Linn skrifaði:
Står det fel i mönstret vid första ökningen för tummen? Får det inte att gå ihop med färgerna. Första ökningen ska väl vara ytterligare en maska från mitten av tummen. Alltså att det blir tre maskor i mitten och ökad utanför dem, inte en i mitten?
08.10.2023 - 05:02DROPS Design svaraði:
Hej Linn, du øger med rødt ifølge diagrammet, med 1 m i midten, men når du strikker dem på næste varv, strikkes de ifølge farven i diagrammet, så det bliver lodrette striber :)
17.10.2023 - 12:00
Helena skrifaði:
Hej! Har börjat sticka vantarna men får dem väldigt små? Har bytt till stickor nr 3 för att få dem större . Jag har inga stora händer 20 cm äver handflatan . Tittade på ett annat vantmönsterbför fabel , christmas rose och där är 64 maskor istället för 56 maskor som i detta mönster . Är maskantalet rätt för en damvante?
05.03.2021 - 10:15DROPS Design svaraði:
Hej Helena, vanterne bliver 22 cm i omkreds hvis man strikker med DROPS Fabel og overholder strikkefastheden. God fornøjelse! :)
05.03.2021 - 12:58
Lonni Puggaard skrifaði:
En video af hvordan man laver tommelfingeren, når man nu ikke kan finde ud af at læse en opskrift 🙏🙏🙏
19.11.2020 - 19:46
Thelma skrifaði:
Hi! I have designed a shawl. I have the written instructions. I tried making charts for it but haven’t succeeded. Can you please help me make the charts or can someone please help me in teaching me how to make the charts? Please do let me know soon. Thanks, Thelma
12.12.2019 - 17:14
Holiday Hearts#holidayheartsmittens |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir vettlingar með hjörtum úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað með norrænu mynstri og lettneskum köðlum. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1469 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LETTNESKUR KAÐALL: Kaðallinn samanstendur af 3 umferðum – allar umferðir eru teiknaðar inn í A.1 og merktar með A.x. Þessar 3 umferðir eru prjónaðar þannig: UMFERÐ 1: * prjónið 1 lykkju slétt með litnum rauður, 1 lykkja slétt með litnum natur *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 2: Leggið báða þræðina á framhlið á stykki (að þér). Færið þráðinn með litnum rauður yfir að bakhlið, prjónið 1 lykkju brugðið og færið þráðinn til baka að framhlið. Dragið þráðinn með litnum natur undir þráðinn með litnum rauður og síðan yfir að bakhlið, prjónið 1 lykkju brugðið og færið þráðinn til baka að framhlið. Haldið svona áfram með brugðnar lykkjur til skiptis með þráð í litnum rauður og þráð í litnum natur, en færið þráðinn alltaf UNDIR þráðinn frá síðustu lykkju sem þú prjónaðir. UMFERÐ 3: Prjónaðu eins og umferð 2, en nú færist þráðurinn alltaf yfir þráðinn frá síðustu lykkju sem þú prjónaðir. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir í hálfu númeri grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR-2: Til að koma í veg fyrir göt í skiptingunum þegar lykkjur eru prjónaðar upp á bakhlið á þumli, er hægt að setja þráðinn á milli 2 lykkja snúinn á vinstri prjón og prjóna slétt saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR- STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VINSTRI VETTLINGUR: Sjá LEIÐBEININGAR-1! Fitjið upp 56 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum rauður. Prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 hringinn (= 56 lykkjur). JAFNFRAMT í 2. umferð í A.2 er prjónað A.5 yfir 3 svörtu rúðurnar í A.2. Aukið út í A.5 eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Haldið svona áfram með mynstur (athugið vel að það er alltaf prjónuð 1 umferð með litnum rauður yfir allar lykkjur eftir röð með hjörtum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, setjið 17 lykkjur í A.5 á þráð fyrir þumal. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir þumallykkjurnar = 56 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með A.2 hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.3 (= 56 lykkjur). A.3 er endurtekið alls 2 sinnum á hæðina (þegar A.3 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina mælist vettlingurinn ca 19 cm og það eru ca 5 cm til loka, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið nú A.4 (= 56 lykkjur). Fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, eru 8 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 24 cm frá uppfitjunarkanti. ÞUMALL: Setjið til baka 17 þumal lykkjurnar á sokkaprjón 2,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 3 lykkjum sem fitjaðar voru upp á bakhlið á þumli – sjá LEIÐBEININGAR-2 = 20 lykkjur. Prjónið A.6 hringinn, en passið uppá að lykkja merkt með þríhyrningi í A.5 og A.6 passi yfir hverja aðra. Passið uppá að þumallinn sé ekki prjónaður of fast, þá verður hann of lítill. Fækkið lykkjum efst á þumli eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka, eru 4 lykkjur eftir. Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Þumallinn mælist ca 6 cm á hæðina. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 56 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum rauður. Prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.7 hringinn (= 56 lykkjur). JAFNFRAMT í 2. umferð í A.7 er prjónað A.5 yfir 3 svörtu rúðurnar í A.7. Aukið út í A.5 eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, setjið 17 lykkjur í A.5 á 1 þráð fyrir þumal. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir þumallykkjurnar = 56 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með A.7 hringinn. Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.8 (= 56 lykkjur). A.8 er endurtekið alls 2 sinnum á hæðina (eða að óskaðri lengd, stillið af eftir vinstri vettling). Prjónið nú A.9 (= 56 lykkjur). Fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.9 hefur verið prjónað til loka, eru 8 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 24 cm frá uppfitjunarkanti. ÞUMALL: Prjónið þumalinn á sama hátt og á vinstri vettlingi. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #holidayheartsmittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1469
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.