DROPS Ice
DROPS Ice
55% Bómull, 45% Polyakryl
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
DROPS SS24

Summer Breeze

Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Ice eða 2 þráðum DROPS Cotton Light með laskalínu, v-hálsmáli og stroff kanti úr 2 þráðum DROPS Cotton Viscose. Stærð S – XXXL

DROPS 136-22
DROPS Design: Mynstur nr tt-049
Garnflokkur E eða B og A.
---------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ICE frá Garnstudio
650-700-750-850-900-1000 gr litur nr 01, hvítur
Eða
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
550-600-650-700-750-850 gr litur nr 02, hvítur
Og einnig:
DROPS COTTON VISCOSE frá Garnstudio
100-100-150-150-150-150 gr litur nr 01, hvítur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 10 l og 16 umf með áferðarmynstri með 1 þræði Ice eða 2 þráðum af Cotton Light verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 och 80 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Ice
DROPS Ice
55% Bómull, 45% Polyakryl
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTURÁFERÐ Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónað í hring:
UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2: * Prjónið 1 sl, 1 br *, endurtakið frá *-*.
Prjónað fram og til baka:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): * Prjónið 1 br, 1 sl *, endurtakið frá *-*.
** Endurtakið umf 1 og 2 í 15-16-16-17-17-17 cm, prjónið 4-4-4-4-5-5 cm sléttprjón **, endurtakið frá**-** til loka.

MYNSTURÁFERÐ Á ERMI:
Prjónað í hring:
UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2: * Prjónið 1 sl, 1 br *, endurtakið frá *-*.
Prjóið fram og til baka:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): * Prjónið 1 br, 1 sl *, endurtakið frá *-*.
Endurtakið umf 1 og 2 til loka.

ÚRTAKA-1 (á við um laskaúrtöku):
Prjónað er sléttprjón yfir miðju 4 l í hverri úrtöku fyrir laskalínu í hverri umf (þ.e.a.s. 2 l sléttprjón hvoru megin við öll prjónamerki). Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu milli fram- og bakstykkis og erma þannig:
Á undan prjónamerki: Prjónið 2 sl saman.
Á eftir prjónamerki: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚRTAKA-2 (á við um v-hálsmál):
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan. Öll úrtaka er gerð frá réttu þannig:
Á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni: Prjónið 2 sl saman.
Á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 184-200-216-240-256-280 l á hringprjóna nr 3,5 með 2 þráðum af DROPS Cotton Viscose.
Prjónið stroff (= 1 sl, 1 br) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og 1 þráð af DROPS Ice eða 2 þráðum DROPS Cotton Light.
Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT sem allar l eru prjónaðar saman 2 og 2 = 92-100-108-120-128-140 l. Prjónið nú MYNSTURÁFERÐ Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm er næsta umf prjónuð þannig: Fellið af 4 l fyrir handveg, prjónið næstu 39-43-47-53-57-63 l eins og áður (= framstykki), fellið af 7 l fyrir handveg, prjónið næstu 39-43-47-53-57-63 l eins og áður (= bakstykki) og fellið af síðustu 3 l. Klippið frá. Setjið prjónamerki í miðju l á fram- og bakstykki (= 19-21-23-26-28-31 l hvoru megin við prjónamerki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

HÆGRI ERMI:
Fitjið upp 50-52-54-56-58-60 l á sokkaprjóna nr 3,5 með 2 þráðum DROPS Cotton Viscose.
Prjónið stroff (= 1 sl, 1 br) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 8 og 1 þráð DROPS Ice eða 2 þræði DROPS Cotton Light.
Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 14-14-16-16-16-16 l jafn yfir = 36-38-38-40-42-44 l. Prjónið nú MYNSTURÁFERÐ Á ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 18-17-17-16-15-15 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla), eru felldar af 7 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 4 fyrstu l, prjónið eins og áður þar til 3 l eru eftir, fellið þær af) = 29-31-31-33-35-37 l eftir á prjóni. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið vinstri ermi.

VINSTRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og hægri ermi, en þegar ermin mælist 18-17-17-16-15-15 cm eru felldar af fyrstu 3 l í umf og síðustu 4 l í lok umf.

BERUSTYKKI:
Sejið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 136-148-156-172-184-200 l. Setjið prjónamerki í allar skiptingar milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

Haldið áfram með mynsturáferð á fram- og bakstykki og ermum JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir laskalínu þannig – SJÁ ÚRTAKA-1 – ATH: Lykkjum er ekki fækkað af eins á fram- og bakstykki og ermum:
STÆRÐ S:
Á ERMI: Byrjið á umf 1 og fækkið lykkjum í 4. hverri umf alls 7 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 5 sinnum (= 5 l eftir á ermi).
Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 4 umf áður en lykkjum er fækkað, síðan er lykkjum fækkað í 10. hverri umf alls 4 sinnum.
STÆRÐ M:
Á ERMI: Byrjið á umf 1 og fækkið lykkjum í 4. hverri umf alls 7 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 6 sinnum (= 5 l eftir á ermi).
Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 4 umf áður en lykkjum er fækkað, síðan er lykkjum fækkað í 8. hverri umf alls 5 sinnum.
STÆRÐ L:
Á ERMI: Prjónið 1 umf áður en lykkjum er fækkað, síðan er lykkjum fækkað í 4. hverri umf alls 7 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 6 sinnum (= 5 l eftir á ermi).
Á FRAM – OG BAKSTYKKI: Prjónið 1 umf áður en lykkjum er fækkað, síðan er lykkjum fækkað í 6. hverri umf alls 7 sinnum.
STÆRÐ XL:
Á ERMI: Prjónið 1 umf áður en lykkjum er fækkað, síðan er lykkjm fækkað í 4. hverri umf alls 7 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 7 sinnum (= 5 l eftir á ermi).
Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 1 umf áður en lykkjum er fækkað, síðan er lykkjum fækkað í 6. hverri umf alls 4 sinnum, síðan í 4. hverri umf alls 5 sinnum.
STÆRÐ XXL:
Á ERMI: Byrjið á umf 1 og fækkið lykkjum í 4. hverri umf alls 7 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 8 sinnum (= 5 l eftir á ermi).
Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið á umf 1 og fækkið lykkjum í 4. hverri umf alls 11 sinnum.
STÆRÐ XXXL:
Á ERMI: Byrjið á umf 1 og fækkið lykkjum í 4. hverri umf alls 7 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 9 sinnum (= 5 l eftir á ermi).
Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið á umf 1 og fækkið lykkjum í 4. hverri umf alls 10 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 3 sinnum.

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-48-48-50-50-52 cm er fækkað um 1 l með prjónamerki á framst fyrir hálsmáli og stykkið er prjónað áfram fram og til baka á hringprjóna. JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin að miðju að framan fyrir V-hálsmáli – LESIÐ ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu): alls 5 sinnum í öllum stærðum og síðan í 4. hverri umf alls 2-2-2-3-3-3 sinnum.
Eftir laskaúrtöku og v-hálsmáli eru 57-61-61-63-63-67 l eftir á prjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm. Nú eru felldar af miðju 13-13-13-15-15-15 l á bakstykki fyrir hálsmáli (þ.e.a.s. l við prjónamerki og 6-6-6-7-7-7 l hvoru megin við hana), hvort stykki er nú prjónað fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsmáli að aftan = 21-23-23-23-23-25 l eftir á prjóni. Setjið l á þráð og endurtakið eins hinum megin í hálsmáli.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 110-114-118-122-126-130 l kringum hálsmál á hringprjóna nr 3,5 með 2 þráðum af Cotton Viscose. Prjónið stroff (= 1 sl, 1 br) – sjáið til þess að það komi 1 l sl nákvæmlega fyrir miðju að framan á v-hálsmáli. JAFNFRAMT er fækkað um 2 l fyrir miðju að framan þannig (þ.e.a.s. neðsta hornið á v-hálsmálinu): Byrjið á 1 l á undan miðjulykkju, takið 2 l óprjónaðar eins og prjóna eigi slétt saman, steypið yfir til baka fyrri lykkjunni af þeim tveimur l á vinstra prjón, prjónið 2 sl saman og setjið steyptu l yfir á hægra prjón. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 2 sinnum til viðbótar. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 136-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Levêque wrote:

C’est la 2ème fois que je fais ce modèle (TT49) et je n’ai toujours pas compris ce qu’on doit faire des mailles mises sur un arrêt. Pour la taille XXXL c’est 25 mailles de chaque côté. En faisant un assemblage on obtient une pointe au niveau des épaules.

04.02.2023 - 15:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Levêque, lorsque vous avez terminé les diminutions du raglan et celles de l'encolure, il vous reste 25 mailles que vous glissez en attente. Pour tricoter le col, relevez les mailles tout autour de l'encolure en reprenant en même temps les mailles mises en attente à la fin de l'empiècement et tricotez la bordure d'encolure V comme indiqué sur toutes ces mailles. Bon tricot!

06.02.2023 - 15:19

country flag Kristensen Marianne wrote:

Hej vil i hjælpe med en erstatning for cotton viscose to tråde til opskriften summer breeze, kan ikke finde en i jeres omregner. Mvh Marianne

13.08.2022 - 19:06

DROPS Design answered:

Hei Marianne. Til denne genseren er det kun brukt DROPS Cotton Viscose i vrangbordkantene. DROPS Cotton Viscose tilhørte garngruppe A, og du kan velge garn fra denne garngruppen. Viscosen i DROPS Cotton Viscose gav en flott glans, denne glansen er dessverre ikke i de andre kvalitetene i garngruppe A. mvh DROPS Design

15.08.2022 - 10:55

country flag Laurence wrote:

Bonjour, c'est mon premier top down et je ne comprend pas comment ajouter les manches au dos/devant sur la même aiguille circulaire pour que l'emmanchure corresponde.

11.03.2022 - 12:59

DROPS Design answered:

Bonjour Laurence, cette vidéo montre comment vous allez placer les manches sur la même aiguille circulaire que le dos et le devant, entre les mailles du dos et du devant, au niveau des 7 mailles rabattues pour les emmanchures à la fin du bas du pull. Bon tricot!

14.03.2022 - 09:57

country flag Levêque wrote:

Peut-on remplacer les 2 fils de viscose par 1 ou 2 fils de cotton Light.

09.02.2022 - 09:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Levêque, pas vraiment car Cotton Viscose faisait partie du groupe A alors que Cotton Light est du groupe B - vous pouvez utiliser DROPS Loves You 7 ou bien Safran . Retrouvez ici comment calculer la nouvelle quantité. Bon tricot!

09.02.2022 - 13:37

country flag Zuzana wrote:

Ďakujem za pekný model. Plietol sa mi trochu ťažšie, lebo preklad do češtiny bol s mnohými významovými chybami (vďaka anglickej verzii som sa dopátrala, ako to autorky mysleli), tiež mi chýbali niektoré video návody. Trochu tu bol zmätok s vlnou, ktorá sa už nevyrába. Nakoniec sa všetko vyriešilo a z výsledku mám veľkú radosť.

31.07.2021 - 18:29

country flag Lene Johansen wrote:

Tusen takk for svar. Jeg må innrømme at jeg er like forvirret på mengden. Hvor mye trenger jeg av Drops Belle og hvor mye trenger jeg av Drops Love you for å strikke en genser i størrelse Large? Blir det: 750 g Drops Belle og Drops Love you, eller 650 g Drops Belle og Drops Love you? Og hva erstatter Drops Viscose? Beklager forvirringen.

22.04.2021 - 12:25

DROPS Design answered:

Hei igjen Lene, I oppskriften er det enten Drops Ice eller Drops Light, som er garn fra gruppe B. Drops Belle erstatter her, så du trenger 750 g. Drops Love You erstatter Drops Viscose og her trenger du 150 g. Hilsen Drops Team.

23.04.2021 - 08:26

country flag Lene Johansen wrote:

Hei, Hvilke garn skal jeg bruke dersom jeg kun ønsker å bruke plantefiber og ingen oljebaserte fibrer? Hvor mye trenger jeg til størrelse L? Takk for hjelpen! Lene

20.04.2021 - 11:10

DROPS Design answered:

Hei Lene, Vi har Drops Belle som er laget av bomull, viskose og lin. Det er et garn i gruppe B, så da trenger du å strikke sammen med et garn fra gruppe A for å få riktig strikkefasthet. Drops Love You er et garn fra gruppe A som er et bomullsgarn. Hvis du bruker disse 2 garntypene, kan du bruke mengdene i oppskriften, men husk å sjekke strikkefastheten din før du begynner. God fornøyelse!

22.04.2021 - 08:22

country flag Helma Mol wrote:

Goedemorgen, de Cotton viscose is uit het assortiment, is er een vervanger? Of zou ik het gewoon van Cotton light kunnen maken en dan 100 steken opzetten met nog 8?\r\nOf hebben jullie een ander idee?

28.03.2021 - 08:16

DROPS Design answered:

Dag Helma,

Cotton viscose valt in garengroep A, en kun je dus het beste vervangen door een garen uit garengroep A, zodat je dezelfde dikte hebt. Je komt dan op Safran uit. In plaats van 2 draden uit categorie A, zou je ook voor 1 draad uit Categorie C kunnen kiezen. In dat geval i s Paris een geschikte vervanging.

01.04.2021 - 20:19

country flag Andrea wrote:

Als ik bij maat M 61 steken overhoud op het einde van de hals, klopt het dan dat de voorpanden beide 9 steken over hebben? Ik begrijp niet hoe ik dan een ronde hals moet creeren, zonder aan de bovenkant af te kanten op de schouder. De resterende steken van de voorpanden vormen als het ware een hoek van 90 graden (weet niet hoe ik dit moet uitleggen zonder foto), daar kun je toch geen steken bij opnemen zodat het rond wordt? Dank en met vriendelijke groet, Andrea

03.01.2020 - 09:35

DROPS Design answered:

Dag Andrea,

Nadat je steken op een hulpdraad hebt gezet voor de hals op het achterpand, kant je nog een keer 1 steek af aan beide kanten. Het is nu inderdaad vrij hoekig, maar als je steken opneemt rondom voor de hals en de halsboord gaat breien, zul je zien dat de 'hoekigheid' erg mee valt en de boord zich wel mooi vormt voor de hals.

08.01.2020 - 09:12

country flag Fabienne wrote:

J'ai encore une question vous entendez quoi par empiècement car si je tricote tout en aiguilles droites et que je fais les diminution, où vient l'empiècement ? Merci

21.10.2019 - 13:10

DROPS Design answered:

Bonjour Fabienne, si vous tricotez tout sur aiguilles droites, vous devez entièrement modifier le modèle pour séparer chaque pièce: dos, devant et manches, du début jusqu'à la fin. L'empiècement se tricotant ici en rond à partir des emmanchures, il vous faudra le diviser également pour le répartir sur chaque partie correspondante. Votre magasin DROPS saura vous aider si vous avez besoin d'aide - même par mail ou téléphone. Bon tricot!

21.10.2019 - 14:53