftir útaukningu, heklið 1 stuðul í hverja og eina af nýjum loftlykkjum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki, bakstykki og ermar er heklað fram og til baka hvert fyrir sig og heklað er ofan frá og niður. Þegar stykkin hafa verið hekluð til loka eru þau saumuð saman. Að lokum er heklaður kantur í kringum hálsmál. FRAMSTYKKI: Hægri öxl: Heklið 18-19-20-20-21-21 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunál, heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af næstu 14-15-16-16-17-17 loftlykkju = 15-16-17-17-18-18 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Þegar heklaðar hafa verið 7-7-7-9-9-9 umferðir með stuðlum, klippið þráðinn og geymið stykkið. Heklið vinstri öxl. Vinstri öxl: Heklið 18-19-20-20-21-21 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 14-15-16-16-17-17 loftlykkjum = 15-16-17-17-18-18 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið 7-7-7-9-9-9 umferðir með stuðlum, heklið næstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af 15-16-17-17-18-18 stuðlum á vinstri öxl, heklið 32-32-32-34-34-36 loftlykkjur (= hálsmál), heklið 1 stuðul í hvern af 15-16-17-17-18-18 stuðlum á hægri öxl – passið uppá að heklað sé frá röngu þannig að áferðin verður alveg eins á hægri og vinstri öxl. Nú eru 62-64-66-68-70-72 stuðlar í umferð. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum. Þegar stykkið mælist 10-11-12-11-12-11 cm frá öxl, byrjar útaukning í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING. Aukið út um 1 lykkju 3-2-1-1-1-1 sinnum, 3 lykkjur 0-1-2-3-3-4 sinnum og 5-6-7-7-11-13 lykkjur 1 sinni = 78-86-94-102-112-124 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum þar til stykkið mælist alls 42-44-46-48-50-52 cm frá öxl og niður. Klippið þráðinn frá og festið. BAKSTYKKI: Hægri öxl: Heklið 18-19-20-20-21-21 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 14-15-16-16-17-17 loftlykkjum = 15-16-17-17-18-18 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir með stuðlum, klippið þráðinn frá. Heklið 16-16-16-17-17-18 lausar loftlykkjur (= hálsmál), heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul á öxl – passið uppá að heklað sé frá réttu þannig að önnur hver umferð á öxl verði alveg eins frá réttu og röngu = 31-32-33-34-35-36 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að auka út fyrir handveg, jafnframt þegar stykkið mælist 15 cm, geymið stykkið og heklið vinstri öxl. Heklið síðan vinstri og hægri öxl saman, þannig að það myndist klauf aftan á miðju baki. Lestu næsta kafla áður en þú heklar áfram. Þegar stykkið mælist 10-11-12-11-12-11 cm frá öxl, byrjar útaukning fyrir handveg í hlið – aukið er út í lok hverrar umferðar frá réttu – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið út um 1 lykkju 3-2-1-1-1-1 sinnum, 3 lykkjur 0-1-2-3-3-4 sinnum og 5-6-7-7-11-13 lykkjur 1 sinni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm frá öxl – stillið af að síðasta umferð sem er hekluð sé frá röngu, klippið þráðinn frá. Geymið stykkið. Heklið vinstri öxl. Vinstri öxl: Heklið 18-19-20-20-21-21 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af næstu 14-15-16-16-17-17 loftlykkjum = 15-16-17-17-18-18 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið 3 umferðir með stuðlum, heklið 16-16-16-17-17-18 loftlykkjur í lok 3. umferðar (= hálsmál). Heklið 3 loftlykkjur til að snúa við með og heklið síðan 1 stuðul í hverja lykkju = 31-32-33-34-35-36 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum. Aukið nú út fyrir ermar alveg eins og á hægri öxl, en aukið er út í lok hverrar umferðar frá röngu. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm – stillið af að síðasta umferð sé hekluð frá röngu, heklið vinstri og hægri öxl saman frá réttu þannig: Heklið eins og áður yfir lykkjur á vinstri öxl, heklið síðan yfir lykkjur frá hægri öxl. Nú er klauf mitt aftan á bakstykki. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum og aukið út fyrir handveg í hvorri hlið. Þegar öll útaukning fyrir handveg hefur verið gerð til loka eru 78-86-94-102-112-124 lykkjur og stykkið mælist ca 18-19-20-21-22-23 cm frá öxl. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm frá öxl og niður. Klippið þráðinn frá og festið. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið hliðarsauma og skiljið eftir smá klauf ca 5 cm í hvorri hlið neðst á toppnum. ERMI: Heklið 27-27-29-29-31-31 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Muskat. Snúið og heklið mynstur þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 3 loftlykkjur, A.2 yfir næstu 2 loftlykkjur, A.3 yfir næstu 18-18-20-20-22-22 loftlykkjur, A.2 yfir næstu 2 loftlykkjur, A.4 yfir síðustu 2 loftlykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka, haldið áfram alveg eins með því að auka út eins og útskýrt er í A.2 (þ.e.a.s. aukið út um 1 stuðlahóp í hverri umferð sem er hekluð) innan við A.1 og A.4 þar til heklaðar hafa verið 8-8-9-9-10-10 umferðir með mynstri og aukið hefur verið út alls 7-7-8-8-9-9 sinnum í hvorri hlið = 25-25-28-28-31-31 stuðlahópar. Heklið síðan A.3 yfir alla loftlykkjuboga og A.1 og A.4 í hvorri hlið eins og áður þar til ermin mælist ca 16-16-17-17-18-18 cm mitt á ermi. Klippið þráðinn og festið. KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Í kringum handveg er heklaður kantur þannig – byrjið mitt undir ermi með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju: UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í næstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* umferðina hringinn – stillið af þannig að heklaður sé fjöldi fastalykkja / loftlykkja sem er deilanlegur með 6, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. Skiptið ermum meðfram handveg ca 16-16-18-18-19-19 cm niður hvoru megin við axlasauminn. Ermar koma ekki til með að mætast undir ermi. Saumið ermar í við handveg í ystu lykkju. Klippið þráðinn og festið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Í kringum hálsmál er heklaður kantur þannig – byrjið mitt að aftan neðst í klauf og heklið fyrstu umferð frá röngu þannig: UMFERÐ 1: Heklið1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, 1 loftlykkja, * 1 fastalykkja í næstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* 12 sinnum upp meðfram klauf, haldið áfram alveg eins í kringum kant í hálsmáli og heklið alveg eins 12 sinnum niður meðfram hinni hlið á klauf – stillið af þannig að heklaður sé sá fjöldi með fastalykkjum / loftlykkjum sem er deilanlegur með 6, endið með 1 fastalykkju neðst við klauf. Snúið stykkinu og heklið 2. umferð frá réttu. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, * hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 2 fastalykkjur um næstu loftlykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 2 fastalykkjur um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 fastalykkju neðst við klauf. Saumið nú kant í hálsi neðst við klauf saman þannig: Leggið vinstri hlið á kanti yfir hægri hlið á kanti og saumið nokkur spor í gegnum bæði lögin þannig að kantarnir festast saman. Saumið tölur í hægri hlið á klauf. Tölum er hneppt í gegnum loftlykkjuboga í vinstri hlið á kanti. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pinkpetuniastop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.