Sandrine skrifaði:
Bonjour, Peut-on tricoter ce modèle avec des aiguilles droites ? Que change t-on si c'est le cas ?
28.01.2023 - 23:38DROPS Design svaraði:
Bonjour Sandrine, le bandeau se tricote en allers et retours sur aiguille circulaire (pratique scandinave usuelle), vous pourrez ainsi utiliser des aiguilles droites sans souci; le bandeau se tricote lui en rond, mais cette leçon vous expliquera comment l'adapter sur aiguilles droites. Bon tricot!
30.01.2023 - 09:53
Lea Groot skrifaði:
Goedemorgen, ik zoek het patroon van de hoofdband en col met nummer 204-31. De foto klopt ik zie alleen het patroon van een trui erbij staan. Heeft u het patroon van de hoofdband en de col nog voor mij? Met vriendelijke groet, Lea Groot, Alkmaar
09.10.2020 - 10:15DROPS Design svaraði:
Dag Lea,
Whoops, er zat inderdaad en verkeerd patroon bij. Het is inmiddels aangepast.
10.10.2020 - 10:14
Angela Ott skrifaði:
Hallo Drops- Mitarbeiter/ innen, ist das möglich mitr die Anleitung für das Stirnband 204-31, gegen Vorkasse, zuzzuschicken? Dafür wäre ich Ihnen sehr dankbar.
04.11.2019 - 17:58DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Ott, wenden Sie sich bitte an einem DROPS Laden, gerne kan man Ihnen weiterhelfen.
05.11.2019 - 08:40
Maarlemio skrifaði:
Sehr schick in der Wollqualität! Gefällt mir!
05.07.2019 - 12:08
Mysterious clouds#mysteriouscloudsset |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónað eyrnaband og hálsskjól úr 1 þræði DROPS Sky og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með gatamynstri og mynstri sem færist til.
DROPS 204-31 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.1. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumað saman við miðju að aftan. EYRNABAND: Fitjið upp 35 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði Sky + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú mynstur A.1 yfir allar lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið A.1 á hæðina þar til stykkið mælist ca 48 cm eða að óskaðri lengd (nú er eftir ca 1 cm þangað til fellt er af) – stillið af þannig að endað sé mitt í tilfærslu á mynstri (tilfærslan er í 5. – 15. hverri umferð í mynsturteikningu). Ef endað er áður en stykkið mælist 48 cm er prjónað áfram með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón þar til stykkið mælist 48 cm – eða að óskaðri lengd. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Saumið eina og eina lykkju saman innan við uppfitjunarkantinn og affellingarkantinn svo að saumurinn verði ekki þykkur. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað er í hring á hringprjón. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 110-116 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði Sky + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið mynstur frá miðju að aftan þannig: Prjónið 26-29 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 29 lykkjur, A.3 yfir næstu 29 lykkjur, prjónið slétt yfir 26-29 lykkjur sem eftir eru í umferð. Haldið svona áfram hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allt A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru prjónaðar 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af með sléttum lykkjum, en yfir lykkjur í A.2 og A.3 er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju, uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki stífur meðfram bogalaga kantinum). |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mysteriouscloudsset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.