Val skrifaði:
Hallo, ik ben zo goed als klaar met dit leuke patroon. Ik moet nu de steken opnemen langs het gezicht om de boordrand te breien. ik heb moeilijkheden om te zien waar ik moet steken met de breinaald . Heeft u een tip? en hoe kan ik elastisch vastnaaien .moet dit met elastische draad? groetjes . Trouwens ik ben erg tevreden met de duidelijke patronen van uw site. Elders begrijp ik er vaak niks van!!
16.08.2023 - 23:53DROPS Design svaraði:
Dag Val,
Bij de hals en midden voor kun je steken zo opnemen dat de boordsteek mooi doorloopt. Bij de lijst van video's staat ook een video over het opnemen van steken langs de zijkant. Misschien helpt dat je verder?
20.08.2023 - 15:40
Val skrifaði:
Ik denk dat ik zelf heb gevonden.ik heb alle steken op 3 naalden gezet en heen en weer gebreid.Toch heb ik een vraag wat betekent vermeerderen aan de binnenkant van de buitenste 7 steken. is dit aan de kant vanhet middelgedeelte of aan de gezichtsopening? Dank je voor jullie reactie.
22.07.2023 - 22:26DROPS Design svaraði:
Dag Val,
Je meerdert steeds vlak naast de 7 buitenste steken en is aan de kant van de gezichtsopening.
24.07.2023 - 20:05
Val skrifaði:
Ik begrijp het capuchon deel niet goed. ik heb 37 s opgenomen aan de zijkant. moet ik nu 16 cm A1 doen , en zet ik deze steken dan in wacht voor ik de steken aan de andere zijde opneem. ik begrijp ook niet waar ik de markeerdraad hang. dankje voor een reactie
19.07.2023 - 17:13
Nicole skrifaði:
Bonjour Désolé mais j'ai trouvé J'avais seulement mal lu Merci
03.01.2023 - 23:14
Nicole skrifaði:
Bonjour Vous dites de monter 21 mailles de chaque côtés = 64 m. Se pourrais t'il que vous vouliez dire 10 de chaque côtés à la place pour faire 64 total
03.01.2023 - 14:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Nicole, êtes-vous vraiment en train de faire ce modèle ? Ou plutôt un autre peut-être? Je ne trouve pas ces informations dans ce modèle (ni 21 mailles de chaque côté ni 64 mailles au total) - n'hésitez pas à poster votre question dans la rubrique "questions" de celui que vous tricotez, ce sera ainsi plus simple pour nous de vérifier. Merci pour votre compréhension.
03.01.2023 - 16:49
Carol Strydom skrifaði:
Thank you so much. I was in a panic when I couldn't figure it out. My daughter requested a balaclava as a birthday gift that is on Saturday. Now I will be able to finish it. Thanks again. Love your patterns and yarn. Unfortunately we don't have any shops stocking your yarn and I just don't trust shipping to S. A. at this time. I think I should ask my local yarn shop to stock your yarn.....
17.03.2022 - 11:57
Carol Strydom skrifaði:
Please can you simplify the increases for me. I don't understand what you mean by " Increase on the inside of the outermost 7 stitches". Do I increase after the 6th stitch or can I increase after any stitch within thd seven stitches. 🤔Thank you.
17.03.2022 - 08:37DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Strydom, you have to increase on each side of piece, from RS, ie work 7 st as before, increase 1 stitch (by making 1 yarn over), work until 7 sts remain before the end of the row, increase 1 stitch (by making a yarn over), and work the last 7 sts as before. Repeat this row on every 4th row (= every other row from RS). Happy knitting!
17.03.2022 - 09:57
Nancy skrifaði:
Increases:: are the increases 1 time each end in the 4 row repeat or twice ? i.e. rows 1 & 3, right side rows or only row 1? Your instructions say I”ever 4th row, so that would mean1 increase each end on row 1 only.
31.01.2022 - 14:38DROPS Design svaraði:
Dear Nancy, work the increases as follows: *work 1 row increasing 1 stitch on each side, work 3 rows without increasing*, repeat from *-* a total of 8 times. Happy knitting!
31.01.2022 - 17:47
Nancy skrifaði:
Thank you for your prompt reply. Increases: On row 2, wrong side, after increase , do I count the edge stitch as 1 of the 2 stocking stitches?
31.01.2022 - 13:52DROPS Design svaraði:
Dear Nancy, the first 2 stitches increased (in height) will be worked in stocking stitch (= purled from WS and knitted from RS), then the next 2 stitches increased (in height) will be worked in garter stitch, so that the pattern is now matching again, repeat these 4 increases, pattern is now working on each side - same when decreasing, pattern will be broken until all decreases are done. Happy knitting!
31.01.2022 - 17:44
Nancy skrifaði:
When doing increases the pattern established is lost, is this correct? Once I've added 2 stitches on increase row the pattern changes in row 2 - (first 2stitches are in stocking & next 2 in garter St so now you end with 2 knits (not purl) which means you do Not end row as you started it - with 2purl ?
31.01.2022 - 02:37DROPS Design svaraði:
Dear Nancy, correct, until all increases are done, pattern established is lost - see also last picture where balaclava lies flat, it might help you. Happy knitting!
31.01.2022 - 10:14
Northern Spirit#northernspiritbalaclava |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð balaclava / húfa / lambhúshetta úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað í áferðamynstri með kanti í stroffprjóni.
DROPS 214-70 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um í hvorri hlið við miðju að framan): Aukið út innan við ystu 7 lykkjur við miðju að framan. Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1, þ.e.a.s. 2 fyrstu lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni, næstu 2 lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni, næstu 2 lykkjur í sléttprjóni o.s.frv. ÚRTAKA (á við um mitt aftan á húfunni): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki mitt að aftan, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LAMBHÚSHETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Miðjueiningin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna frá miðju framan á höfði og aftur. Lykkjur eru prjónaðar upp hvoru megin við miðjueininguna. Síðan er húfan prjónuð fram og til baka á hringprjóna, áður en lykkjur eru fitjaðar upp fyrir háls mitt að framan. Síðan er afgangur af húfunni prjónaður í hring á hringprjóna að loka máli. Að lokum er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum opið að framan. MIÐJUEINING: Fitjið upp 32-32 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 3,5 með Lima. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endi eins) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14-16 cm, fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið = 30-30 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn frá. Prjónið síðan húfuna eins og útskýrt er að neðan. HÚFA: Prjónið nú upp lykkjur hvoru megin við miðjueiningu, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið upp 33-37 lykkjur meðfram hlið á miðjueiningu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 eins og áður yfir 30-30 lykkjur á prjóni og prjónið upp 33-37 lykkjur meðfram annarri hlið á miðjueiningu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni = 96-104 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= miðja að aftan). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt að aftan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið mitt að framan – mynstrið á að passa fallega yfir lykkjur í miðjueiningu. Aukið síðan út í hvorri hlið við miðju að framan og fækkið lykkjum mitt að aftan eins og útskýrt er að neðan – lestu kaflann um útaukningu og úrtöku áður en þú prjónar áfram! ÚTAUKNING Í HVORRI HLIÐ VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN: Þegar stykkið mælist 10-12 cm frá þar sem prjónamerkið var sett í, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8 sinnum í hvorri hlið. ÚRTAKA MITT AÐ AFTAN: JAFNFRAMT þegar auka á út í 5. skiptið, fækkið um 2 lykkjur mitt að aftan – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 4 sinnum (útaukning og úrtaka endar samtímis). Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 104-112 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 21-23 cm frá þar sem prjónamerki var sett, á að fitja upp lykkjur fyrir hálsmál mitt að framan. Mátið e.t.v. húfuna og prjónið að óskaðri lengd. Fitjið upp 16-20 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 120-132 lykkjur í umferð. Takið prjónamerkið frá úr stykkinu og setjið 1 prjónamerki í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú hálsmál eins og útskýrt er að neðan. HÁLSMÁL: Prjónið nú stykkið í hring á hringprjón. Haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjur – passið uppá að mynstrið gangi jafnt upp alla leiðina hringinn. Þegar stykkið mælist 9-10 cm frá prjónamerki undir hálsmáli, aukið út allar 2 lykkjur slétt til 3 lykkjur slétt með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir allar 2 lykkjur slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð) = 150-165 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 12-13 cm frá prjónamerki. Aukið nú allar 2 lykkjur garðaprjón til 3 lykkjur garðaprjón með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir allar 2 lykkjur garðaprjón = 180-198 lykkjur. Prjónið 1 umferð með 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón (uppslátturinn er prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat). Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 41-44 cm frá miðju á miðjueiningu og niður. KANTUR Í KRINGUM OP AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst í opi að framan, þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir hálsmáli og prjónið upp ca 160 til 180 lykkjur í kringum op að framan innan við 1 kantlykkju á stuttan hringprjón 3 með Lima. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6-6 cm – stillið af að stroffið passið fallega yfir lykkjur í miðjueiningu og við háls þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið stroffið inn að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur. Til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #northernspiritbalaclava eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-70
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.