JB wrote:
For finishing edge: "Do not work in stitch loops but work around the stitch itself" I had hoped to find instructions in the link that is provided above, but they don't seem to be there Please tell me where I can learn how to do this Thank you!
24.02.2024 - 22:28DROPS Design answered:
Dear JB, work as in this video but with single crochets and not with slip stitches as shown in the video. Happy crocheting!
26.02.2024 - 08:44Vera wrote:
Hi, I don't understand the last row "do not work in stitch loops but work around the stitch itself" Is there a video for this ? Many thanks
20.12.2022 - 14:55DROPS Design answered:
Hi Vera! In this video we show how to crochet around the stitches. Hope it helps!
20.12.2022 - 22:40Jildou wrote:
The roaring twenties
01.02.2022 - 22:50Bea wrote:
Härlig 20-tals känsla på denna.
18.01.2022 - 22:56Nina wrote:
Dejlig sommerhat 🌼 Navn JANE
17.01.2022 - 16:59Anna Wilks wrote:
Sabrina
15.01.2022 - 13:33Kiddylove wrote:
Naturally nostalgica
13.01.2022 - 23:29
Little Paris Hat |
|
|
|
Heklaður hattur úr DROPS Paris. Stykkið er heklað með fastalykkjum.
DROPS 229-32 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta fastalykkja i umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju i fyrstu loftlykkju i byrjun á umferð. Þegar skipt er um lit i næstu umferð, er gott að skipta um lit áður en siðasta keðjulykkjan er hekluð – þá verður fallegri skipting á milli randa. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hatturinn er heklaður i hring, ofan frá og niður. HATTUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum natur i DROPS Paris og tengið saman i hring með 1 keðjulykkju i fyrstu loftlykkju. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 lykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu/næstu lykkju, 2 fastalykkjur i næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af 2 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 24 lykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af 3 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 30 lykkjur. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í hverja af 4 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 36 lykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í hverja af 5 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 42 lykkjur. UMFERÐ 8: * 1 fastalykkja í hverja af 6 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 48 lykkjur. UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hverja af 7 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 54 lykkjur. UMFERÐ 10: * 1 fastalykkja í hverja af 8 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 60 lykkjur. UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af 9 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 66 lykkjur. UMFERÐ 12: * 1 fastalykkja í hverja af 10 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 72 lykkjur. UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í hverja af 11 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 78 lykkjur. UMFERÐ 14: * 1 fastalykkja í hverja af 12 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 84 lykkjur. Útaukning er nú lokið í stærð S/M. STÆRÐ L/XL: UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í hverja af 13 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 90 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Heklið áfram, nema án útaukninga þar til stykkið mælist ca 17-18 cm. BARÐ: Skiptið yfir í litinn mosagrænn og heklið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykku í hverja lykkju umferðina hringinn = 84-90 lykkjur. UMFERÐ 2: * 1 fastalykkja i hverja af 13-14 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 90-96 lykkjur. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju i hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hverja af 14-15 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 96-102 lykkjur. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í hverja af 15-16 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 102-108 lykkjur. UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 8: * 1 fastalykkja í hverja af 16-17 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 108-114 lykkjur. UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hverja af 17-18 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 114-120 lykkjur. UMFERÐ 10: * 1 fastalykkja í hverja af 18-19 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur i næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 120-126 lykkjur. Klippið þráðinn og skipti yfir í litinn natur. UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af 19-20 fyrstu/næstu lykkjur, 2 fastalykkjur i næstu lykkju *, heklið *-* umferðina hringinn = 126-132 lykkjur. Heklið núna kant í lokin þannig: Heklið 1 fastalykkju um hverja fastalykkju, þ.e.a.s. ekki hekla í lykkjubogana, heldur heklið um hverja fastalykkju. Endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju. Klippið þráðinn og festið. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Carlin wrote:
When is patron avaible
02.02.2022 - 10:34