Open Country Top |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Heklaður toppur með áferðamynstri úr DROPS Cotton Merino. Stærð S - XXXL.
DROPS 223-34 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar þegar heklað er í hring.. LEIÐBEININGAR – Á við þegar heklað er fram og til baka: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er byrjað með 1 loftlykkju (þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju). Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er byrjað með 3 loftlykkjum (þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðul). Endið umferð með 1 stuðul í 3. loftlykkju, þessi stuðull er heklaður til að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið og hoppað er yfir í næstu umferð. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. ÚRTAKA-1: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni),heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku við handveg): Fækkið alltaf lykkjum með því að hekla 2 og 2 stuðla saman – munið eftir ÚRTAKA-1. Í 3. og 4. umferð í A.1 er þess vegna heklaður 1 stuðull í hvern stuðul frá umferðinni að neðan yfir lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heila mynstureiningu A.1 (1 mynstureining A.1 = 3 lykkjur á breidd). ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig fækka á lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja (t.d. 156 lykkjur) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 26. Í þessu dæmi eru heklaðar 25. og 26. hver lykkja saman. Ef auka á út, þá eru heklað í þessu dæmi 2 lykkjur í 26. hverja lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, neðan frá og upp. Stykkinu er snúið við eftir hverja umferð og heklað fram og til baka í umferð til að áferðin verði alveg eins allan tímann. Þegar stykkið skiptist við handveg er heklað fram og til baka. Að lokum er heklaður skrautkantur. TOPPUR: Heklið 156-168-180-192-216-240 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 4 með Cotton Merino. Tengið saman í hring með keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 156-168-180-192-216-240 lykkjur í umferð. Heklið síðan í hring eftir A.1. Stykkið er heklað í hring, en stykkinu er snúið við eftir hverja umferð, þannig að heklað er bæði frá réttu og frá röngu. Þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins í öllu stykkinu. A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. Þegar stykkið mælist ca 4-5-6-7-8-9 cm – stillið af að næsta umferð sé 1., 5. eða 6. umferð í A.1, fækkið um 6 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 og ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir). Fækkið lykkjum svona í hvert skipti sem 1., 5. eða 6. umferð er hekluð, fækkið alls 6 sinnum = 120-132-144-156-180-204 lykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm – stillið af að næsta umferð sé 1., 5. eða 6. umferð í A.1. Aukið nú út um 6 stuðla jafnt yfir í umferð með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul. Aukið svona út í hvert skipti sem 1. og 5. umferð er hekluð, aukið út alls 4 sinnum = 144-156-168-180-204-228 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm – stillið af að næsta umferð sé 1., 5. eða 6. umferð, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki með því að setja eitt prjónamerki í hvora hlið þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð, hoppið yfir næstu 72-78-84-90-102-114 lykkjur, setjið annað prjónamerki hér, það eru 72-78-84-90-102-114 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Heklið nú framstykki og bakstykki til loka hvort fyrir sig og heklað er fram og til baka – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. FRAMSTYKKI: Heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 4-5-4-5-6-7 lykkjur, heklið síðan fram þar til 4-5-4-5-6-7 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í annarri hlið, snúið stykkinu. Í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Heklið 4 ystu lykkjurnar í hvorri hlið saman 2 og 2. Endurtakið úrtöku í hverri umferð 0-0-1-1-2-3 sinnum til viðbótar. Í næstu umferð eru 2 ystu lykkjurnar heklaðar saman, endurtakið úrtöku í hverri umferð 4-4-4-5-6-7 sinnum til viðbótar. Eftir allar úrtökur eru 50-54-58-60-64-68 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 40-41-43-44-46-47 cm, heklið nú hvora öxl til loka fyrir sig – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu. Stykkið er nú heklað til loka með 1 stuðul í hvern stuðul, mynstur er ekki lengur heklað eftir A.1 ÖXL: Haldið áfram með stuðla yfir fyrstu 15-17-19-20-21-22 lykkjur frá réttu, snúið og heklið 4 fyrstu lykkjurnar saman 2 og 2 fyrir hálsmáli, heklið síðan út umferðina. Snúið og heklið fram þar til 4 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, heklið þær saman 2 og 2, snúið. Í næstu umferð eru 2 fyrstu lykkjur heklaðar saman, síðan er heklað út umferðina. Snúið, heklið þar til 2 lykkjur eru eftir, heklið þær saman. Snúið, heklið 2 fyrstu lykkjur saman, heklið út umferðina = 8-10-12-13-14-15 stuðlar eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, klippið þráðinn. Heklið hina öxlina á sama hátt, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. Byrjið frá réttu, úrtaka við háls er gerð í lok umferðar frá röngu og byrjun á umferð frá réttu. BAKSTYKKI: Heklið á sama hátt og framstykki. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant svo saumurinn verði ekki of þykkur. SKRAUTKANTUR: Skrautkanturinn er heklaður í kringum hálsmál og í kringum handveg. Skrautkanturinn er heklaður með heklunál 4 með Cotton Merino þannig: 1 fastalykkja, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 3. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið fram ca 1 cm og heklið 1 fastalykkju *. Heklið frá *-* út umferðina og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun á umferð. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Clara wrote:
Buongiorno, Ho eseguito questo top, ma risulta corto, eventualmente potrei allungarlo dal basso?grazie mille, cordiali saluti Clara
24.09.2021 - 13:43DROPS Design answered:
Buonasera Clara, ha eseguito il campione prima di iniziare il lavoro? Buon lavoro!
26.09.2021 - 20:59Johanne Caouette wrote:
J’aime le modèle combien de balles de laine que je dois prendre et aussi comment mesurer buste 112 cm taille 108 cm jcaouette62 @outlook.com merci
19.01.2021 - 04:24Inge wrote:
Cotton droppie
08.01.2021 - 15:19Ana Mafalda Faria wrote:
Crochet! Not knitting, rigth?
07.01.2021 - 19:46