GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
SNÚRUPRJÓN:
* Prjónið 1 lykkju slétt, setjið þráðinn fyrir framan stykkið (að þér), takið 1 lykkju óprónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, setjið þráðinn fyrir aftan stykkið (frá þér) *, endurtakið frá *-* í öllum umferðum. Nú myndast hringlaga snúra.
--------------------------------------------------------
HÚFA:
Fitjið upp 33-38-42 (46-50) lykkjur á prjón nr 2,5 með Alpaca.
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, jafnframt er aukið út um 1 lykkju í hægri hlið og fækkað um 1 lykkju í vinstri hlið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 útaukning), prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir og prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan).
Endurtakið þessar 2 umferðir þar til stykkið mælist 5½-6-6½ (7-8) cm. Fellið nú af 1 lykkju í hægri hlið og aukið út um 1 lykkju í vinstri hlið þannig:
Rétta: Prjónið 1 lykkju slétt, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt.
Ranga: Prjónið slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt).
Endurtakið þessar 2 umferðir þar til prjónaðir hafa verið til viðbótar 5½-6-6½ (7-8) cm. Haldið nú áfram að auka út um 1 lykkju á hægri hlið í 4. hverri umferð og fækkið um 1 lykkju í vinstri hlið í annarri hverri umferð þar til stykkið mælist 15½-16½-17½ (18-19) cm frá uppfitjunarkanti. Setjið prjónamerki í hvora hlið á stykkinu.
Haldið áfram þannig: Fækkið um 1 lykkju í hægri hlið í 4. hverri umferð og aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð þar til stykkið mælist 20-21-22 (22-22) cm. Fækkið um 1 lykkju í vinstri hlið í annarri hverri umferð og aukið út um 1 lykkju í hægri hlið í annarri hverri umferð þar til stykkið mælist 25½ -27-28½ (29-30) cm. Fækkið nú um 1 lykkju í hægri hlið í annarri hverri umferð og aukið út um 1 lykkju í vinstri hlið í annarri hverri umferð til loka = 31-33-35 (36-38) cm. Fellið af.
FRÁGANGUR:
Bakhlið á húfunni = sá hluti á stykkinu sem er með 2 heil horn og 2 hálf horn. Miðjuhornið af 3 heilu hornunum í gagnstæðri hlið á stykkinu sem liggur niður á enni. Saumið saman húfuna kant í kant með smáu spori þannig: Saumið saman að aftan með því að sauma fyrsta hálfa hornið saman við fyrri hluta af fyrsta heila horninu. Saumið nú hinn helminginn af fyrsta heila horninu saman við fyrsta helminginn af seinni hálfa horninu. Síðan er hinn helmingur heila hornsins saumaður saman með síðasta hálfa horninu. Að lokum er húfan saumið saman við miðju að aftan.
SNÚRA:
Fitjið upp 4 lykkjur á prjón nr 2,5 með Alpaca. Prjónið SNÚRUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af þegar snúran mælist ca 16-18-20 (22-24) cm. Prjónið aðra snúru alveg eins. Saumið snúrurnar neðst í hvort horn í hvorri hlið.
--------------------------------------------------------
TREFILL:
Fitjið upp 4 lykkjur á prjón nr 2,5 með Alpaca og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, jafnframt er aukið út í hvorri hlið þannig:
Hægri hlið: Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju.
Vinstri hlið: Prjónið 2 lykkjur í næst síðustu lykkju.
Aukið út í annarri hverri umf 10-11-12 (13-14) sinnum = 24-26-28 (30-32) lykkjur. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 8-9-10 (11-12) cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * prjónið 1 lykkju slétt, setjið 1 lykkju á nælu (eða hjálparprjón) fyrir aftan stykkið *, endurtakið frá *-* út umferðina. Nú eru 12-13-14 (15-16) lykkjur á prjóni og 12-13-14 (15-16) lykkjur á nælu. Prjónið garðaprjón yfir lykkjur á prjóni í 4-4-4 (5-5) cm og setjið þær síðan á aðra nælu. Setjið lykkjur frá fyrri nælu á prjóninn og prjónið garðaprjón yfir þessar lykkjur að sömu lengd. Prjónið aftur saman bæði stykkin með því að prjóna til skiptis 1 lykkju frá prjóni og 1 lykkju frá nælu þar til allar lykkjur eru komnar aftur á prjóninn = 24-26-28 (30-32) lykkjur. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist alls 40-42-46 (50-54) cm. Prjónið nú garðaprjón jafnframt sem lykkjum er fækkað í hvorri hlið með því að prjóna 2 næst ystu lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni. Fellið þær af. Trefillinn mælist nú ca 44-47-51 (55-60) cm.
--------------------------------------------------------
VETTLINGAR:
GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna):
* 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið *, endurtakið frá *-*
--------------------------------------------------------
VETTLINGAR:
Þrjár stærstu stærðirnar eru prjónaðar með þumli, tvær minni stærðirnar eru án þumals.
Fitji upp 34-36-38 (40-42) lykkjur með Alpaca á sokkaprjóna nr 2,5. Skiptið lykkjum niður á prjónana. Prjónið 12 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – jafnframt í síðustu umferð lykkjum fækkað jafnt yfir að 28-30-32 (34-36) lykkjum. Prjónið 3-3-3 (4-4) cm stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram með garðaprjón – í 1. umferð er aukið út jafnt yfir að 30-33-36 (39-42) lykkjum – setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT.
Þrjár stærstu stærðirnar: Þegar stykkið mælist 1 (2-3) cm eru síðustu 5 (5-6) lykkjur í umferð settar á þráð fyrir þumal. Fitjið upp 5 (5-6) nýjar lykkjur yfir þær í næstu umferð.
Allar stærðir: Þegar stykkið mælist 6-7-8 (9-10) cm er lykkjum fækkað í næstu umferð frá réttu þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* út umferðina = 20-22-24 (26-28) lykkjur. * Prjónið 1 umferð brugðið, prjónið síðan allar lykkjur saman 2 og 2 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.
ÞUMALL:
Setjið l af þræði aftur á sokkaprjóninn og prjónið upp 6 (6-7) lykkjur meðfram kanti yfir þær = 11 (11-13) lykkjur alls. Prjónið garðaprjón í 3 (4-5) cm, prjónið síðan lykkjur saman 2 og 2. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.
SNÚRA:
Fitjið upp 4 lykkjur á prjón nr 2,5 með Alpaca. Prjónið SNÚRUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til snúran passar við lengd barnsins frá úlnlið til úlnliðs = ca 62-67-74 (86-96) cm. Fellið af. Saumið snúruendana í hvorn vettling, andspænis þeirri hlið þar sem þumallinn er.
Hello I am relatively new to knitting, but already finished one of your beautiful baby sock patterns! Now I wanted to make something else for our baby, this hat with mittens, but looking at the wool I saw that you have the same amount of stitches in the gauge as with the socks I made, but almost the double amount of rows. (with the same needle size) How is that possible, somehow that does not make sense to me. Thank you very much for helping :)
23.01.2023 - 20:32DROPS Design answered:
Dear Mrs Rixt, your socks might have been worked in stocking stitch, while the hat is here worked in garter stitch, so that you will get another number of rows (you need more rows in garter stitch than in stocking stitch for the same height), ie you need here 52 rows (26 ridges) in garter stitch to get 10 cm. Happy knitting!
24.01.2023 kl. 12:02Can you advice pattern for Adult sizes please ?? As would like to make one for myself thanks Gillian
03.01.2023 - 08:59DROPS Design answered:
Dear Gillian, sure you will find all our patterns for similar hats here including patterns for adult, children and baby. Happy knitting!
03.01.2023 kl. 09:44Hallo! Ich stricke Schal für 6-monatiges Baby. Welche lange (ungefähr) hat der fertige Schal?
20.11.2022 - 12:54DROPS Design answered:
Liebe Larissa, in die 2. Größe ist der Schal ca 47 cm lang. Viel Spaß beim stricken!
21.11.2022 kl. 09:15Eine Frage, \r\nHabe ich richtig verstanden, nach dem falschen Knote man muß noch 42 cm stricken?
20.11.2022 - 11:08DROPS Design answered:
Liebe Larissa, Sie stricken bis der Schal 40-42-46 (50-54) cm insgesamt misst (die Anleitung wird korrigiert). Viel Spaß beim stricken !
21.11.2022 kl. 09:11Der står tubestrik øverst på opskriften... skal man starte og slutte på alle pinde?? Synes ikke at billederne viser dette nemlig...
15.11.2022 - 10:08DROPS Design answered:
Hej Annette, det tubestrikkede er kun til selve snoren under hagen. Se videoen nederst i opskriften hvordan man gør :)
16.11.2022 kl. 12:12Błąd rękawiczki roz.2 6 oczek zamknąć anie 4 przed ściągaczem. 3 cm ściągacza a nie od dołu robótki
24.05.2022 - 18:58DROPS Design answered:
Witaj Agnieszko, masz rację, dziękujemy za info. Wzór został już poprawiony i dodana została korekta. Pozdrawiamy!
25.05.2022 kl. 09:10Jeg vil kun strikke huen. Hvor meget garn skal der bruges til den?
28.03.2022 - 19:37DROPS Design answered:
Hej Mette, jeg kan se at det ikke står med i opskriften, men du bør kunne klare dig med 1 nøgle i den mindste størrelse. Husk at det findes en video nederst i opskriften :)
30.03.2022 kl. 15:09Hadde vært fint med et bilde av lua før montering så en ser st en har gjort rett eller feil.
20.02.2022 - 10:54Hi! Isn't there an error in the smallest size lengths for the English version? it's 5.5, 11, 15.5, 21, 25.5, and 31. that means the pieces are 5.5, 5.5, 4.5, 5.5, 4.5, and 5.5 cm long. But that means that the right part of the face becomes wider than the left part. Shouldn't it be 5.5, 5.5, 4.5, 4.5, 5.5, and 5.5? So the absolute lengths 5.5cm, then 11, then 15.5, then 20(!), and then 25.5 and 31? That way, the pieces with the slower in/decreases are the same size? Cheers!
09.11.2021 - 11:39DROPS Design answered:
Dear Meike, you are right, it should be 20 cm instead of 21 cm - as in this lesson. Thanks for your feedback. Happy knitting!
09.11.2021 kl. 13:21007 дивитись онлайн
03.10.2021 - 08:09