Katarina skrifaði:
Hej! Jag har stickat klart en toffel nu i storlek 42/44. Det står att längden ska vara 48 cm innan tovning. Min toffel är ca 37 cm lång otovad. Jag har följt mönstret till punkt och pricka samt har använt det garn och stickor som rekommenderats. Stickfastheten stämmer. Vad har jag gjort för fel? Mvh Katarina
03.12.2020 - 10:01DROPS Design svaraði:
Ifall stickfastheten stämmer borde även måttet stämma. Du har väl kommit ihåg att sticka fältet i ljusgrått mitt under foten?
07.12.2020 - 18:26
Liz Kehoe skrifaði:
I would like to make these slipper socks in knitting without felting them . How could I do this? Or is there a pattern I could use? Thank you for your help. Liz
24.10.2020 - 22:59DROPS Design svaraði:
Dear Liz,this slipper might be similar, and only knitted, without felting, but then ypu van find a number of knitted slippers on our site with a quick search like this . Happy Knitting!
24.10.2020 - 23:11
Aka-Bikki skrifaði:
Hej, jeg har vasket dem med bomuld 40 grader, og brugte opskriften til str. 35/37. Efter vasken er de lidt for stor, hvad skal jeg gøre?
31.05.2020 - 15:08
Marianne skrifaði:
Dit patroon lijkt niet te kloppen. De hoogte van de hiel is net zo hoog als de hoogte van de teen. Aan beide kanten eindigt het meerderen na pen nr. 17 . Daarna doorbreien tot de gewenste hoogte . (midden onder van de voet.) De afbeelding op pag. 5 toont rechts AB als hoogte van de hiel. Links bij de teen is de hoogte minder dan de helft van AB. Terwijl gebreid volgens het patroon de teenkant gelijk is aan AB. Zie ik misschien iets over het hoofd?
09.04.2020 - 14:08DROPS Design svaraði:
Dag Marianne,
De breirichting van de slof is vanaf D omhoog en als je op de stippellijn bent, ga je weer minderen, dus brei je a.h.w. het spiegelbeeld van onder de stippellijn.
13.04.2020 - 10:54
Diana Andersen skrifaði:
Strikkede, filtede futter! Kan jeg putte flere par i vaskemaskinen ad gangen?
26.02.2020 - 16:49DROPS Design svaraði:
Hej Diana, vi anbefaler et par ad gangen. Men man kan jo altid prøve :)
27.02.2020 - 08:52
Line Walking#linewalkingslippers |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaðar og þæfðar tátiljur með röndum úr DROPS Snow. Stærð 35-46.
DROPS 203-24 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í eitt stykki. Hliðarnar eru saumaðar saman við miðju að framan áður en prjónaður er upp kantur í kringum opið. Síðan eru hliðarnar saumaðar saman við miðju að aftan áður en tátiljurnar eru þæfðar. TÁTILJA: Fitjið upp 4-4-5-4 lykkjur á prjón 8 með litnum karrí DROPS Snow og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 6-6-7-6 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 8-8-9-8 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 10-10-11-10 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 12-12-13-12 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 14-14-15-14 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 16-16-17-16 lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár, prjónið slétt og fitjið upp 2-2-3-3 lykkjur í lok umferðar = 18-18-20-19 lykkjur. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 20-20-22-21 lykkjur. UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið slétt og fitjið upp 2-2-2-3 lykkjur í lok umferðar = 22-22-24-24 lykkjur. UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 24-24-26-26 lykkjur. UMFERÐ 11 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí, prjónið slétt og fitjið upp 4-4-5-8 lykkjur í lok umferðar = 28-28-32-34 lykkjur. UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 30-30-34-36 lykkjur. UMFERÐ 13 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár, prjónið slétt. UMFERÐ 14 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 0-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 30-32-36-38 lykkjur. UMFERÐ 15 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 16 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 0-0-0-3 lykkjur í lok umferðar = 30-32-36-41 lykkjur. UMFERÐ 17 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt. UMFERÐ 18 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 19 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið slétt. UMFERÐ 20 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 21 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 22 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 23 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt. UMFERÐ 24 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 25 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið slétt. UMFERÐ 26 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 27 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 28 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 29 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt. UMFERÐ 30 (= ranga): Prjónið brugðið. Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 22-24-24-25 cm, setjið eitt merki hér. Þetta er mitt undir fæti. Prjónið síðan með litnum ljós grár þar til prjónaðar hafa verið álíka margar umferðir í litnum ljós grár hvoru megin við merki (þannig að tátiljan verði alveg eins í báðum hliðum þegar búið er að ganga frá). UMFERÐ 1 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 3 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið slétt. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 7 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 9 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið slétt. UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 11 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 13 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt. UMFERÐ 14 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 15 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár, fellið af fyrstu 0-0-0-3 lykkjur og prjónið slétt = 30-32-36-38 lykkjur. UMFERÐ 16 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 17 (= rétta): Fellið af fyrstu 0-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 30-30-34-36 lykkjur UMFERÐ 18 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 19 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí, fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 28-28-32-34 lykkjur. UMFERÐ 20 (= ranga): Fellið af fyrstu 4-4-6-8 lykkjur og prjónið brugðið = 24-24-26-26 lykkjur. UMFERÐ 21 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár, fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 22-22-24-24 lykkjur. UMFERÐ 22 (= ranga): Fellið af fyrstu 2-2-2-3 lykkjur og prjónið brugðið = 20-20-22-21 lykkjur. UMFERÐ 23 (= rétta): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 18-18-20-19 lykkjur. UMFERÐ 24 (= ranga): Fellið af fyrstu 2-2-3-3 lykkjur og prjónið brugðið = 16-16-17-16 lykkjur. UMFERÐ 25 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí, fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 14-14-15-14. UMFERÐ 26 (= ranga): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið brugðið = 12-12-13-12 lykkjur. UMFERÐ 27 (= rétta): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 10-10-11-10 lykkjur. UMFERÐ 28 (= ranga): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið brugðið = 8-8-9-8 lykkjur. UMFERÐ 29 (= rétta): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 6-6-7-6 lykkjur. UMFERÐ 30 (= ranga): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið brugðið = 4-4-5-4 lykkjur. Fellið af síðustu 4-4-5-4 lykkjurnar í næstu umferð frá réttu. FRÁGANGUR: Brjótið uppá tátiljuna við miðju undir fæti (við merki) og saumið saum fyrir miðju á fæti (meðtalinn uppfitjunarkantur og affellingarkantur). Í kringum opið efst eru prjónaðar upp ca 55-60 lykkjur með litnum dökk grár frá réttu (það er mikilvægt að taka upp nægan fjölda lykkja, svo að stykkið verði ekki stíft). Prjónið 2 sléttar umferðir. Fellið af. Saumið saum mitt að aftan (A + B) í ystu lykkjubogana. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. ÞÆFING: Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #linewalkingslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.