Melanie Walsh skrifaði:
§suggested correction needed - AT SAME TIME decrease on each side of middle 31 stitches on TOP OF FOOT AND I THINK IT SHOULD READ FOOT. translated the original pattern text using Google Translate also, viewing finished pattern, cannot see evidence of decrease on the top of foot, but think I can see decrease on bottom of foot.
01.03.2021 - 21:10
Thea Mårvik skrifaði:
Hei! Er det en feil i hælfellingen i str 41/43? Har tatt fellingen 2 ganger nå og ender opp med 15 masker ikke 13.
03.01.2021 - 22:31DROPS Design svaraði:
Hei Thea. Oppskriften er videresendt til design avdelingen, slik at de kan ta en dobbeltsjekk og evnt komme med en rettelse. mvh DROPS design
13.01.2021 - 13:46
Kirsten Buskbjerg Lübker skrifaði:
Er der ikke en fejl i mønster A3?8 Der bliver rod i starten af mønsteret, når line 10 og linie 24 ikke er ens? Det giver problemer når man skal gentage linie 11 - 24?
20.12.2020 - 15:03
Katja Welker skrifaði:
Guten Tag, hätten Sie für dieses Modell auch eine Anleitung für Gr. 46/47? Bin kein Profi und benötige daher eine 1:1 umsetzbare Anleitung Vielen Dank Mit freundlichen Grüßen Katja Welker
15.12.2020 - 07:49DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Welker, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Viel Spaß beim stricken!
15.12.2020 - 08:45
Sleigh Ride#sleighridesocks |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 35 – 43. Þema: Jól.
DROPS 214-63 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 64 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 16. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 15. og 16. hverja lykkju slétt saman. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 13-15-13 lykkjur eru eftir í umferð. ÚRTAKA (á við um tá á): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju í A.2 þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum natur, prjónið miðjulykkju í A.2 eins og áður, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman með litnum natur (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. SOKKAR: Fitjið upp 64 lykkjur í öllum stærðum á sokkaprjóna 3 með litnum dökk grár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2-3-3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 60 lykkjur í öllum stærðum. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 7-8-8 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 3 lykkjur), A.3 (= 27 lykkjur), A.2 (= 3 lykkjur) og A.4 (= 27 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar síðasta umferð í A.4 er eftir (A.3 er ekki lokið), fækkið um 4-2-2 lykkjur jafnt yfir 27 lykkjur í A.4 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður án úrtöku) = 56-58-58 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 15-16-16 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið lykkjur í A.2 + A.3 + A.2 á þráð (= 33 lykkjur á fæti á þráð). Það eru 23-25-25 lykkjur eftir á prjóni fyrir hæl. Fitjið upp 1 nýja lykkju í byrjun á umferð með litnum dökk grár, prjónið A.5 yfir fyrstu 22-24-24 lykkjur á hæl, prjónið fyrstu lykkju í A.5 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið) og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar með litnum dökk grár – nýjar lykkjur eru kantlykkjur. Haldið áfram með A.5 fram og til baka yfir 25-27-27 lykkjur, en kantlykkjur eru prjónaðar með litnum dökk grár. Þegar prjónaðir hafa verið 5½-6-6 cm yfir hællykkjur, setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Prjónamerkið er notað síðar þegar mæla á lengd fótar frá. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan (A.5 heldur jafnframt áfram þegar úrtaka fyrir hæl er gerð). Eftir hælúrtöku er fyrsta umferð prjónuð þannig: Haldið áfram með A.5 yfir 13-15-13 hællykkjur, prjónið upp 12-14-14 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram hlið á hæl með litnum dökk grár, setjið til baka 33 lykkjur af þræði á fæti á prjóninn og haldið áfram með A.2 + A.3 + A.2 eins og áður yfir þessar 33 lykkjur og prjónið upp 12-14-14 lykkjur með litnum dökk grár innan við 1 kantlykkju meðfram annarri hlið á hæl = 70-76-74 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur hringinn með A.5 undir fæti, A.3 ofan á fæti og A.2 í hvorri hlið. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 31 miðjulykkjum á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan 31 miðjulykkjum á fæti slétt saman með litnum natur og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir 31 miðjulykkjum snúnar slétt saman með litnum natur. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-8-6 sinnum = 58-60-62 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 18-20-23 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti (það eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Í næstu umferð eru prjónaðar sléttar lykkjur með litnum dökk grár yfir 27 miðjulykkjur ofan á fæti (aðrar lykkjur halda áfram eins og áður). Prjónið síðan A.5 undir fæti eins og áður, A.2 í hvorri hlið eins og áður og prjónið A.5 yfir 27 miðjulykkjur á fæti. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við miðjulykkjur í A.2 í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 11-11-12 sinnum = 14-16-14 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 7-8-7 lykkjur eftir. Klippið þræðina frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sleighridesocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-63
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.