DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9460.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 220-5
DROPS Design: Mynstur cm-132
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-800 g litur 01, natur

HEKLFESTA:
17 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9460.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.2 sýnir hvernig umferðin byrjar/endar þegar heklað er í hring.

HEKLLEIÐBEININGAR – Á við um þegar heklað er fram og til baka:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er byrjað með 1 loftlykkju (þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju).
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er byrjað með 3 loftlykkjur (þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls). Endið umferð með 1 stuðli og í 3. loftlykkju, þessi stuðull er heklaður til að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið og hoppað er yfir í næstu umferð.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

ÚRTAKA-1:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig:
Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næsta stuðul, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).

ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku fyrir handveg):
Fækkið lykkjum alltaf með því að hekla 2 og 2 stuðla saman – munið eftir ÚRTAKA-1.
Í 5. og 6. umferð í A.1 er þess vegna heklaður 1 stuðull í hvern stuðul frá umferðinni að neðan yfir lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu af A.1 (1 mynstureining A.1 = 3 lykkjur á breidd).

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til að reikna út hvernig fækka/fjölda á lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja (t.d. 156 lykkjur) og deilið með fjölda úrtöku/útaukningu sem á að gera (t.d. 6) = 26.
Í þessu dæmi eru heklaðar 25. og 26. hver lykkja saman. Ef auka á út er í þessu dæmi heklaðar 2 lykkjur í 26. hverja lykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Það er 10 cm klauf neðst á kjólnum, stykkið er fyrst heklað fram og til baka í 2 stykkjum þar til klaufin hefur verið hekluð til loka, síðan er stykkið heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð og heklað er fram og til baka í umferð til að áferðin verði alveg eins allan tímann. Þegar stykkinu er skipt upp við handveg er áfram heklað fram og til baka. Að lokum er heklaður skrautkantur í kringum hálsmál og handveg.

FRAMSTYKKI:
Heklið 78-84-90-96-108-120 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA með Cotton Merino með heklunál 4. Snúið stykkinu og heklið til baka þannig:
Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 78-84-90-96-108-120 fastalykkjur. Snúið og heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju til baka. Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.1. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Eftir ca 10 cm er stykkið lagt til hliðar og bakstykkið er heklað, stillið af að síðasta umferð sem er hekluð sé 2., 4. eða 6. umferð í mynsturteikningu, þetta er mikilvægt til að mynstrið verði rétt frá réttu þegar heklað er í hring.

BAKSTYKKI:
Heklið 78-84-90-96-108-120 loftlykkjur með Cotton Merino með heklunál 4. Snúið og heklið til baka þannig:
Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 78-84-90-96-108-120 fastalykkjur. Snúið og heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju til baka. Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.1. Haldið áfram þar til stykkið mælist 10 cm – endið í sömu umferð og á framstykki.

KJÓLL eftir klauf:
Haldið áfram með mynstur – heklið fyrst lykkjur frá réttu yfir framstykki, síðan eru lykkjur heklaðar frá réttu yfir bakstykki, að lokum er umferðin hekluð saman með keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, heklið loftlykkjur í A.2, snúið stykkinu og heklið til baka frá röngu. Stykkið er síðan heklað í hring, en stykkinu er snúið í hverri umferð, þannig að heklað er bæði frá réttu og frá röngu. Þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins í öllu stykkinu.
Setjið 1 prjónamerki í skiptinguna á milli framstykkis og bakstykkis = hliðar.
Haldið svona áfram fram og til baka með mynstur eftir mynsturteikningu A.1 og A.2 = 156-168-180-192-216-240 lykkjur í umferð (A.2 er ekki talið með í lykkjufjölda).
Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm – stillið af að næsta umferð sé 1., 2., eða 3. Umferð í mynsturteikningu, fækkið um 6 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 og ÚRTAKA/ÚTAUKNING. Fækkið lykkjum svona í hvert skipti sem 1., 2. og 3. umferð er hekluð, fækkið lykkjum alls 6 sinnum = 120-132-144-156-180-204 lykkjur.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm – stillið af að næsta umferð sé 1., 2. eða 3. umferð í A.1. Aukið nú út 6 stuðla jafnt yfir í umferð með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul. Aukið svona út í hvert skipti sem 1. og 3. umferð er hekluð, aukið út alls 4 sinnum – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 144-156-168-180-204-228 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm, skiptið stykkinu fyrir framstykki og bakstykki við handveg, stillið af að næsta umferð sem á að hekla sé 1., 2. eða 3. umferð.

FRAMSTYKKI:
Heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 4-5-4-5-6-7 lykkjur, heklið síðan fram þar til eftir eru 4-5-4-5-6-7 stuðlar á undan prjónamerki í hinni hliðinni, snúið stykkinu. Í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Heklið 4 ystu lykkjurnar í hvorri hlið saman 2 og 2. Endurtakið úrtöku í hverri umferð 0-0-1-1-2-3 sinnum til viðbótar. Í næstu umferð eru 2 ystu lykkjurnar heklaðar saman, endurtakið úrtöku í hverri umferð 4-4-4-5-6-7 sinnum til viðbótar.
Eftir alla úrtöku eru 50-54-58-60-64-68 lykkjur í umferð.
Þegar stykkið mælist 70-71-73-74-76-77 cm, heklið hvora öxl til loka fyrir sig – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu. Stykkið er nú heklað til loka með 1 stuðli í hvern stuðul, mynstrið er ekki lengur heklað eftir A.1.

ÖXL:
Haldið áfram með stuðla yfir fyrstu 15-17-19-20-21-22 lykkjur frá réttu, snúið og heklið 4 fyrstu lykkjur saman 2 og 2 fyrir hálsmáli, síðan er heklað út umferðina. Snúið og heklið fram þar til 4 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, heklið þær saman 2 og 2, snúið. Í næstu umferð eru 2 fyrstu lykkjur heklaðar saman, síðan er heklað út umferðina. Snúið, heklið þar til 2 lykkjur eru eftir, heklið þær saman. Snúið, heklið 2 fyrstu lykkjur saman, heklið út umferðina = 8-10-12-13-14-15 stuðlar eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 80-82-84-86-88-90 cm, klippið þráðinn.
Heklið hina öxlina alveg eins, nema spegilmynd. Þ.e.a.s: Byrjið frá réttu, úrtaka er gerð í lok umferðar frá röngu og byrjun á umferð frá réttu.

BAKSTYKKI:
Heklið á sama hátt og framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma kant í kant þannig að ekki myndist þykkur saumur.

SKRAUTKANTUR:
Skrautkanturinn er heklaður í kringum hálsmál, hvorn handveg og í kringum fram- og bakstykki neðst - einnig upp og niður meðfram hvorri klauf.
Skrautkanturinn er heklaður með heklunál 4 með Cotton Merino þannig: 1 fastalykkja, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 3. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið fram ca 1 cm og heklið 1 fastalykkju *. Heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun á umferð.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 stuðull á milli 2 stuðla fyrir neðan
symbols = 1 stuðull um loftlykkju
symbols = þessi umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig næsta umferð er hekluð í lykkjurnar
symbols = 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = 3 loftlykkjur í byrjun á umferð
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Tonya Tzianakaki wrote:

Do you have this in written form? I struggle with reading graphs. Cant determine how many rows from bottom to top, where I repeat and change to rounds. Thank you so much. 😊

21.04.2024 - 22:13

DROPS Design answered:

Dear Tonya, we are sorry, but we don't have this pattern written out, not only because our patterns are available in many languages, but also, because we believe that with diagrams you can see the "whole picture", in other words, not only the very next stitch, but also how rows and stitches relate to each other. HERE we have a lesson on how to read crochet diagrams, and also, you can ask for help (either in person or over the phone) in the store you bought your DROPS yarn from. Happy Crafting!

21.04.2024 - 23:16

country flag Kris Meys wrote:

Mooi kleedje, ga ik nu maken!!

29.03.2023 - 14:20

country flag Lizzy wrote:

Sigh. I need to know if there is any way i can drop 10 Treble stitches from each side. Although I did the swatch and am using 3.0 mm hook (v recommended 4.0) i realized after 4 rows beyond the join / vent it now is 12 mm too wide on front and on back. Now when I measure 17 TR stitches on the dress it is 12 mm not 10 mm so the width apparently was growing 2 mm every 17. I know this is my issue not the pattern but am unsure even if i start again if it will work.

15.01.2023 - 14:32

DROPS Design answered:

Dear Lizzy, try to keep the correct tension in width to ensure the correct width while working - but also make sure you are following appropriate English pattern - you should have double crochets (US-English) or treble crochets (UK-English). Happy crocheting!

16.01.2023 - 09:27

country flag Elizabeth Hahn wrote:

I want to make sure 'then work round together with a slip stitch in 3rd chain stitch at the beginning of round, work chain stitches in A.2, turn piece and work back from wrong side. Continue piece in the round, but turn piece for every round to work from both right side and wrong side. ' Only means I attach the front to the back on one side. not both and work all the way around ( it keeps saying this is a comment so i resent as a question)

14.01.2023 - 14:51

DROPS Design answered:

Dear Elizabeth, you join the beginning of the round (of the front) to the end of the back and work all the round. When you reach the end of the round, turn the piece and work the next round on the wrong side. This is necessary so that the texture of the front and back, which had been worked back and forth, matches the body worked in the round. Happy crocheting!

15.01.2023 - 12:30

country flag Lizzy wrote:

I want to make sure 'then work round together with a slip stitch in 3rd chain stitch at the beginning of round, work chain stitches in A.2, turn piece and work back from wrong side. Continue piece in the round, but turn piece for every round to work from both right side and wrong side. ' Only means I attach the front to the back on one side. not both and work all the way around

14.01.2023 - 14:50

DROPS Design answered:

Dear Lizzy, you join the beginning of the round (of the front) to the end of the back and work all the round. When you reach the end of the round, turn the piece and work the next round on the wrong side. This is necessary so that the texture of the front and back, which had been worked back and forth, matches the body worked in the round. Happy crocheting!

15.01.2023 - 12:30

country flag Lizzy wrote:

I want to make sure 'then work round together with a slip stitch in 3rd chain stitch at the beginning of round, work chain stitches in A.2, turn piece and work back from wrong side. Continue piece in the round, but turn piece for every round to work from both right side and wrong side. ' Only means I attach the front to the back on one side. not both and work all the way around

14.01.2023 - 14:49

country flag Lizzy wrote:

I am starting Open Country Drops Dress. It is treble crochet. The swatch says 17 treble crochet stitches wide and 9 rows vertically will be 10 x 10 cm or 4 x 4. My first swatch was with 4.0 and way to long. I moved to 3.0 and still the treble crochet stitch are too tall. I am unsure how you can have one treble crochet stitch only 1.1 CM high? What am i missing ?

13.01.2023 - 13:26

DROPS Design answered:

Dear Lizzy, make sure you are reading the appropriate English pattern because UK- and US-crochet terminology are different, so that 1 treble crochet in UK-English is 1 double crochet in US-English - this might help. Happy crocheting!

13.01.2023 - 15:19

country flag Tereza wrote:

Moc hezké šaty.

10.05.2021 - 13:36

country flag Marianne Skoú wrote:

Jeg forstår ikke at læse måleskitsen. 😢

28.04.2021 - 23:16

DROPS Design answered:

Hej Marianne. Kanske detta kan vara till hjälp. Mvh DROPS Design

29.04.2021 - 13:46

country flag Marianne Skoú wrote:

Hvor finder jeg en str. guide, hofte, bryst osv. ?? 🤔

27.04.2021 - 12:01

DROPS Design answered:

Hej Marianne, Du finder kjolens mål i de forskellige størrelser i måleskitsen, som ligger nederst i opskriften. God fornøjelse!

28.04.2021 - 13:27