Hvernig á að prjóna tátiljur í DROPS Children 27-19

Keywords: algengur hæll, garðaprjón, tátiljur,

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við prjónum tátiljuna “Lemon Jelly” í DROPS Children 27-19. Með því að prjóna með fínni prjónum en venjulega er gert þegar prjónað er úr garninu DROPS Snow þá verða tátiljurnar þéttari. En munið eftir að uppgefin prjónastærð í mynstri er einungis til leiðbeiningar. Við notum prjónastærð sem gefin er upp í mynstrinu (4 mm) og prjónum eftir stærð 20/21 (minnsta stærðin). Við höfum nú þegar fitjað upp 24 lykkjur og sýnum smá í umferð 1 sem er prjónuð slétt og smá í umferð 2 sem er prjónuð brugðið (= 2 umferðir garðaprjón). Það er prjónað GARÐAPRJÓN þar til stykkið mælist 3 cm. Eftir það eru fyrstu 8 lykkjunum í umferð haldið á prjóni og þær 16 lykkjur sem eru eftir eru settar á þráð. Fitjið upp 1 lykkju í byrjun og 1 lykkju í lokin á 8 lykkjunum á prjóni. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka þar til stykkið mælist 4 cm frá því þar sem lykkjurnar voru settar á þráðinn. Fellið af 1 lykkju í hvorri hlið. Prjónið upp 6 lykkjur í hvorri hlið og setjið til baka lykkjurnar af þræði á prjóninn. Setjið 1 prjónamerki mitt að framan og 1 prjónamerki mitt að aftan. Þegar stykkið mælist 2 cm frá prjónamerkjum er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin, fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð þar til stykkið mælist 4 cm. Eftir það eru þær lykkjur sem eftir eru felldar af og tátiljan er saumuð saman undir fæti í ysta lykkjuboga á ystu lykkju. Þessi tátilja er prjónuð úr DROPS Snow, sama garni sem er gefið upp í mynstrinu.
Fylgja þarf uppskrift og mynsturteikningu til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.

Myndbandið að ofan er hægt að nota í eftirfarandi mynstrum

Athugasemdir (1)

Aaltje De Jong wrote:

Duidelijke uitleg

10.02.2024 - 11:21

Skrifa athugasemd við þetta myndband

Netfangið þitt verður ekki birt. Dálkar sem verður að fylla út eru merktir með *.