DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Red River Cave

Heklaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð XS - XXL.

DROPS 223-28
DROPS Design: Mynstur e-311
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300-300-350 g litur 59, rauður leir

HEKLFESTA:
20 stuðlar á breidd og 11,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma ekki í veg fyrir 1. stuðul, heldur eru heklaðar sem viðbót við lykkjur í umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 94 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 5,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 5. hverja lykkju.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla næstu 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Kantur á ermum er heklaður í hring ofan frá og niður.
ATH: Það er mikilvægt að heklfestan haldist á hæðina til að mál á lengd á berustykki passi.

BERUSTYKKI:
Heklið 95-103-103-109-109-115 loftlykkjur – sjá HEKLFESTA FYRIR LOFTLYKKJU með heklunál 4 með Safran og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 3 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 1 stuðul í hverja af 94-102-102-108-108-114 loftlykkjum og aukið jafnframt út 18-22-22-28-40-46 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 112-124-124-136-148-160 stuðlar.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig:
Fyrsta prjónamerki: Setjið 1. prjónamerki í byrjun á umferð.
Annað prjónamerki: Hoppið yfir næstu 16 lykkjur, setjið 2. prjónamerki hér.
Þriðja prjónamerki: Hoppið yfir næstu 40-46-46-52-58-64 lykkjur, setjið 3. prjónamerki hér.
Fjórða prjónamerki: Hoppið yfir næstu 16 lykkjur, setjið 4. prjónamerki hér.
Nú eru 40-46-46-52-58-64 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Prjónamerkin eiga að fylgja með í stykkinu. Þau eiga að vera á undan hverri mynstureiningu A.2 í umferð og eru notuð þegar auka á út jafnt yfir.

Heklið nú mynstur og aukið út þannig:
A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar.
Heklið A.2 yfir fyrstu 4 stuðla, A.3 yfir næstu 12 stuðla (= 2 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.2 yfir næstu 4 stuðla, heklið A.3 yfir næstu 36-42-42-48-54-60 stuðla (= 6-7-7-8-9-10 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.2 yfir næstu 4 stuðla, A.3 yfir næstu 12 stuðla, A.2 yfir næstu 4 stuðla, A.3 yfir síðustu 36-42-42-48-54-60 stuðla.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Haldið svona áfram með mynstur, jafnframt er aukið út jafnt yfir:
Í 6. umferð í mynstri er aukið út þannig:
Heklið * A.2 eins og áður, heklið A.3 fram að næsta prjónamerki og aukið jafnframt út 0-6-6-6-6-6 stuðla jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING (= 12-18-18-18-18-18 lykkjur), heklið A.2 eins og áður, heklið A.3 fram að næsta prjónamerki og aukið jafnframt út 6-6-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir (= 42-48-54-60-66-72 lykkjur) *, heklið *-* 1 sinni til viðbótar í umferð (= 12-24-36-36-36-36 lykkjur fleiri) = 180-204-216-228-240-252 lykkjur í umferð.
Í stærð XS, S og M er heklað áfram frá ALLAR STÆRÐIR að neðan.

Í stærð L, XL og XXL er aukið út þannig:
Í 10. umferð í mynstri er aukið út þannig:
Heklið * A.2 eins og áður, heklið A.3 fram að næsta prjónamerki og aukið jafnframt út 6-6-6 lykkjur jafnt yfir (= 24-24-24 lykkjur), A.2, heklið A.3 eins og áður fram að næsta prjónamerki og aukið jafnframt út 6-6-6 lykkjur jafnt yfir (= 66-72-78 lykkjur) *, heklið *-* 1 sinni til viðbótar í umferð (= 24-24-24 lykkjur fleiri) = 288-300-312 lykkjur í umferð.

ALLAR STÆRÐIR:
Heklið þar til A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina.
Í síðustu umferð í A.2 er sett 1 nýtt prjónamerki mitt í umferð A.2 (þ.e.a.s. 18 stuðlar hvoru megin við prjónamerki í hverri og einni af 4 mynstureiningum með A.2). Takið frá öll eldri prjónamerki (= 4 prjónamerki eftir í stykki). Lykkjur á milli prjónamerkja merkja skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 48-54-54-60-60-60 stuðlar á hvorri ermi). Nú eru 252-276-288-324-336-348 stuðlar í umferð.
Heklið nú mynstur þannig: A.4 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. Haldið áfram með A.3 hringinn í umferð og yfir 36 stuðla í A.2 eru heklaðar 6 mynstureiningar með A.3. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina 1 sinni, endurtakið mynstur A.3a á hæðina.
Heklið svona þar til stykkið mælist 20-20-22-24-26-28 cm frá byrjun á berustykki – stillið af að endað sé eftir 1., 3., 7., 12. eða 13. umferð í A.3a! Þetta er gert svo það verði einfaldara að hekla mynstur á fram- og bakstykki og ermum.

Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið A.3a fram að fyrsta prjónamerki (= 3 mynstureiningar fyrir bakstykki), heklið 8-8-8-10-10-10 loftlykkjur, hoppið yfir lykkjur á milli 2 prjónamerkja (= 8-9-9-10-10-10 mynstureiningar fyrir ermi), heklið A.3a fram að næsta prjónamerki (= 13-14-15-17-18-19 mynstureiningar fyrir framstykki), heklið 8-8-8-10-10-10 loftlykkjur, hoppið yfir lykkjur á milli 2 prjónamerkja (= 8-9-9-10-10-10 mynstureiningar fyrir ermi), heklið A.3a út umferðina (= 10-11-12-14-15-16 mynstureiningar – Nú eru alls 13-14-15-17-18-19 mynstureiningar fyrir bakstykki). Klippið þráðinn og festið.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Byrjið í 5. loftlykkju af 8-8-8-10-10-10 loftlykkjum undir ermi í annarri hlið. Heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í sömu loftlykkju. Heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af næstu 3-3-3-5-5-5 loftlykkjur, heklið A.3a eins og áður fram að loftlykkjum undir hinni erminn, 1 stuðull í hverja af 8-8-8-10-10-10 loftlykkjum undir ermi. Heklið A.3a eins og áður fram að loftlykkjum undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja og eina af síðustu 4-4-4-4-4-4 loftlykkjum undir ermi = 172-184-196-224-236-248 lykkjur.
Þær 8-8-8-10-10-10 loftlykkjur undir ermi eru heklaðar í stuðlum.
Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Í fyrstu umferð í A.3a sem er hekluð með stuðlum er fækkað um 4-4-4-2-2-2 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 168-180-192-222-234-246 lykkjur. Heklið síðan A.3a umferðina hringinn (= 28-30-32-37-39-41 mynstureiningar í umferð). Endurtakið A.3a á hæðina. Þegar stykkið mælist 12 cm, stillið af að næsta umferð sé með stuðlum, fækkið um 6 stuðla jafnt yfir = 162-174-186-216-228-240 stuðlar. A.3a er nú endurtekið 27-29-31-36-38-40 sinnum í umferð.

Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá prjónamerki, stillið af að næsta umferð sé með stuðlum, aukið út 6 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í hverri og einni af næstu 3 umferðum með stuðlum (= 24 lykkjur fleiri) = 186-198-210-240-252-264 stuðlar. A.3a er endurtekið 1 sinni fleiri á breiddina í hvert skipti sem aukið er út. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka endurtakið A.3a 31-33-35-40-42-44 sinnum á breiddina.
Heklið þar til stykkið mælist 34-36-36-36-36-36 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé eftir umferð með stuðlum.
Klippið þráðinn frá og festið. Toppurinn mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

KANTUR ERMI:
Byrjið í 4. loftlykkju af 8-8-8-10-10-10 loftlykkjum undir ermi. Heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í sömu loftlykkju. Heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 4-4-4-6-6-6 loftlykkju, heklið næstu umferð í A.3a (þ.e.a.s. í umferð með stuðlum) þar til 3 loftlykkjur eru eftir í umferð, heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 3 loftlykkjum. Nú er eftir 1 umferð með stuðlum og 1 umferð með fastalykkjum/loftlykkjum – heklið e.t.v. áfram með 1 stuðul í hvern stuðul að óskaðri lengd.
Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið jafnframt um 10-10-8-10-6-4 stuðla jafnt yfir = 46-52-54-60-64-66 stuðla.
Heklið * 1 fastalykkju í fyrsta/næsta stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* í kringum alla ermina. Klippið þráðinn frá og festið.
Heklið hinn kant á ermi á sama hátt.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga eða loftlykkju fyrir neðan
symbols = 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga fyrir neðan
symbols = 1 fastalykkja á milli 2 stuðla fyrir neðan
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð – byrjaðu á næstu umferð
symbols = heklið 3 loftlykkjur í byrjun á umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = heklið 1 loftlykkju í byrjun á umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Doris Herrmann wrote:

Ich habe zu wenige Maschen nach den Zunahmen. Es sollten nach der Runde 6 252 Maschen sein. Ich habe aber nur 196 Maschen. Wo liegt denn mein Denkfehler? Ich habe für Größe XXL 115 Maschen angeschlagen, die Runde geschlossen und danach 46 Maschen zugenommen. In Runde 6 insg. 36 Maschen zugenommen. Was habe ich da falsch verstanden? Danke für die Hilfe. MfG

19.04.2024 - 11:52

DROPS Design answered:

Liebe Frau Herrmann, nach der 6. Runde haben Sie: 18 M in A.2, 12+6 = 18 M A.3, 18 M A.2, 60+12= 72 M A.3, 18 M A.2, 12+6 = 18 M A.3, 18 M A.2 und 60+12=72 M A.3 = 18+18+18+72+18+18+18+72=252 Maschen. Hoffentlich kann das Ihnen helfen. Viel Spaß beim häkeln!

19.04.2024 - 12:33

country flag Giusi wrote:

Non capisco il giro numero 6: lavoro A.2 come da schema/lavoro A 3 con 18 aumenti/lavoro A 2 come da schema/lavoro A . 3 con 60 aumenti. Mi sembra sproporzionato . Poi devo lavorare tutto un'altra volta sul giro con 36 aumenti.... non riesco a capire Giusi

07.04.2024 - 12:13

country flag Giusi wrote:

Buongiorno. Ho iniziato il lavoro ma arrivata al giro numero 6 mi sono bloccata perché mi risulta incomprensibile. Ho riscontrato dalle domande delle altre signore che hanno Incontrato le mie stesse difficoltà . Sarò grata se potrete aiutarmi. Giusi

04.04.2024 - 23:22

DROPS Design answered:

Buongiorno Giusi, può spiegarci meglio il suo problema? Buon lavoro!

06.04.2024 - 09:41

country flag Sandra wrote:

Hallo liebes Team, ich versuche mich gerade an diesem Modell und habe ab Reihe 6 ein Problem. Die Markierer sitzen nicht mittig über dem Schulterbereich. Rapport, Maschen Zunahmen, alles habe ich mehrfach überprüft und alles stimmt. Wo könnte der Fehler liegen??? Viele liebe Grüße, Sandra

10.01.2024 - 12:08

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, die Markierer sollen genauso wie zuvor sein, als die Zunahmen in A.3 gehäkelt werden, je nach der Grösse wird man entweder 0 (Größe S, Armel), oder 1 Rapport (6 Zunahmen) oder 2 Rapporter (12 Zunahmen) zunehmen, so gibt es 0-1-1-1-1-1 Rapport zwischen Anfang der Runde und 1. Markierer / 2. und 3. Markierer und 1-1-2-2-2-2 Rapporter mehr zwischen 1. und 2. + zwischen 3. und 4. Markierer. Viel Spaß beim häkeln!

10.01.2024 - 16:15

country flag Mette wrote:

Hei. Slik jeg tolker oppskriften så er det kunne 1 rad med staver før man går på første omg med luftmaskebuer i diagrammet, men på bildet så er det 2 rader med staver før første rad på mønsteret. Er det bare 1 rad staver før man begynner på diagram eller 2?

30.05.2023 - 18:01

DROPS Design answered:

Hej Mette, jeg tror du har ret i at der skal være 2 rader med staver - tak for info :)

01.06.2023 - 14:13

country flag Maririta Bianchi wrote:

Salve, vorrei fare questo modello con un filato più sottile utilizzando al massimo uncino n. 3. ho fatto un rapido conto di quante maglie dovrei aggiungere e come suddividerle ( il mio campione è 25 ma x 14 giri = 10cm x10cm ) ma seguendo lo schema come faccio a calcolare quanti giri in più devo fare per ottenere la stessa lunghezza ?, grazie per la vostra attenzione

15.05.2023 - 18:09

DROPS Design answered:

Buonasera Maririta, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

15.05.2023 - 21:37

country flag Thea Emilie wrote:

Hei! Når en skal øke antall masker i rad 6 i diagrammet skjønar eg ikkje korleis eg skal auke, ettersom aukinga skal skje i A.3. A.2 har stavmasker i maska under i rad 6, men A.3 har ingen rad 6 og eg byrjer då på botnen av diagrammet, der rad ein er fastmasker, luftmasker og stavar, skal eg auke i denne rada? Eller hekle stavmasker slik som ein har i rad 6 i A.2?

11.05.2023 - 12:43

DROPS Design answered:

Hei Thea. Jo, 6. rad i A.3 består bare av staver, samme som 6. rad i A.2. mvh DROPS Design

15.05.2023 - 11:31

country flag Christine Rivière wrote:

Bonjour au rang 4 dans A 2 commence par 2 bride s espacée d’une maille en l’air puis un arceau de 4mailles en l’air ,une maille serrés et 4 mailles en l’air alors que dans A3 c’est 1 bride et les arceaux ont 3 mailles en l’air..est ce une erreur ou dois je bien repérer ou ce situe la section A2sur tous le rang pour faire le nombre exact de brides.merci

01.04.2023 - 22:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rivière, le diagramme A.2 permet les augmentations, il est donc normal qu'il soit différent de A.3. Pensez à bien suivre les diagrammes tels qu'ils sont, n'hésitez pas à ajouter des marqueurs pour bien les délimiter si besoin. Bon crochet!

11.04.2023 - 10:22

country flag Tina wrote:

Thank you for your response, Through a few trials and errors, I managed to figure it out. Your response to Larraine confirmed my final trial. I find your original instructions not detailed enough and are very hard to follow. I love the photo of the finished project, so I am persevering.

07.11.2022 - 04:17

country flag Larraine wrote:

Hi! I am making Drops crochet top for my first time.....DROPS 223-28. So far so good! I have finished the increase round 6 and am making size M. It says to work until A.2 has been worked vertically....does that mean for this section I am not doing A.3 at all until after round 14?? Hope this question makes sense ? Thank you so much!

05.11.2022 - 14:41

DROPS Design answered:

Dear Larraine, you continue with the pattern established with A.2 and A.3 as before, until you have worked the last row of A.2 (the top row in the diagram). Then, continue as explained later. Happy crocheting!

07.11.2022 - 00:03