Judith Wiese wrote:
"7. RUNDE: in der 1. fM eine fM aufnehmen, danach 1 fM in jede fM = 36 fM. 8. und 9. RUNDE: 1 fM in jede fM 10. RUNDE: * 1 fM in die nächsten 3 fM, 2 fM in die nächste fM *, von *-* wdh = 30 fM" Kann es sein, dass bei Runde 10 nicht nochmal Maschen verdoppelt werden müssen sondern eigentlich abgenommen werden? Sonst kommt man ja nicht von 36 auf 30 Maschen... Viele Grüße, Judith Wiese
18.09.2012 - 09:51DROPS Design answered:
Hallo Judith, das ist absolut richtig! Vielen Dank für den Hinweis, wir werden sofort korrigieren.
19.09.2012 - 09:39
Forest treasures |
|
|
|
Heklaður sveppur úr DROPS Paris.
DROPS Children 23-64 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Byrjið með þessari aðferð til að koma í veg fyrir að það myndist gat í miðju (í staðinn fyrir loftlykkjuhring): Haldið í endann á þræðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um heklunálina og þráðurinn dreginn upp úr hringnum, heklið 1 loftlykkju, heklið nú fastalykkju utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fastalykkja er kominn sem óskað er eftir, dragið í endann á þræðinum og herðið að. Festið enda á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring. HEKLAÐ Í HRING: Eftir síðustu fastalykkju í umferð, haldið áfram að næstu umferð með 1 fastalykkju í næstu fastalykkju (= 1. fastalykkja frá fyrri umferð). ATH: Merkið byrjun á umferð með prjónamerki á milli síðustu fastalykkju í umferð og 1. fastalykkju í næstu umferð, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju. ÚRTAKA: Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla næstu 2 fastalykkjur saman þannig: * Stingið heklunálinni í næstu fastalykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræði um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. LITASKIPTI: Til að fá falleg litaskipti er síðasta fastalykkjan í umferð hekluð þannig: Stingið heklunálinni í síðustu fastalykkju, sækið þráðinn, bregðið þræði um heklunálina með nýja litnum og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. Haldið áfram að næstu umferð með nýja litnum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SVEPPUR: Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – efst á svepp með litnum brúnn með heklunál 4,5. UMFERÐ 1: Heklið 7 fastalykkjur um galdrahringinn – sjá HEKLAÐ Í HRING! UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 14 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 21 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 28 fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 35 fastalykkjur. UMFERÐ 7: Aukið út um 1 fastalykkju í 1 fastalykkju, síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 8 og 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 10: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur, skiptið yfir í litinn dökk beige í síðustu fastalykkjunni í umferð – sjá LITASKIPTI. UMFERÐ 11: Með litnum dökk beige, heklið * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 12: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 14 og 15: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 16: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 14 fastalykkjur. UMFERÐ 17: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 18: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 19: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 20: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 21: Heklið allar fastalykkjur í umferð 2 og 2 saman = 6 fastalykkjur, klippið frá. Fyllið sveppinn með vatti, saumið saman síðustu 6 fastalykkjur með endanum. ---------------------------------------------------------- Karfa – sjá DROPS Children 23-56 -------------------------------------------------------- Gulrót – sjá DROPS Children: 23-57 ---------------------------------------------------------- Kiwi - sjá DROPS Children: 23-58 ---------------------------------------------------------- Jarðaber - sjá DROPS Children: 23-59 ---------------------------------------------------------- Epli - sjá DROPS Children: 23-60 ---------------------------------------------------------- Pera - sjá DROPS Children: 23-61 ---------------------------------------------------------- Klementína - sjá DROPS Children: 23-62 ---------------------------------------------------------- Banani - sjá DROPS Children: 23-63 ---------------------------------------------------------- |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Cathryn wrote:
Great pattern. Very easy to follow and I’m a beginner. Very pleased with the result. Thank you for making this pattern free, as I am semi retired on a limited income so it made all the difference.
25.08.2021 - 20:42