DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

The Grove

Prjónuð ermalaus peysa í perluprjóni. Stærð S-XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Polaris.

DROPS 179-25
DROPS Design: Mynstur po-096
Garnflokkur F eða E + E
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS POLARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki F)
1600-1900-2300 g litur 04, milligrár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 20 – eða þá stærð sem þarf til að 5,5 lykkjur og 7 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 540: 2 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað sem eitt stykki, fram og til baka. Framstykkin eru prjónuð, aukið er út fyrir ermum, aukið er út fyrir hálsmáli og prjónað er niður með bakstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI + ERMI:
Til að fá pláss fyrir allar lykkjur er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 21-25-28 lykkjur á hringprjón 20 með Polaris. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan frá réttu þannig: 5 lykkjur í garðaprjóni og 16-20-23 lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 44-46-48 cm fitjið upp 13-11-9 nýjar lykkjur fyrir ermi í lok næstu umferðar frá réttu = 34-36-37 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist ca 23-25-27 cm frá prjónamerki (stillið af að næsta umferð sé frá réttu), prjónið 9 fyrstu lykkjur eins og áður, síðan eru þær settar á þráð = 25-27-28 lykkjur eftir á prjóni, prjónið út umferðina. Setjið 1 nýtt prjónamerki (= mitt ofan á öxl) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umferð yfir lykkjurnar á prjóni. Setjið lykkjurnar á þráð og geymið stykkið.

VINSTRA FRAMSTYKKI + ERMI:
Fitjið upp og prjónið eins og hægri, nema gagnstætt. Fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok umferðar frá röngu. Setjið fyrstu 9 lykkjur frá röngu á þráð, prjónið út umferðina. Haldið síðan áfram með bakstykki án þess að setja afganginn af lykkjunum á þráð.

BAKSTYKKI:
Haldið áfram í perluprjóni í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið lykkjur frá vinstra framstykki + ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur (= aftan í hnakka) og prjónið inn lykkjur frá hægra framstykki + ermi á hringprjón = 58-62-64 lykkjur. Haldið síðan áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 24-26-28 cm frá prjónamerki mitt ofan á öxl. Í næstu umferð eru felldar af fyrstu og síðustu 13-11-9 lykkjur, klippið frá = 32-40-46 lykkjur. Haldið áfram yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til stykkið mælist ca 66-70-74 cm prjónið 2 umferðir slétt yfir allar lykkjur, fellið síðan laust af.

KRAGI:
Setjið til baka 9 lykkjur af þræði í hægra framstykki á prjóninn. Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur með stuttum umferðum þannig:
1. og 2. umferð: Byrjið við miðju að framan – prjónið 5 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka.
3. og 4. umferð: Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Endurtakið þessar 4 umferðir þar til kraginn mælist ca 7 cm innst í hlið við öxl, fellið af. Prjónið alveg eins yfir lykkjur af þræði í vinstra framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðar- og ermasauma í eitt, saumið kant í kant í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Saumið kragann saman kant í kant við miðju að aftan. Saumið kragann við hálsmál aftan í hnakka.
Saumið tölur í vinstra framstykki. 1. talan er saumuð ca 45-50 cm upp frá uppfitjunarkanti, 2. talan er saumuð ca 57-62 cm upp frá uppfitjunarkanti. Tölunum er hneppt í gegnum lykkjur, það þarf ekki að fella af fyrir hnappagötum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Fabiana wrote:

Buonasera, avrei due domande 1.c'è scritto di usare i ferri n 20 ma con la lana polaris non si usano i ferri 12? 2. Davanti destro+manica c'è scritto che quando il lavoro misura 44 46 48 cm, 13 11 9 nuove maglie. Cioè per la taglia xxxl bisogna aumentare 9 maglie? Grazie

10.11.2023 - 21:40

DROPS Design answered:

Buonasera Fabiana, deve utilizzare il numero di ferri che le permette di ottenere il campione indicato. Per il numero di aumenti è corretto, per la taglia XXXL deve aumentare 9 maglie. Buon lavoro!

12.11.2023 - 12:03

country flag Pat Ellis wrote:

I'm sorry but the picture with this pattern was lovely. I got the yarn suggested and the needles. My gauge was okay. The end result is just sad. WAY too BIG!!!! HEAVY - ways a ton!!!!! Sleeves way too long..... Not really anything that anyone would want to wear. Sorry to have spent the time and the money!!!!

12.05.2020 - 02:17

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ellis, we are sorry to hear you had worries with this pattern, please show your work to your Store - even sending them a picture, they should be able to check if there is anything wrong. Happy knitting!

12.05.2020 - 09:54

country flag Pt Ellis wrote:

Knitting The Grove - a Drops pattern -using Polaris yarn. Collar instructions: Row 1 "Beginning mid front"? I don't understand. Do I knit 5 and then turn and go back? It says that, but being preceded with "Beginning mid front" , I'm just not sure.....Thanks.

10.05.2020 - 19:05

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pt Ellis, beginning mid front means you should start this row on the outeredge of collar, ie from RS for the right front piece and from WS for the left front piece. You then work short rows: 2 rows over the first 5 sts only, 2 rows over all the 9 sts so that outer edge will be higher/longer than inner edge. Happy knitting!

11.05.2020 - 10:12

country flag María Teresa wrote:

PARA EL MODELO 179-25 EN SM/ CUÁNTOS GRAMOS DE MATERIAL NECESITO PARA HACER TODA LA CHAQUETA, NECESITO UNA LANA GRUESA . GRAMOS O YARDAS TOTAL NECESITO ?

16.04.2020 - 04:50

DROPS Design answered:

Hola Maria Teresa. Toda la información sobre los materiales la puedes encontrar en la parte superior del patrón.

25.05.2020 - 00:20

country flag María Teresa Perez wrote:

HE LEÍDO VARÍAS VECES EL PATRÓN DROSP 179-25 Y LAS MEDIDAS NO LAS ENCUENTRO EN LAS INSTRUCCIONES DEL PATRÓN , ALGUIEN ME PUEDE AYUDAR , EJEMPLO : 48-51-53 para SM,L ETC, PERO DENTRO DE LAS INSTRUCIONES ESCRITAS NO APARECEN ESOS MISMOS NÚMEROS , NECESITO AYUDA , GRACIAS

14.04.2020 - 23:24

DROPS Design answered:

Hola Maria Teresa Perez! Puedes ver las medidas finales al final del patrón. Buen trabajo!

17.11.2020 - 14:33

Valentina wrote:

Hola, estoy haciendo este diseño y tengo dudas para realizar la espalda, ¿como continuo tejiendo desde los nuevos puntos del escote del cuello?, ya que coloque la parte derecha de la chaqueta + manga. saludos cordiales Valentina

22.03.2018 - 14:11

DROPS Design answered:

Hola Valentina. Para unir los dos delanteros en la parte de la espalda hay que montar 8 puntos nuevos (escote en la espalda), es decir, trabajar como sigue: primero trabajar el delantero izquierdo con la manga, montar 8 puntos nuevos y continuar con los puntos del delantero derecho con la manga. Después continuar según el dibujo del patrón.

29.03.2018 - 19:43

country flag Zeller wrote:

Guten Tag ist eine schöne Jacke. Meine Tochter wünscht sie sich. nun meine Frage: das Rückenteil strick ich aus den beiden Vorderteilen oder wie? vielen Dank für die Antwort freundliche Grüsse JUdith Zeller

04.02.2018 - 15:47

DROPS Design answered:

Liebe Frau Zeller, ja genau, Sie stricken zuerst beiden Vorderteile und dann stricken Sie die Maschen vom linken Vorderteil (+ Ärmel), dann schlagen Sie 8 Maschen (Neck am Rückenteil) und dann stricken Sie die Maschen vom rechten Vorderteil (+ Ärmel), Rückenteil wird dan von oben nach unten gestrickt, die Maschen der Ärmel werden dann abgekettet. Viel Spaß beim stricken!

05.02.2018 - 09:47

country flag Amyah wrote:

Celui-là, je veux me le tricoter... ce serait parfait pour la côte ouest canadienne où les hiver ne sont pas froids mais humides... je me vois bien marcher sur la plage le long de l'océan Pacifique toute enrobée dans ce cocon de laine...

01.07.2017 - 07:13

country flag Gabriela wrote:

Lässig und edel vereint. Echt cool! Brauch ich im Winter.

01.07.2017 - 05:21

country flag Eva wrote:

Ein schöner, warmer Kurzmantel, den ich nachstricken möchte. Aber ich würde ihn gerne mit Fleece abfüttern. Kann man das bei der Anleitung vielleicht mit einbeziehen? Ein Schnittmuster fürs Futter nebst Anleitung zum Einnähen wäre toll . Stricksachen sind ja leider nie winddicht, egal, wie dick das verwendete Garn ist.

19.06.2017 - 19:01