Rukhsana skrifaði:
Hei , can you define the number of stitch for starting the design on left mitten coz im stuckk on design plz.
04.01.2021 - 15:09DROPS Design svaraði:
Dear Rukhsana, you should work the increase for thumb as shown in A.2 = the middle stitch in A.2 is the stitch with the marker (= in the first stitch on the round). Then work A.3 starting with the stitch with the marker thread. Happy knitting!
05.01.2021 - 10:46
Elena skrifaði:
Me encanta. La talla ha quedado perfecta con agujas del 3. El patrón ha sido fácil de seguir y me han quedado preciosos. Haré más para regalar. Gracias por este precioso patrón!
21.12.2020 - 21:12
Nina skrifaði:
Jeg får heller ikke mønsteret til å stemme. Det ser ut på bildene som det er plassert midt på oversiden, mens det iflg diagrammet blir skjevt.
18.12.2020 - 22:34DROPS Design svaraði:
Hei Nina. Oppskriften er oversendt til design avd, slik at de kan ta en dobbeltsjekk evnt komme med en rettelse. mvh DROPS design
21.12.2020 - 11:56
Grethe skrifaði:
Skal ikke diagrammet plasseres i midten av de 20 (str S/M) maskene over håndbaken, slik at det blir 1 maske på hver side av diagrammet (18 masker)? Ellers vil det vel mønsteret bli skjevt plassert på votten.
14.12.2020 - 12:08DROPS Design svaraði:
Hei Grethe. Oppskriften er oversendt til design avd, slik at de kan ta en dobbeltsjekk evnt komme med en rettelse. mvh DROPS design
21.12.2020 - 11:54
Ania skrifaði:
Héél mooi model, en dan heb ik het niet alleen op de wanten ;-)
10.12.2020 - 13:21
Let it Knit#letitknitmittens |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir vettlingar með köðlum og hjarta úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Þema: Jól
DROPS 214-62 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Vettlingarnir eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 45-50 lykkjur á sokkaprjón 3 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk. Prjónið mynsturteikningu A.1 hringinn. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka, mælist stykkið ca 8 cm, en brugðna einingin í byrjun kemur til með að rúllast inn og kanturinn kemur til með að mælast ca 6 cm við notkun. Prjónið 2 umferðir sléttprjón og fækkið um 5-6 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 40-44 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið eitt prjónamerki í 2.-3. lykkju í umferð (látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar mynsturteikningin er prjónuð) og setjið eitt prjónamerki í fyrstu lykkjuna í umferð (= merki fyrir þumal). LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir þumal hvoru megin við lykkju með merki fyrir þumal eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2. Haldið svona áfram með útaukningu þar til aukið hefur verið út alls 6-7 sinnum = 13-15 lykkjur fyrir þumal – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4 cm, á að prjóna eftir mynsturteikningu A.3 ofan á hönd. Byrjið á að prjóna mynsturteikningu A.3 í lykkjuna með prjónamerki og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru (lykkjur eru auknar út í mynsturteikningu þar sem kaðlarnir koma til með að draga stykkið saman, þessar lykkjur fækka aftur í lok mynsturteikningar). Þegar stykkið mælist 6-7 cm frá merki fyrir þumal, setjið 13-15 þumallykkjur á þráð og fitjið upp 1 nýja lykkju á prjóninn. Prjónið áfram í sléttprjóni og mynsturteikningu A.3 eins og áður. Þegar mynsturteikning A.3 hefur verið prjónuð til loka, prjónið áfram í sléttprjóni og það eru 40-44 lykkjur í umferð. Þegar vettlingurinn mælist ca 14-15 cm (mælt frá eftir kanti, eru eftir ca 4 cm að loka máli – mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki þannig að mynstur A.3 er staðsett mitt á milli 2 prjónamerkja með 20-22 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-3 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-7 sinnum = 4-4 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þræðina í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Herðið að og festið þræðina vel að innanverðu á vettlingi. Vettlingurinn mælist ca 18-19 cm (ca 24-25 cm með kanti). ÞUMALL: Setjið til baka 13-15 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna 3 og prjónið upp 2 lykkjur aftan við þumal = 15-17 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumallinn mælist ca 5½-6½ cm frá holu við þumal (mátið e.t.v. vettlinginn, það eru ca ½ cm að loka máli). Prjónið 2 sléttar umferðir þar sem lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum = 4-5 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þræðina í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur, en prjónamerki á undan mynsturteikningu A.3 og prjónamerki fyrir opi fyrir þumal eru sett í stykkið þannig: Setið eitt prjónamerki í 22.-25. lykkju í umferð (látið það fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar prjóna á mynsturteikningu) og setjið prjónamerki fyrir op fyrir þumal í síðustu lykkju í umferð (= merki fyrir þumal). |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #letitknitmittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-62
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.