Summer Breeze |
|
|
|
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Ice eða 2 þráðum DROPS Cotton Light með laskalínu, v-hálsmáli og stroff kanti úr 2 þráðum DROPS Cotton Viscose. Stærð S – XXXL
DROPS 136-22 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTURÁFERÐ Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónað í hring: UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: * Prjónið 1 sl, 1 br *, endurtakið frá *-*. Prjónað fram og til baka: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): * Prjónið 1 br, 1 sl *, endurtakið frá *-*. ** Endurtakið umf 1 og 2 í 15-16-16-17-17-17 cm, prjónið 4-4-4-4-5-5 cm sléttprjón **, endurtakið frá**-** til loka. MYNSTURÁFERÐ Á ERMI: Prjónað í hring: UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: * Prjónið 1 sl, 1 br *, endurtakið frá *-*. Prjóið fram og til baka: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): * Prjónið 1 br, 1 sl *, endurtakið frá *-*. Endurtakið umf 1 og 2 til loka. ÚRTAKA-1 (á við um laskaúrtöku): Prjónað er sléttprjón yfir miðju 4 l í hverri úrtöku fyrir laskalínu í hverri umf (þ.e.a.s. 2 l sléttprjón hvoru megin við öll prjónamerki). Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Á undan prjónamerki: Prjónið 2 sl saman. Á eftir prjónamerki: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚRTAKA-2 (á við um v-hálsmál): Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan. Öll úrtaka er gerð frá réttu þannig: Á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni: Prjónið 2 sl saman. Á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 184-200-216-240-256-280 l á hringprjóna nr 3,5 með 2 þráðum af DROPS Cotton Viscose. Prjónið stroff (= 1 sl, 1 br) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og 1 þráð af DROPS Ice eða 2 þráðum DROPS Cotton Light. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT sem allar l eru prjónaðar saman 2 og 2 = 92-100-108-120-128-140 l. Prjónið nú MYNSTURÁFERÐ Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm er næsta umf prjónuð þannig: Fellið af 4 l fyrir handveg, prjónið næstu 39-43-47-53-57-63 l eins og áður (= framstykki), fellið af 7 l fyrir handveg, prjónið næstu 39-43-47-53-57-63 l eins og áður (= bakstykki) og fellið af síðustu 3 l. Klippið frá. Setjið prjónamerki í miðju l á fram- og bakstykki (= 19-21-23-26-28-31 l hvoru megin við prjónamerki). Geymið stykkið og prjónið ermar. HÆGRI ERMI: Fitjið upp 50-52-54-56-58-60 l á sokkaprjóna nr 3,5 með 2 þráðum DROPS Cotton Viscose. Prjónið stroff (= 1 sl, 1 br) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 8 og 1 þráð DROPS Ice eða 2 þræði DROPS Cotton Light. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 14-14-16-16-16-16 l jafn yfir = 36-38-38-40-42-44 l. Prjónið nú MYNSTURÁFERÐ Á ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 18-17-17-16-15-15 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla), eru felldar af 7 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 4 fyrstu l, prjónið eins og áður þar til 3 l eru eftir, fellið þær af) = 29-31-31-33-35-37 l eftir á prjóni. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið vinstri ermi. VINSTRI ERMI: Prjónið á sama hátt og hægri ermi, en þegar ermin mælist 18-17-17-16-15-15 cm eru felldar af fyrstu 3 l í umf og síðustu 4 l í lok umf. BERUSTYKKI: Sejið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 136-148-156-172-184-200 l. Setjið prjónamerki í allar skiptingar milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram með mynsturáferð á fram- og bakstykki og ermum JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir laskalínu þannig – SJÁ ÚRTAKA-1 – ATH: Lykkjum er ekki fækkað af eins á fram- og bakstykki og ermum: STÆRÐ S: Á ERMI: Byrjið á umf 1 og fækkið lykkjum í 4. hverri umf alls 7 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 5 sinnum (= 5 l eftir á ermi). Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 4 umf áður en lykkjum er fækkað, síðan er lykkjum fækkað í 10. hverri umf alls 4 sinnum. STÆRÐ M: Á ERMI: Byrjið á umf 1 og fækkið lykkjum í 4. hverri umf alls 7 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 6 sinnum (= 5 l eftir á ermi). Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 4 umf áður en lykkjum er fækkað, síðan er lykkjum fækkað í 8. hverri umf alls 5 sinnum. STÆRÐ L: Á ERMI: Prjónið 1 umf áður en lykkjum er fækkað, síðan er lykkjum fækkað í 4. hverri umf alls 7 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 6 sinnum (= 5 l eftir á ermi). Á FRAM – OG BAKSTYKKI: Prjónið 1 umf áður en lykkjum er fækkað, síðan er lykkjum fækkað í 6. hverri umf alls 7 sinnum. STÆRÐ XL: Á ERMI: Prjónið 1 umf áður en lykkjum er fækkað, síðan er lykkjm fækkað í 4. hverri umf alls 7 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 7 sinnum (= 5 l eftir á ermi). Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 1 umf áður en lykkjum er fækkað, síðan er lykkjum fækkað í 6. hverri umf alls 4 sinnum, síðan í 4. hverri umf alls 5 sinnum. STÆRÐ XXL: Á ERMI: Byrjið á umf 1 og fækkið lykkjum í 4. hverri umf alls 7 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 8 sinnum (= 5 l eftir á ermi). Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið á umf 1 og fækkið lykkjum í 4. hverri umf alls 11 sinnum. STÆRÐ XXXL: Á ERMI: Byrjið á umf 1 og fækkið lykkjum í 4. hverri umf alls 7 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 9 sinnum (= 5 l eftir á ermi). Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið á umf 1 og fækkið lykkjum í 4. hverri umf alls 10 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 3 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-48-48-50-50-52 cm er fækkað um 1 l með prjónamerki á framst fyrir hálsmáli og stykkið er prjónað áfram fram og til baka á hringprjóna. JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin að miðju að framan fyrir V-hálsmáli – LESIÐ ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu): alls 5 sinnum í öllum stærðum og síðan í 4. hverri umf alls 2-2-2-3-3-3 sinnum. Eftir laskaúrtöku og v-hálsmáli eru 57-61-61-63-63-67 l eftir á prjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm. Nú eru felldar af miðju 13-13-13-15-15-15 l á bakstykki fyrir hálsmáli (þ.e.a.s. l við prjónamerki og 6-6-6-7-7-7 l hvoru megin við hana), hvort stykki er nú prjónað fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsmáli að aftan = 21-23-23-23-23-25 l eftir á prjóni. Setjið l á þráð og endurtakið eins hinum megin í hálsmáli. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 110-114-118-122-126-130 l kringum hálsmál á hringprjóna nr 3,5 með 2 þráðum af Cotton Viscose. Prjónið stroff (= 1 sl, 1 br) – sjáið til þess að það komi 1 l sl nákvæmlega fyrir miðju að framan á v-hálsmáli. JAFNFRAMT er fækkað um 2 l fyrir miðju að framan þannig (þ.e.a.s. neðsta hornið á v-hálsmálinu): Byrjið á 1 l á undan miðjulykkju, takið 2 l óprjónaðar eins og prjóna eigi slétt saman, steypið yfir til baka fyrri lykkjunni af þeim tveimur l á vinstra prjón, prjónið 2 sl saman og setjið steyptu l yfir á hægra prjón. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 2 sinnum til viðbótar. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (47)
Christine wrote:
Classic and casual wear anytime sweater I would make in several colors.
10.01.2012 - 03:28Claudia wrote:
Ein sehr vielseitiger Pulii. Der gefällt mir sehr gut.
04.01.2012 - 18:19Connie wrote:
Den möchte ich stricken. Sehr schick. Bitte mehr Pullover online stellen. Sind fast alles Jacken.
02.01.2012 - 02:46Paola wrote:
Bellissimo!! Per favore, fate la traduzione in italiano!!
01.01.2012 - 15:24Waltraud wrote:
Einfach wunderschön, den werde ich ganz bestimmt nachstricken
29.12.2011 - 07:37Nel wrote:
Wat een leuke trui ,zeker opnemen in de collectie.
28.12.2011 - 21:04Mariana wrote:
I like it very much! it is so romantic and pure
28.12.2011 - 14:52Miranda Radford wrote:
Really useful jumper.
24.12.2011 - 17:56Jutta wrote:
Lovely, classic little pullover
15.12.2011 - 06:29Ann Johnson wrote:
Every summer wardrobe should have one these. Lovely.
15.12.2011 - 01:21