Elke Rodrigues skrifaði:
Ich verstehe leider die Anleitung für den Ärmel nicht so ganz. Werden nach den ersten 4 Krausrippen einfach noch zwei weitere gestrickt und dann im Muster A4 fortgefahren? Soll nach 6 M A.4 zuerst zurück gestrickt werden? Dann haut es aber nicht hin in Bezug auf Hin und Rückreihe....... Vielen Dank für die Hilfe! Viele Grüße, Elke Rodrigues
04.07.2024 - 14:06DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Rodrigues, ganz am Anfang vom Ärmel stricken Sie 8 Reihen rechts ( = 4 Krausrippe), dann stricken Sie das Diagram A.4. Nach A.4 nehmen Sie regelmäßig verteilt zu mit 1 Umschlag nach jeder 2. rechte Masche (mit 1 Randmasche beidseitig), dann stricken Sie glatt rechts weiter. Viel Spaß beim Stricken!
05.07.2024 - 07:10
Katja skrifaði:
Moi, kun hihoja päätellään (Päätä 5 silmukkaa 1-1-1-1-1-1 kertaa, 2 silmukkaa 1-1-1-1-1-1 kertaa ja sitten 1 silmukka 13-15-16-18-19-23 kertaa kummassakin reunassa) kuuluuko päättelykerroksen väliin neuloa yksi välikerros? Koska ilman välikerrosta päättelykerroksien pituus on noin 5cm kun ohjeessa lukee että korkeus olisi kuulunut kasvaa 10cm?
25.08.2021 - 10:17DROPS Design svaraði:
Silmukat päätetään aina kerrosten alusta, joten kun olet päättänyt kummastakin reunasta ensimmäiset 5 silmukkaa, olet neulonut 2 kerrosta.
09.09.2021 - 17:20
Erzsebet skrifaði:
Nice pattern and design. And i love the sleeves!
10.02.2021 - 11:35
Odile skrifaði:
J'aime aussi beaucoup ce modele
18.01.2021 - 12:53
Elizabeth skrifaði:
Delicata
16.01.2021 - 17:17
Merike skrifaði:
Hydrangea
09.01.2021 - 09:54
Flower Wish Wrap#flowerwishwrap |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð vafningspeysa úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað með gatamynstri og stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-13 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um í hliðum á bakstykki og framstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 3 ystu lykkjurnar í hvorri hlið. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 3 FYRSTU LYKKJUM AÐ HLIÐ ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN SÍÐUSTU 3 LYKKJUM AÐ HLIÐ ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 3 síðustu lykkjum og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál að framan): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 9 KANTLYKKJUM AÐ FRAMAN Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 9 KANTLYKKJUM AÐ FRAMAN Í GARÐAPRJÓNI: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 9 kantlykkjum að framan og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út innan við 3 ystu lykkjur í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkin, bakstykkið og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónuð snúra. BAKSTYKKI: Fitjið upp 98-109-118-131-142-158 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 5-6-6-8-9-8 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 9 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 72-81-90-99-108-126 lykkjur (= 8-9-10-11-12-14 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið A.3 (= 5 lykkjur), prjónið 5-6-6-8-9-8 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið þegar stykkið mælist 8 cm = 94-105-114-127-138-154 lykkjur. Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-13-13 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-4-4½-4½-5-5 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 102-113-122-135-146-162 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 5 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 3 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-2-4-4-5 sinnum og 1 lykkja 2-4-5-6-7-9 sinnum í hvorri hlið = 84-87-88-91-94-96 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í einu heilu gatamynstri út við handveg eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53 55 cm, fellið af miðju 22-23-24-25-28-30 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 29-30-30-31-31-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 65-75-79-88-96-104 lykkjur (meðtaldar 9 kantlykkjur við miðju að framan og 1 kantlykkja að hlið) á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 8 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 0-0-4-2-0-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 9 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 36-45-45-54-63-72 lykkjur (= 4-5-5-6-7-8 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið A.3 (= 5 lykkjur), prjónið 5-6-6-8-9-8 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8 cm = 63-73-77-86-94-102 lykkjur. Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-13-13 cm, á bæði að fækka lykkjum fyrir hálsmáli við miðju að framan og auka út í hliðum alveg eins og á bakstykki. Þetta er gert eins og útskýrt er að neðan: HÁLSMÁL: Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-17-17-22-31-32 sinnum og síðan í 6. hverri umferð alls 12-8-8-6-1-1 sinnum. ÚTAUKNING Í HLIÐ: Aukið út um 1 lykkju í hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-4-4½-4½-5-5 cm millibili alls 4 sinnum í hlið. HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 5 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 3 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-2-4-4-5 sinnum og 1 lykkja 2-4-5-6-7-9 sinnum. Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 38-39-39-40-40-40 lykkjur eftir í umferð. Haldið áfram með mynstur fram og til baka með 9 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg. ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í einu heilu gatamynstri út að hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið af fyrir öxl þannig: Byrjið frá röngu og fellið af fyrstu 29-30-30-31-31-31 lykkjur = 9 lykkjur garðaprjón eftir á prjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar 9 lykkjur garðaprjón þar til stykkið mælist ca 7-7-8-8-8-9 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl. Fellið af með sléttum lykkjum frá röngu. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 65-75-79-88-96-104 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 9 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 8 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 5-6-6-8-9-8 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 9 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 36-45-45-54-63-72 lykkjur (= 4-5-5-6-7-8 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið A.3 (= 5 lykkjur), prjónið 0-0-4-2-0-0 lykkjur sléttprjón og endið með 9 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8 cm = 63-73-77-86-94-102 lykkjur. Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-13-13 cm, á bæði að auka út í hlið alveg eins og á bakstykki og fækka lykkjum fyrir hálsmáli við miðju að framan. Þetta er gert eins og útskýrt er að neðan: Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8 cm = 63-73-77-86-94-102 lykkjur. Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-13-13 cm, á bæði að fækka lykkjum fyrir hálsmáli við miðju að framan og auka út í hliðum á sama hátt og á bakstykki. Þetta er gert eins og útskýrt er að neðan: ÚTAUKNING Í HLIÐ: Aukið út um 1 lykkju í hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-4-4½-4½-5-5 cm millibili alls 4 sinnum í hlið. HÁLSMÁL: Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-17-17-22-31-32 sinnum og síðan í 6. hverri umferð alls 12-8-8-6-1-1 sinnum. HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 5 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 3 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-2-4-4-5 sinnum og 1 lykkja 2-4-5-6-7-9 sinnum. Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 38-39-39-40-40-40 lykkjur eftir í umferð. Haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg og 9 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í einu heilu gatamynstri út að hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið af fyrir öxl þannig: Byrjið frá réttu og fellið af fyrstu 29-30-30-31-31-31 lykkjur = 9 lykkjur garðaprjón eftir á prjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar 9 lykkjur garðaprjón þar til stykkið mælist ca 7-7-8-8-8-9 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl. Fellið af með sléttum lykkjum frá röngu. ERMI: Fitjið upp 66-74-82-86-94-102 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 8 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan A.4. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 98-110-122-128-140-152 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni og uppsláttur er prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat). Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 17-16-16-15-15-13 cm, er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 5 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni og síðan 1 lykkju 13-15-16-18-19-23 sinnum í hvorri hlið = 58-66-76-78-88-92 lykkjur eftir. Nú eru eftir 2 umferðir þar til stykkið mælist 27-27-28-28-29-29 cm. Í næstu umferð frá réttu eru prjónaðar fyrstu 4-0-4-6-4-2 lykkjur slétt saman 2 og 2 (= 2-0-2-3-2-1 lykkja færri), prjónið síðan þær 54-66-72-72-84-90 lykkjur sem eftir eru slétt saman 3 og 3 = 20-22-26-27-30-31 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Ermin mælist ca 27-27-28-28-29-29 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið saman 9 lykkjur garðaprjón frá kanti mitt að aftan með sauminn inn að röngu og saumið síðan kant í garðaprjóni við hálsmál aftan í hnakka með sauminn inn að röngu. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram handveg. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjón, en skiljið eftir smá op í hægri hlið á stykki (þegar flíkin er mátuð) til að þræða snúruna í gegn. Opið á að vera ca 2½ til 3 cm og staðsett ca 8-8-9-9-9-9 cm frá neðri kanti og upp að handveg. SNÚRA: Prjónið upp 8 lykkjur meðfram framstykki á prjóna 3 með Flora, þannig að það eru ca 9-9-10-10-10-10 cm frá neðri kanti og upp að fyrstu af þessum 8 lykkjum. Á hægra framstykki er prjónað garðaprjón fram og til baka þar til snúran mælist ca 84 til94 cm, fellið af. Á vinstra framstykki er prjónað garðaprjón fram og til baka þar til snúran mælist ca 40 til 50 cm, fellið af. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #flowerwishwrap eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.