Anne Blundell skrifaði:
Should I use 4mm or 3mm needles for the leaf pattern part of headband ? Both the pattern and the correction state 4mm but the needles required states 3mm. Thankyou for your assistance.
12.08.2020 - 14:53DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Blundell, leaf pattern on headband is worked with needle size 3 mm - pattern will be edited, thanks for your feedback. Happy knitting!
12.08.2020 - 17:05
Faranaaz skrifaði:
Hoi! Ik zie dat in het patroon, bij het breien van de hoofdband dat er staat: ‘ Ga verder met naald 4 mm en ga verder met A.1 (= 30 steken), met 4 steken PUNNIKRAND op elke kant‘. Moet dit niet A.4 zijn?
11.04.2020 - 11:12DROPS Design svaraði:
Dag Faranaaz,
Inderdaad er staat een foutje in, het moet A.4 zijn in plaats van A.1. He is zojuist aangepast. Dankjewel voor het doorgeven en veel breiplezier!
13.04.2020 - 10:27
MoMo skrifaði:
Où trouver le modèle de l'accessoire bm-073, dont la présente fiche de commentaire mentionne 209-6 ?
17.03.2020 - 23:23DROPS Design svaraði:
Bonjour MoMo, ce modèle n'est pas encore publié, merci de revenir plus tard, abonnez-vous à notre newsletter et/ou suivez nous sur les réseaux sociaux pour ne manquer aucun nouveau modèle. Bon tricot!
18.03.2020 - 08:32
Jonhild skrifaði:
Hvor er det flot, det vil jeg strikke
26.01.2020 - 14:38
Helena skrifaði:
Det skulle vara fint att stick den här model.
19.01.2020 - 19:44
Tjasa skrifaði:
Very nice pattern. The headband is already on my TO DO priority list :)
01.01.2020 - 12:53
Angela skrifaði:
Sehr hübsches Muster
11.12.2019 - 16:32
Ring of Spring#ringofspringset |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Prjónað eyrnaband og handstúkur úr DROPS BabyMerino. Allt settið er prjónað með blaðamynstri.
DROPS 209-6 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. I-CORD-KANTUR (á við um hvora hlið á eyrnabandi): Byrjið frá réttu, * lyftið yfir 4 fyrstu lykkjurnar á prjóni yfir á hægri prjón án þess að prjóna lykkjurnar (lyftið þeim 1 og 1 yfir með þráðinn frá röngu á stykki), herðið aðeins að þræðinum og prjónið A.4 þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, lyftið þessum 4 lykkjum yfir á hægri prjón án þess að prjóna lykkjurnar (lyftið þeim 1 og 1 yfir með þráðinn á röngu á stykki). Snúið stykkinu, herðið aðeins á þræði og prjónið 4 fyrstu lykkjurnar brugðið, síðan er prjónað A.4 þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið þessar 4 lykkjur brugðið, snúið stykkinu *, prjónið frá *-* til loka. ATH: Þú verður að prjóna nokkra cm og draga aðeins í kantinn áður en þú sérð hvernig þetta kemur út. MYNSTUR: Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.3). ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 34 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 8,5. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 7. og 8. hverja lykkju og 8. og 9. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er það gert í þessu dæmi með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir til skiptis 7. og 8. hverja lykkju og í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. Lengdina er hægt að jafna til að óskuðu máli. Til að eyrnabandið sitji fallega á höfði verður að prjóna eyrnabandið ca 7-8 cm styttra en ummál höfuðs. EYRNABAND: Fitjið upp 34 lykkjur á prjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, þar sem auknar eru út 4 lykkjur jafnt yfir í umferð – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 38 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir á prjón 4 og haldið áfram með A.4 (= 30 lykkjur), með 4 lykkjur I-CORD-KANTUR í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til eyrnabandið mælist ca 46-50 cm, en endið eftir 10. eða 20. umferð í mynsturteikningu (nú er eftir ca 1 cm að loka máli, mátið e.t.v. eyrnabandið og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 34 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Eyrnabandið mælist ca 48-52 cm. FRÁGANGUR: Saumið eyrnabandið saman mitt að aftan innan við uppfitjunarkant/affellingarkant. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. HANDSTÚKA: Fitjið upp 61-67 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 (= 14-17 lykkjur), prjónið A.2 (= 33 lykkjur), prjónið A.3 (= 14-17 lykkjur). Haldið svona áfram með stroff þar til A.1-A.3 hefur verið prjónað til loka = 58-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Næst umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 eins og áður (= 14-17 lykkjur), prjónið A.4 (= 30 lykkjur) og prjónið A.3 eins og áður (= 14-17 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til handstúkurnar mælast ca 18 cm, en endið eftir 12. eða 20. umferð í mynsturteikningu A.4. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 eins og áður (= 14-17 lykkjur), prjónið A.5 (= 30 lykkjur) og prjónið A.3 eins og áður (= 14-17 lykkjur) = 61-67 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Handstúkan mælist ca 20 cm ofan frá og niður. Prjónið aðra handstúku á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ringofspringset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 209-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.