Dominique skrifaði:
Bonjour, j'aurais aimé tricoter en aller/retour et pas en circulaire, comment adapter votre modèle. Merci et meilleures salutations.
09.02.2025 - 11:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Dominique, cette leçon pourra éventuellement vous donner quelques infos pour vous aider à ajuster les explications. Bon tricot!
10.02.2025 - 10:40
Patricia Ojeda skrifaði:
Puede adaptarse el patrón para un niño de 1 año? Qué medidas debo tomar en cuenta? Gracias
21.06.2023 - 23:10DROPS Design svaraði:
Hola Patricia, este hilo es muy gordo para usar para una balaclava de un niño de 1 año. Puedes ver en el siguiente enlace nuestros modelos de balaclava para bebés de 1 año: https://www.garnstudio.com/search.php?action=browse&c=baby-balaclavas&lang=es.
25.06.2023 - 14:12
Mariana skrifaði:
"Cuando la pieza mida 9-10-11 cm, insertar 8 marcadores... " cuando mida 9-10-11 cm desde qué parte? Desde que se montan nuevamente los 14 puntos para cubrir la frente?
19.03.2022 - 21:48DROPS Design svaraði:
Hola Mariana, sí, se mide desde los 14 puntos montados.
20.03.2022 - 17:53
Mariana skrifaði:
Hola, quisiera saber luego de esto "Tejer en resorte durante 3 cm, después tejer 1 vuelta de derecho y, al mismo tiempo, disminuir 10-10-10 puntos distribuidos equitativamente = 50-54-58 puntos. Cuando la pieza mida 7-7-7 cm.... " ¿ se sigue en tejiendo derecho hasta que mide 7cm, nuevas disminuc etc?? Gracias
19.03.2022 - 21:36DROPS Design svaraði:
Hola Mariana, continuas en punto jersey recto hasta 7 cm, después sigues con disminuciones.
20.03.2022 - 17:52
Sally Price skrifaði:
Instructions for the "Little Winter Knight" say, at one point: "Work in stockinette stitch ... until 2 rows have been worked back and forth." Does that mean each of 2 rows should be worked back and forth (total 4 rows)? Or does it mean one back and the other forth ( 2 rows total)?
06.05.2021 - 17:20DROPS Design svaraði:
Dear Sally, "2 rows knitted back and forth" means 2 rows. Those two rows should be knitted "flat", or back and forth on the needles, as opposed to on the round, but there are 2 rows only, not 4. Happy Knitting!
06.05.2021 - 20:57
Little Winter Knight#littlewinterknight |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð balaclava / húfa / lambhúshetta fyrir börn úr DROPS Snow með stroffi og hálsskjóli. Stærð 3 til 10 ára.
DROPS Children 34-34 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LAMBHÚSHETTA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Stykkið skiptist fyrir upp fyrir op og er prjónað fram og til baka áður en stykkið er aftur sett saman og prjónað í hring. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. LAMBHÚSHETTA: Fitjið upp 60-64-68 lykkjur á hringprjón 8. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið stroff í 3 cm, síðan er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-10-10 lykkjur jafnt yfir= 50-54-58 lykkjur. Þegar stykkið mælist 7-7-7 cm, fækkið um 6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón þar til stykkið mælist 13-13-13 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir næstu 12-12-12 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í garðaprjóni, prjónið afgang af umferð slétt eins og áður. Haldið svona áfram í 3 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, fellið af næstu 14-14-14 lykkjur, prjónið 2 lykkjur garðaprjón og sléttar lykkjur út umferðina. Snúið stykkinu. Prjónið nú fram og til baka yfir 30-34-38 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þar til prjónaðar hafa verið 2 umferðir fram og til baka. Nú á að prjóna stykkið aftur í hring. Prjónið yfir 30-34-38 lykkjur, í lok umferðar frá réttu eru fitjaðar upp 14-14-14 nýjar lykkjur og prjónað er í hring yfir allar lykkjur (= 44-48-52 lykkjur). Prjónið frá byrjun á umferð þannig: 2 lykkjur garðaprjón, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir næstu 12-12-12 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið, prjónið afgang af umferð í sléttprjóni eins og áður. Stykkið er nú mælt frá þar sem 14-14-14 lykkjur voru fitjaðar upp. Haldið áfram í sléttprjóni og stroffi þar til stykkið mælist 3 cm, síðan er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 9-10-11 cm, setjið 8 prjónamerki í stykkið þannig: Í stærð 3/5 eru til skiptis 5 og 6 lykkjur á milli prjónamerkja, í stærð 6/8 eru 6 lykkjur á milli prjónamerkja og í stærð 9/10 eru til skiptis 6 og 7 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 4 sinnum = 12-16-20 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2 = 6-8-10 lykkjur. Prjónið síðustu umferð þannig: prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman = 3-4-5 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 15-16-17 cm frá opi og alls ca 34-35-36 cm. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlewinterknight eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.