Rosita skrifaði:
Sehr schön, unbedingt die Anleitung einstellen, Danke
11.09.2019 - 12:47
Anne Davidsen skrifaði:
Hvornår lægger i denne opskrift op så man kan gå i gang med at strikke ?
03.09.2019 - 12:26
Jacqueline skrifaði:
This looks fun. I've never felted before, can see this being a nice introduction to felting. It's cute.
29.06.2019 - 13:56
Christiane skrifaði:
Quels jolis chaussons ! Un beau modèle pour le feutrage.
06.06.2019 - 11:35
Sorbet Slippers#sorbetslippers |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðar og þæfðar tátiljur úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað fram og til baka í eitt stykki sem síðan er saumað saman fyrir þæfingu. Stærð 35-46.
DROPS 203-23 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í eitt stykki. Þegar stykkið hefur verið prjónað til loka, er það saumað saman og þæft. KANTUR AÐ AFTAN: Fitjið upp 23-25-26-28 lykkjur á prjón 5,5 með litnum grár DROPS Alaska. Prjónið 16 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! HÆLL: Prjónið nú stuttar umferðir til að forma hælinn, allar umferðir eru prjónaðar slétt (= garðaprjón). Skiptið yfir í litinn brúnn, byrjið frá réttu og prjónið þannig: Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, snúið og prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, * snúið og prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrri umferð þar sem snúið var við, snúið og prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrri umferð þar sem snúið var við *, prjónið frá *-* þar til 5-5-6-6 lykkjur eru eftir að miðju á stykki (nú hefur verið snúið við 9-10-10-11 sinnum í hvorri hlið). Nú á að prjóna yfir 1 lykkju fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið aftur yfir allar lykkjur = 23-25-26-28 lykkjur. NEÐRA STYKKI: Skiptið yfir í litinn rúbínrauður. Prjónið sléttprjón og í fyrstu umferð er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir í umferð = 19-21-22-24 lykkjur. Prjónið sléttprjón í alls 19-20½-24½-27 cm. TÁ: Prjónið nú stuttar umferðir til að forma tá, allar umferðir eru prjónaðar slétt (= garðaprjón). Skiptið yfir í litinn brúnn, byrjið frá réttu og prjónið þannig: Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, snúið og prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, * snúið og prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrri umferð þar sem snúið var við, snúið og prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrri umferð þar sem snúið var við *, prjónið þar til 5-5-6-6 lykkjur eru eftir að miðju á stykki ( það hefur verið snúið við 7-8-8-9 sinnum í hvorri hlið). Nú er prjónað yfir 1 lykkju fleiri í hverri umferð sem snúið er við þar til prjónað hefur verið aftur yfir allar lykkjur = 19-21-22-24 lykkjur. EFRI HLIÐ: Skiptið yfir í litinn kórall. Prjónið sléttprjón í 9-10-12-13 cm, í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir (aukið út með uppslætti sem prjónaður er snúinn brugðið í næstu umferð) = 23-25-26-28 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni þar til prjónaðir hafa verið 19-20½-24½-27 cm í sléttprjóni og næsta umferð er frá réttu. KANTUR AÐ FRAMAN: Skiptið yfir í litinn grár og prjónið 2 umferðir slétt yfir allar lykkjur. Prjónið síðan stuttar umferðir þannig, með byrjun frá réttu: Prjónið 3 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 4 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 5 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 6 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 5 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 4 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu: Prjónið 3 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 4 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 5 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 6 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 5 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 4 lykkjur slétt, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Klippið frá. FRÁGANGUR: Brjótið uppá stykkið við tá, þannig að efri hlið liggi ofan á neðri hlið. Passið uppá að hlið á uppfitjunarkanti og hlið á affellingarkanti liggi kant í kant (uppfitjunarkantur og affellingarkantur mynda gatið þar sem fóturinn fer í tátiljuna). Saumið í ystu lykkjubogana, byrjið í hlið á uppfitjunarkanti/affellingarkanti og saumið fram að tá. Endurtakið í hinni hliðinni. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. ÞÆFING: Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sorbetslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.