Vanilla Sprite |
||||||||||
|
||||||||||
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með laskalínu og köðlum á ermum ásamt buxum úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Baby 18-4 |
||||||||||
PEYSA: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan með því að prjóna aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og síðan er slegið einu sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 2, 8, 13 og 18 cm. STÆRÐ 6/9 mán: 2, 8, 14 og 20 cm. STÆRÐ 12/18 mán: 2, 8, 13, 18 og 23 cm. STÆRÐ 2 ára: 2, 8, 14, 20 og 26 cm. STÆRÐ 3/4 ára: 2, 9, 16, 23 og 29 cm. Fellið einnig af fyrir einu hnappagati í hálsmáli. ------------------------------------------------------------ PEYSA FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Fitjið upp 139-157-169 (187-199) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið að framan) á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan), * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 3 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan. Haldið svona áfram JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er fellt af fyrir hnappagati meðfram hægri kant að framan – sjá HNAPPAGAT að ofan. Þegar stykkið mælist ca 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 29-35-35 (41-41) lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum í kanti að framan) = 110-122-134 (146-158) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 3 umferðir slétt, haldið síðan áfram í sléttprjói og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm prjónið næstu umferð þannig (frá réttu): 26-29-32 (35-38) lykkjur (= hægra framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, 42-48-54 (60-66) lykkjur (= bakstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, 26-29-32 (35-38) lykkjur (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-42-42 (48-48) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram með stroff = 3 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist ca 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 6-10-8 (12-10) lykkjur jafnt yfir = 30-32-34 (36-38) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan þannig: 11-12-13 (14-15) lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, M.1 (= 4 lykkjur), 2 lykkjur brugðið og 11-12-13 (14-15) lykkjur slétt. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu í 5.-5.-6. (6.-6.) hverri umferð alls 6-6-7 (8-9) sinnum = 42-44-48 (52-56) lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-28) cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi = 34-36-40 (44-48) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi. ATH! Á hinni erminni er M.2 prjónað í stað M.1. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 162-178-198 (218-238) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingarnar á milli framstykkis, bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Prjónið áfram fram og til baka – JAFNFRAMT í umferð 3 er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerkin fyrir laskalínu – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 10-11-12 (13-15) sinnum. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-25-28 (32-35) cm er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 10-11-13 (14-15) lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkja 2 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir laskalínu og affellingu fyrir hálsmáli eru 58-64-72 (82-84) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 27-29-33 (37-40) cm upp að öxl. KANTUR Í HÁLSI: Setjið lykkjur í kringum háls á hringprjón 3,5 og takið að auki upp 12 til 18 lykkjur í hvorri hlið framan í hálsi = ca 82 til 120 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu – JAFNFRAMT eru prjónaðar 4 lykkjur yfir M.1 og M.2 á ermum saman tvær og tvær. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 73-73-79 (79-85) lykkjur (ekki fækka lykkjum yfir kanta að framan). Prjónið síðan stroff = 3 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið með 5 lykkjur garðaprjón og 3 lykkjur slétt í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá röngu). JAFNFRAMT eftir 1 cm er fellt af fyrir einu hnappagati yfir hin hnappagötin í kanti að framan. Þegar kantur í hálsi mælist 2 cm er fellt af. VASI: Fitjið upp 12-16-16 (20-20) lykkjur á sokkaprjón 3,5. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 4-5-5 (6-7) cm – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir = 16-20-20 (24-24) lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff þar til vasinn mælist 6-7-7 (8-9) cm og fellið síðan af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum, saumið tölur í og saumið vasann á peysuna – hann á að sitja 6-6-7 (7-8) cm frá neðri kanti og mitt á milli hliðarsauma og kanti að framan. ------------------------------------------------------------ BUXUR: ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------------ BUXUR: Buxurnar eru prjónaðar í hring á hringprjón ofan frá og niður. Fitjið upp 120-126-132 (138-144) lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff = 3 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið í 8-9-9 (10-10) cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt – JAFNFRAMT er fækkað um 24-26-28 (26-28) lykkjur jafnt yfir = 96-100-104 (112-116) lykkjur. Setjið prjónamerki við miðju að framan og 1 prjónamerki við miðju að aftan (= 48-52-52 (56-58) lykkjur á milli prjónamerkja. Prjónið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-14-15 (16-17) cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur við miðju að framan - aukið út með því að taka upp lykkju frá fyrri umferð og prjónið hana slétt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 9-9-9 (10-10) sinnum = 114-118-122 (132-136) lykkjur. Eftir allar útaukningar mælist stykkið ca 18-20-21 (23-24) cm. Í næstu umferð eru felldar af 4 lykkjur við miðju að framan og við miðju að aftan (þ.e.a.s. 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig. Setjið lykkjur af annarri skálminni á þráð og lykkjur fyrir hina skálmina á sokkaprjón 4,5. SKÁLM: = 53-55-57 (62-64) lykkjur. Prjónið sléttprjón og setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = innanverðu á skálm. Þegar skálmin mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2-3-4 (5-6) cm millibili alls 4 sinnum = 45-47-49 (54-56). Þegar skálmin mælist 10-13-16 (19-25) cm er skipt yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón – JAFNFRAMT er aukið út um 9-7-11 (6-10) lykkjur jafnt yfir = 54-54-60 (60-66) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið, 2 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff = 3 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið þar til skálmin mælist 18-22-25 (29-35) cm. Fellið síðan laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Prjónið hina skálmina alveg eins og sú fyrri. Allar buxurnar mælast 36-42-46 (52-59) cm. FRÁGANGUR: Saumið sama op á milli skálma. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (43)
Maria Kuusniemi wrote:
Jakkuosassa (Koko 86/92) sanotaan, että kavennukset tehdään tasavälein 41s. Tarkoittaako se että joka 41. silmukan kohdalla kavennetaan eli kavennuksia tulee yhdessä kerroksessa useampia?
14.11.2015 - 20:58DROPS Design answered:
Ohjeessa lukee, että kavennetaan tasavälein 41 s, eli samalla kerroksella kavennetaan yht. 41 silmukkaa.
16.11.2015 - 13:04Lena Skaarud wrote:
Bukse: skal ikke linning brettes, sette i strikk?
09.11.2015 - 17:57DROPS Design answered:
Hej. Nej det ska den inte. Vrangborden ska vara nok till att hålla byxan uppe. Lycka till!
11.11.2015 - 12:08Elise Rodhe wrote:
Hei, Jeg får ikke antall masker til å stemme med oppskriften. Jeg har nå satt ermene inn på samme rundpinne som boken og har totalt 198 masker (står 12-18mnd) Etter alle fellingen til reglane og hals har jeg 92 masker tilbake og ikke 72, som det står inoppskriften. Jeg har da felt for raglan 4 masker x 12 ganger og 13 masker i hver side for hals i tillegg til 1 m 2 ganger. Hva gjør jeg galt?
06.10.2014 - 14:11DROPS Design answered:
Hei, oppskriften stemmer. Du har 198 og feller til raglan 1 m på hver side av merkene (=8 fellinger pr omg). Dette gjøres 12 ganger totalt (=96 m felt). Så feller du 13 m i hver side (= 26m) 1 gang, også 1m i hver side 2 ganger (=4 ganger). Masker felt 96+26+4=126. 198-126=72m
17.10.2014 - 16:24Liv wrote:
Hei, er det rett at det kun skal økes til kile forran på buksen ? Mvh Liv
01.09.2014 - 23:20Sabrina wrote:
Hallo! Ich verstehe beim Ärmel folgenden Passus nicht:" Nach 17 cm unter dem Ärmel M. abketten = 36(in meinem Fall) M." Heißt das, dass ich 36 Maschen abketten soll, oder dass ich 36 Maschen "übrig" behalten soll? LG
29.07.2014 - 00:23DROPS Design answered:
Liebe Sabrina, die M-Zahl nach dem Gleichheitszeichen bedeutet immer die noch vorhandene M-Zahl (soweit nicht anders angegeben). Sie haben also noch 36 M übrig, allerdings ist in der Anleitung die M-Zahl verloren gegangen, die abgekettet werden soll, das wird umgehend ergänzt. Weiterhin viel Spaß beim Stricken.
29.07.2014 - 09:18Brigitte Daigneault wrote:
Il y a une erreur dans le modele 1/3 mois, rendu au moment de rabattre pour les manches il faut tricotée 26 maille et non 29 comme ondique avant de rabattre pour les emmanchures.
19.04.2014 - 15:38DROPS Design answered:
Bonjour Mme Daigneault et merci, cette faute de frappe a été corrigée. Bon tricot!
22.04.2014 - 09:48Marine wrote:
Hallo, ich bin bis zum Halsauschnitt gekommen und verstehe nicht was ich nun tun muss. Welchen Teil kette ich ab? und wie kette ich eine Masche 2 Mal ab? Wäre toll, wenn mir jemand hefen könnte!! Danke :)
16.09.2013 - 01:23DROPS Design answered:
Liebe Marine, man kettet wie folgt für den Halsausschnitt ab: 1 x 10-11-13 (14-15) M und danach 2 x 1 M. Es war in der alten Übersetzung etwas holprig formuliert, wir haben es nun geändert.
16.09.2013 - 15:48Abigail wrote:
Directions for sleeve: once sleeve is 32 sts, then k12, p2, m.1 (=4sts.),p2, k 12. what does m.1 (=4 sts.) mean?
28.06.2013 - 16:04DROPS Design answered:
Dear Abigail, M.1 is worked on 4 sts so that you work here the 4 sts of diagram M.1 - see diagram at the bottom of the page. Happy knitting!
28.06.2013 - 18:46Matthes wrote:
Ich habe das erste mal diese Jacke mit Rundpasse gestrickt. Bin jetzt soweit, dass ich die Jacke mit den Ärmeln verbinden möchte,um die Passe weiterzustricken, weiß aber nicht wie. Gibt es dazu eine Videoanleitung? Bis jetzt sieht die Jacke ja super aus, aber ich möchte sie gern fertigstellen. Vielen Dank für Ihre Hilfe A. Matthes
15.12.2012 - 14:44DROPS Design answered:
Liebe Frau Matthes, das ist ganz einfach: sie nehmen zunächst das eine Vorderteil auf die Nadel, dann den ersten Ärmel, dann das Rückenteil, dann den zweiten Ärmel und schließlich das zweite Vorderteil. Dann über alle M in Hin-und Rückreihen (mit Raglanabnahmen) weiterstricken.
16.12.2012 - 09:44Melissa wrote:
Hallo,ich habe in der Anleitung folgendes nicht verstanden:''HALSAUSSCHITT: Gleichzeitig nach 23-25-28 (32-35) cm auf beiden Seiten vorne gegen den Hals abk.: 10-11-13 (14-15) M. 1 Mal und danach 1 M. 2 Mal. Nach allen Abnahmen für die Passe und für den Hals sind noch 58-64-72 (82-84) M. was meinen Sie mit gegen den Hals abketten?und 1 Mal und danach 1 Masche? ich würde mich sehr auf eine Antwort freuen. PS:bitte so einfach wie möglich erklaren.das ist meine erste raglan Jacke.
13.04.2012 - 04:48DROPS Design answered:
Sie stricken ja die Arbeit von der Vorderen Mitte her hin und zurück. Von der Vorderseite 10-11-13 (14-15)M. abk. und die Reihe fertig stricken, am Anfang der nächsten Reihe wieder 10-11-13 (14-15)M. abk. und die Reihe fertig stricken. Weiter am Anfang der nächsten 4 Reihen je 1 M. abk.
13.04.2012 - 09:07