Alexandra skrifaði:
Takk, ble veldig fin søt liten bukse❤
08.10.2021 - 10:52
Torbjørg Haraldsen skrifaði:
Jeg har kjøpt bomullsgarn Drops Paris(pgrunn av allergi) Kan jeg bruke oppskriften på kortbuksen, eller har du et annet forslag?
02.07.2021 - 11:03DROPS Design svaraði:
Hei Torbjørg. Denne buksen er strikket i DROPS Merino Extra Fine som tilhører garngruppe B. Garnet DROPS Paris tilhører garngruppe C og er litt tykkere enn DROPS Merino Extra Fine, slik at du ikke kan erstatte DROPS Merino Extra Fine med DROPS Paris. Ta en titt på f.eks DROPS Muskat (100% Bomull) eller DROPS Cotton Light (50% Bomull, 50% Polyester), begge disse kvalitetene tilhører garngruppe B, bare husk å overholde strikkefastheten som er oppgitt i oppskriften. mvh DROPS design
05.07.2021 - 11:56
Tanja skrifaði:
Are these pants supposed to be long leg pants? The inner leg length seems to be very short? E.g. in size 6-9months inner leg length is 17cm, but normally inner leg length is around 27cm for that size?
13.03.2021 - 21:01DROPS Design svaraði:
Dear Tanja, this looks to be the usual length for inner leg in this size but feel free to adjust to the required length (get helped with pants in the size the baby is wearing for example). Happy knitting!
15.03.2021 - 08:29
Jonna Christensen skrifaði:
Hjælp til diagrammet. Den sorte boks står der at man ikke har en maske, men der er jo tre masker efter man er lavet omslag? Synes det er problematisk at se hvordan man for snoninger på mønsteret ud fra diagrammet?
04.02.2021 - 20:31DROPS Design svaraði:
Hei Jonna. På omgangen under har du minsket med 1 maske ( ta 1 maske løs av pinnen, strikk 2 masker, løft den løse masken over) derfor vises den sorte firkanten = ingen maske. På samme omgang øker du med et kast (oval sirkel) og denne økningen viser at det igjen er 3 rett masker mellom vrangmaskene (1. omgang i diagrammet). mvh DROPS design
08.02.2021 - 13:14
Little Cherub Pants#littlecherubpants |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaðar buxur fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með fölskum köðlum. Stærð 1 mán – 4 ára.
DROPS Baby 33-18 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölda eigi jafnt í umferð, teljið heildar fjölda lykkja í umferð (t.d. 114 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukningar sem á að gera (t.d. 22 = 5,2. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er í þessu dæmi slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið til að forðast göt LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út hvoru megin við 4 miðju lykkjur að framan (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja). Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna/sokkaprjóna, ofan frá og niður. BUXUR: Fitjið upp 114-120-126-132 (138-144) lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff = 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 – prjónið 1 umferð slétt, JAFNFRAMT er fækkað um 22-24-26-28 (26-28) lykkjur jafnt yfir = 92-96-100-104 (112-116) lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING. Setjið 1 prjónamerki mitt að framan og 1 prjónamerki mitt að aftan (= 46-48-50-52 (56-58) lykkjur á milli prjónamerkja). UPPHÆKKUN AÐ AFTAN: Til að flíkin passi betur eru buxurnar prjónaðar hærri að aftan en að framan. Þetta er gert með því að prjóna stuttar umferðir fram og til baka þannig: Byrjið frá réttu og prjónið 10 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki mitt að aftan, snúið við herðið á þræði og prjónið 20 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 40 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram þar til prjónað hefur verið yfir (40) 40-60-60-60 (60-60) lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka mitt að aftan. Prjóni yfir allar lykkjur í 1 cm. Prjónið síðan þannig – frá miðju að aftan: 31-32-34-35-38-40 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 7 lykkjur), 16-18-18-20-22-22 lykkjur í sléttprjóni, A.1, 31-32-34-35-38-40 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7-8-11-11 (13-14) cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur mitt að framan – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, aukið svona út í annarri hverri umferð alls 8-8-8-8 (10-10) sinnum = 108-112-116-120 (132-136) lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 13-14-17-18 (20-21) cm. Í næstu umferð eru felldar af 4 lykkjur mitt að framan og mitt að aftan (þ.e.a.s. 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin) og hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig. Setjið lykkjur fyrir aðra skálmina á þráð og lykkjur fyrir hina skálmina á sokkaprjóna 4,5. SKÁLM: = 50-52-54-56 (62-64) lykkjur. Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður – setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = innan á skálm. Þegar skálmin mælist 3 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2, endurtakið úrtöku með 2-2-3-4 (5-6) cm millibili alls 4 sinnum = 42-44-46-48 (54-56) lykkjur. Þegar skálmin mælist 9-10-13-16 (19-25) cm skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð slétt – JAFNFRAMT er aukið út um 6-10-8-12 (6-10) lykkjur jafnt yfir = 48-54-54-60 (60-66) lykkjur. Prjónið síðan stroff = 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið í 4 cm – fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkju. Prjónið hina skálmina á sama hátt. Buxurnar mælast í heildina 26-28-34-38 (43-50) cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op á milli skálma. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlecherubpants eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.