Alice skrifaði:
Isn't it possible to just knit this as one piece, rather than sewing the blocks later? I know it would be heavy, but I think I'd prefer it that way.
19.05.2022 - 16:21DROPS Design svaraði:
Dear Alice, that should be probably possible, just rememeber to adjust the pattern that way, in the knitting direction, you should have 6 squares in width and 4 in height. Happy knitting!
19.05.2022 - 16:41
Diana Vella skrifaði:
Im really struggling to understand this pattern, its very confusing trying to use the grid i.e A4,A5,A6 Is there an easier way Iam a knitter but just cant work this one out please help thank you
29.01.2021 - 19:59DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Vella, this lesson explains how to read knitting diagram and this video shows a similar cable. Hope this can help you. Happy knitting!
01.02.2021 - 08:02
An skrifaði:
Super varme pledd i høsten
31.10.2020 - 19:58
Iman Bestuzheva skrifaði:
Dear Garnestudio! I'm having some problems understanding this part of the pattern - Then work as follows from wrong side: Work 6 stitches in garter stitch, work A.6 over 2 stitches, work A.5 over the next 32 stitches (= 4 times in width), work A.4 over 5 stitches (= 1 time in width) and work 6 stitches in garter stitch. Since in previous row we made some decreasing there will be no 32 stitches on the needles for A.5, could you pls help me? Thank you
25.09.2020 - 12:47DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Bestuzheva, you are working over 51 sts: 6 sts in garter st, A.4 (= 5 sts), A.5 (= 32 sts), A.6 (= 2 sts), 6 sts in garter st = 6+5+32+2+6= 51 sts. Happy knitting!
25.09.2020 - 14:35
Gerd Ebbesen skrifaði:
Nydelig
06.06.2020 - 17:47
Snow Blocks#snowblocksblanket |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónað teppi í garðaprjóni og áferðamynstri úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað í ferningum sem saumaðir eru saman í lokin.
DROPS 214-52 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning A.x sýnir hvernig staðsetja á ferningana þegar teppið er saumað saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Prjónaðar eru 24 ferningar sem saumaðir eru saman. FERNINGUR: Fitjið upp 46 lykkjur á prjóna 4 með Nepal. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, prjónið síðan 10 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan = 12 sýnilegar umferðir í garðaprjóni frá réttu og næsta umferð er prjónuð frá réttu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú 1 stutta umferð í hvorri hlið og prjónað er eftir mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3 með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 6 lykkjur slétt frá réttu, snúið stykkinu. Prjónið 6 lykkjur slétt frá röngu. Snúið stykkinu og prjónið frá réttu þannig: Prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir 4 lykkjur (= 1 sinni á breiddina). Prjónið A.2 yfir næstu 28 lykkjur (= 4 sinnum á breiddina), prjónið A.3 yfir 2 lykkjur (= 1 sinni á breiddina) og prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni = 51 lykkjur. Snúið stykkinu, prjónið 6 lykkjur slétt frá röngu, snúið stykkinu og prjónið 6 lykkjur slétt frá réttu. Snúið stykkinu og prjónið frá röngu þannig: Prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3 yfir 2 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 32 lykkjur (= 4 sinnum á breiddina), prjónið A.1 yfir 5 lykkjur og prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið nú eftir mynsturteikningu A.4, A.5 og A.6 þannig, fyrsta umferðin er frá réttu: Prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.4 yfir 5 lykkjur (= 1 sinni á breiddina), prjónið A.5 yfir næstu 32 lykkjurnar (= 4 sinnum á breiddina), prjónið A.6 yfir 2 lykkjur og prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið síðan frá röngu þannig: Prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.6 yfir 2 lykkjur, prjónið A.5 yfir næstu 32 lykkjurnar (= 4 sinnum á breiddina), prjónið A.4 yfri 5 lykkjur (= 1 sinni á breiddina) og prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram að prjóna svona eftir mynsturteikningu A.4, A.5 og A.6 þar til stykkið mælist ca 19 cm – stillið af að enda eftir 1. umferð í mynsturteikningu þannig að lykkjufjöldinn er 46 lykkjur, næsta umferð er frá röngu. Prjónið 1 stutta umferð í hvorri hlið með byrjun frá röngu: Prjónið 6 lykkjur slétt frá röngu, snúið stykkinu. Prjónið 6 lykkjur slétt frá réttu. Snúið stykkinu þannig að hægt sé að prjóna frá röngu þannig: Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið stykkinu og prjónið 6 lykkjur slétt frá réttu, snúið stykkinu og prjónið 6 lykkjur slétt frá röngu. Snúið stykkinu og prjónið 10 umferðir garðaprjón = 12 umferðir garðaprjón sýnilegar frá réttu á stykki. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Ferningurinn mælist ca 24 cm x 24 cm. Prjónið alls 24 ferninga. FRÁGANGUR: Staðsetjið ferningana þannig að þeir liggi eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.x, það eiga að vera 6 ferningar á breiddina og 4 ferningar á hæðina. Passið uppá að allir ferningarnir liggi í sömu prjónstefnu. Saumið ferningana saman í lengjur sem síðan eru saumaðar saman – saumið garðaprjón við garðaprjón í ystu lykkjubogana og saumið síðan lykkju fyrir lykkju svo að saumurinn liggi flatur og fallegur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowblocksblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-52
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.