DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!

Þú gætir líka haft gaman af...

Video thumbnail for Hvernig á að prjóna tátiljur í DROPS Children 27-19
15:52
Hvernig á að prjóna tátiljur í DROPS Children 27-19

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við prjónum tátiljuna “Lemon Jelly” í DROPS Children 27-19. Með því að prjóna með fínni prjónum en venjulega er gert þegar prjónað er úr garninu DROPS Snow þá verða tátiljurnar þéttari. En munið eftir að uppgefin prjónastærð í mynstri er einungis til leiðbeiningar. Við notum prjónastærð sem gefin er upp í mynstrinu (4 mm) og prjónum eftir stærð 20/21 (minnsta stærðin). Við höfum nú þegar fitjað upp 24 lykkjur og sýnum smá í umferð 1 sem er prjónuð slétt og smá í umferð 2 sem er prjónuð brugðið (= 2 umferðir garðaprjón). Það er prjónað GARÐAPRJÓN þar til stykkið mælist 3 cm. Eftir það eru fyrstu 8 lykkjunum í umferð haldið á prjóni og þær 16 lykkjur sem eru eftir eru settar á þráð. Fitjið upp 1 lykkju í byrjun og 1 lykkju í lokin á 8 lykkjunum á prjóni. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka þar til stykkið mælist 4 cm frá því þar sem lykkjurnar voru settar á þráðinn. Fellið af 1 lykkju í hvorri hlið. Prjónið upp 6 lykkjur í hvorri hlið og setjið til baka lykkjurnar af þræði á prjóninn. Setjið 1 prjónamerki mitt að framan og 1 prjónamerki mitt að aftan. Þegar stykkið mælist 2 cm frá prjónamerkjum er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin, fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð þar til stykkið mælist 4 cm. Eftir það eru þær lykkjur sem eftir eru felldar af og tátiljan er saumuð saman undir fæti í ysta lykkjuboga á ystu lykkju. Þessi tátilja er prjónuð úr DROPS Snow, sama garni sem er gefið upp í mynstrinu. Fylgja þarf uppskrift og mynsturteikningu til þess að geta fylgt myndbandinu eftir. Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.

Video thumbnail for Hvernig á að fækka lykkjum og auka út í húfu í DROPS Baby 21-34
27:18
Hvernig á að fækka lykkjum og auka út í húfu í DROPS Baby 21-34

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við aukum út og fækkum lykkjum við prjónamerki. Við notum færri fjölda lykkja/umferða en sem stendur í mynstri og við höfum nú þegar prjónað fyrstu umferðina og búin að setja 7 prjónamerki í húfuna. Fyrsta og síðasta lykkjan er prjónuð slétt bæði frá réttu og frá röngu. Við byrjum á að sýna hvernig við aukum út við 1., 3., 5. og 7. prjónamerki og hvernig við fækkum um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki við 2., 4. og 6. prjónamerki frá réttu. Síðan sýnum við hvernig uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið frá röngu til að koma í veg fyrir að það myndist gat. Eftir það sýnum við aftur 1 umferð frá réttu, með útaukningu og úrtöku. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, prjónum við umferð einungis með úrtöku (við prjónamerki 2, 4 og 6) þar til 15 lykkjur eru eftir. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, 9 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt = 13 lykkjur. Endurtakið úrtöku í hverri hlið í hverri umferð (frá röngu eru prjónaðar 2 lykkjur færri og á eftir kantlykkju brugðið saman) þar til 5 lykkjur eru eftir. Í síðustu umferð rá röngu er prjónuð 1 kantlykkja, 3 lykkjur brugðið saman, 1 kantlykkja. Fellið af og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna. Saumið húfuna saman mitt að aftan innan við 1 kantlykkju. SNÚRA: Fitjið upp 4 lykkjur. Prjónið þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, leggið þráðinn fyrir framan stykkið (á móti þér), takið 1 lykkju eins og prjóna eigi hana brugðið, leggið þráðinn aftur fyrir aftan stykkið (frá þér) * , endurtakið frá *-* í öllum umferðum. Prjónið að óskaðri lengd og fellið af. Saumið snúruna neðst í hornið á eyrnaleppnum. Þessi húfa er prjónuð úr DROPS Alpaca, en í myndbandinu notum við grófara garn; DROPS Snow. Fylgja þarf uppskrift og mynsturteikningu til þess að geta fylgt myndbandinu eftir. Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.

Video thumbnail for Hvernig á að enda úrtöku í laskalínu á framstykki í DROPS Children 32-20
4:41
Hvernig á að enda úrtöku í laskalínu á framstykki í DROPS Children 32-20

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við 2 síðustu umferðirnar með laskalínu og úrtöku í hálsi á framstykki í DROPS Children 32-20. Miðju lykkjurnar eru settar á þráð, við erum með 5 lykkjur hvoru megin og byrjum frá réttu á vinstri öxl: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, fækkið lykkjum fyrir laskalínu eins og áður (takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð), prjónið 2 lykkjur slétt saman (úrtaka í hálsmáli) = 3 lykkjur á prjóni, snúið stykkinu. Prjónið brugðið frá röngu, 1 kantlykkja í garðaprjóni, snúið stykkinu. 1 kantlykkja í garðaprjóni, fækkið lykkjum fyrir laskalínu = 2 lykkjur á prjóni. Snúið stykkinu, fellið af lykkjur með brugðnu og klippið frá. Prjónið nú hægri öxl frá réttu: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (úrtaka í hálsmáli), fækkið lykkjum fyrir laskalínu (2 lykkjur slétt saman), 1 kantlykkja í garðaprjóni (= 3 lykkjur). Snúið stykkinu og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, brugðið frá röngu, snúið stykkinu. Fækkið lykkjum fyrir laskalínu, 1 kantlykkja í garðaprjóni, snúið stykkinu og fellið af lykkjur með brugðið. Við notum garnið DROPS Air í myndbandinu, sama garn og notað er í jólapeysunni. Fylgja þarf uppskrift til þess að geta fylgt myndbandinu eftir. Þú getur séð þetta mynstur með því að smella á myndina að neðan.